Tíminn - 04.01.1976, Síða 11

Tíminn - 04.01.1976, Síða 11
Sunnudagur 4. janúar 1976. TÍMINN 11 FRUMSKILYRÐI þess að bldm- leg byggð haldist viðs vegar um landið er bætt vegasamband. Og þrátt fyrir það þótt ýmsir þéttbýl- isstaðir hafi tekið til sin stóra hluti þess fjár, sem til vega hafa farið, á liðnum árum, verður þvi ekki neitað að margar leiðir Uti á landsbyggðinni hafa á slðari ár- um verið færðar inn i vegakerfið. Þegar nýir vegarkaflar eru opnaðir til umferðar eru þeir jafnan fjölfarnir um sumardaga. Þó að stundum sé það ekki nema skamman tima eða fá ár verður umferðarþunginn annars staðar varanlegur vegna þess að þær leiðir búa yfir þvi seiðmagni og töfrum fegurðar, sem kallar fólk- ið til sin aftur. Ein þessara leiða er i Vest- ur-Húnavatnssýslu siðan hring- vegurinn kringum Vatnsnesfjall var tengdur alfaraleið. Um þann veg er mikil umferð sumar hvert og ekki undarlegt þegar þess er gætt hversu margir sérkennilegir staðir eru tengdir þessum vegi og hve vitt og fjölbreytilegt útsýnið er. Þegar farin er alfaraleið i austur eftir þjóðvegi úr Miðfirði og um Llnakradal sunnan við Vatnsnesfjall, má sjá vitt inn til heiða og jökla, inn á kjörlönd Miðfjarðar og Viðidals. Við aðra siðu vegarins er Miðfjarðarvatn en á hina vel gróið land með þekkum bújörðum. Rétt austan Miðfjarðarvatns eru vegamót. Liggur aðalleiðin austur og norð- ur i land en hin leiðin út með Vatnsnesfjalli austanverðu i Vesturhóp. Þegar kemur skammt norðureftir opnast nokkur sýn inn Víðidal og f jöllin austan dals- ins blasa við en nær, á mörkum Vlðidals og Vesturhóps, er einn bezti útsýnisstaður héraðsins, Borgarvirki. Skammt þaðan er Stóraborg hinn forni bústaður Finnboga ramma. Ein mesta prýði sveitarinnar er Vesturhóps- vatn. Við norðurenda þess er bær- inn Vatnsendi þar sem skáldkon- an Rósa bjó og var kennd við. Á Breiðabólstað bjuggu ýmis stór- menni til forna. Þar voru fyrst Ágúst fró Svalbarði: Heima og heiman bókuð lög hér 1117 og siðar sett upp prentsmiðja, um 1530. Ogþar mun pappir hafa verið fyrst not- aður til bréfagerðar hér á landi. Norðan við Vesturhópsvatn ligg- ur vegur til Borgarvirkis, Stóru- borgar og fleiri bæja. Frá Vestur- hópshólum voru bræðurnir Jón ráðherra og Magnús bóndi á Blikastöðum Þorlákssynir. Hér er Vatnsnesfjall bratt og brúna- hvasst með klettum efra, en á hinn veginn er Sigrlðastaðavatn sem er alllangt til suðurs. Svæðið frá Vesturhópshólum og út á Vatnsnestá nefnist Siðan. Þar er grösugt, og hlýleg bændabýli standa þar I röð með veginn i hlaðvarpanum. Frá Hrisakoti var Jón Jóhannesson sagnfræðingur og á Ósum, þar skammt utar, bjó Eggert Levý, vel þekktur fyrir margháttuð félagsstörf i hér- aðinu. Þau hjón, Eggert og Ogn, hvila þar I ættargrafreit. Af Sið- unni er mjög viðsýnt. Þar blasir við fjallahringurinn frá Viðidals- fjalli austur um til Langadals- fjalla og allur fjallahringurinn norður á Skaga. Nær honum eru þorpin Höfðakaupstaður og Blönduós. Við sjóinn, nokkru fyrir norðan Ósa, er klettadrangurinn, Hvitserkur, en nyrzt á nesinu er bærinn Krossanes, dánarstaður Jóns lögmanns Sigmundssonar árið 1520. 1 vestur frá Krossanesi er Hind- isvík. Þaðan er mikið og fagurt útsýni alla leið til Strandafjalla. Þar er höfn góð frá náttúrunnar hendi og friðlýst selalátur. Þetta er ættarból Norlandsbræðra. Þar eiga flestir sem um veginn fara stundardvöl. Þegar bjarter veður og gott skyggni má svo heita að Strandasýsla öll, allt innan úr Hrútafirði norður til Horn- stranda, liggi að fótum ferða- mannsins þegar farið er um Vatnsnes, þótt i allmikilli fjar- lægð sé, og það, út af fyrir sig, gefur þessari leið mikið gildi sem ferðamannaleið. Nokkru fyrir innan Hindisvik að vestan er prestsetrið Tjörn, og þaðan til suðurs i Vatnsnesfjall ganga tveir dalir Katadalur, sá eystri, og Þorgrimsstaðadalur, sá vestari. Eftir þeim falla samnefndar ár, sem verða að einni er fram úr dölunum kemur og heitir hún Tjamárá. Nokkru fyrir innan Tjamará eru Illugastaðir, sér- kennilegur og fagur staður. Valda þvi einkum tangar og hólmar við sjóinn sem æðarfuglinn velur sér til bólstaðar vor hvert. Innar með sjónum eru einstakir klettar úr strandbergi, kallaðir Stapar, og þar skammt frá er hlýlegur bóndabær með sama nafni bar Þessi mynd er af Hindisvik á Vatnsnesi ■ mikið fuglalif á sumrin. ■ æðarfuglarnir á sundi við fjöru>sandinn, enda er þarna er ein bezta lending fyrtr báls^ Vatnsnesi en túniðmá heita afgirt í með bogadrengu klettabelti. 1 Nú verður landið hrjóstrugra. En augað þarf ekki að nema staðar. Þvi má renna eftir hinu sérkennilega landslagi, hjöllun- um, sem mynda þrep á þrep ofan eins og tröppur hátt til fjalis. Þar má finna ótal klettaborgir meö hinum einstöku kynjamyndum, sannkallaða álfabyggð. Þarna er býlið Svalbarð og þar skammt frá ofan vegarins er Stapavatn, eina vatnið sem er á þessari leið vest- an á nesinu. Þaðan er stytzta leið til uppgöngu á Brandafell, bezta útsýnisstað á norðanverðu Vatns- nesi. Þaðan má I góðu skyggni sjá austur til Skagafjarðar og vestur til Breiðafjarðar inn til jökla og út til hafs. Nokkru innar fellur Hamarsá til sjávar komin úr Hliðardal. Þar er skilarétt sveit- arinnar og heit laug I flæðarmáli. Skammt þar frá er egglagaður drangur er heitir Ánastaðastapi. Tilheyrir hann landi Ánastaða, sem eru frægir fyrir mikinn hval- reka harðindaárið 1882. Þá rak 32 stórhveli þar á land. Sá fengur barg ekki aðeins fólki I næstu sveitum heldur var þangaðsótt úr fjarlægum héruðum. Skammt fyrir innan Ánastaði eru Kára- staðir, þrjár samliggjandi jarðir. Þar fyrir ofan er bergkastali mik- ill gerður úr blágrýtisstuðlabergi. Heitir hann Káraborg. Þaðan er mikið viðsýni um hérað. Hefur verið ruddur þangað sumarveg- ur, af hringveginum, norðan við þorpið Hvammstanga. Er þá farið hjá bænum Helguhvammi. Þegar við hverfum aftur frá Káraborg til hringvegarins liggur hann um Hvammstanga og þaðan inn til Miðfjarðar um 5 km leið og eru vegamótin við Stóraós. Þá höfum við lokið við að renna eftir veginum kring um Vatnsnesfjall. Við höfum staldrað við á stöku stað á leiðinni, rennt augum yfir furðusmiði náttúrunnar, getiðum nokkuð það helzta er fyrir sjónir bar, en hugsað þó fleira en sagt hefur verið. Leyfðu óskunum að rætast Þær veröa aö fá tækifæri - mörg og góö tækifæri. SÍBS- happdrættið býöur þau. Þar hækka vinning- arnir um 50 milljónir og veröa 201 milljón og 600 þúsund. Og aukavinningurinn er sannkallaö- ur óskabill: Citroén CX 2000. Bifreiö, sem kom fyrst á markað 1974, hönnuö til aö mæta kröf- Happdraetti um nútímans um öryggi, þægindi og sparneytni. Vinningarnir veröa 17500 talsins, frá 10 þúsund kr. upp í milljón. En kannski koma vinningar á 50 - 200 þúsund þægilegast á óvart. Hvaö finnst þér? Auknir möguleikarallra -t

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.