Tíminn - 25.04.1976, Page 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 25. aprll 1976
Æsustaðahjónin, börn og fósturbörn (1915) Sigurlina Sigtryggsdóttir,
Niels Sigurðsson og börn og fósturbörn,Jónína Hólmfriður Nielsdóttir,
Helga Marin Nielsdóttir, Jónheiður Nielsdóttir, Steingrimur Nielsson,
Jón Þorvaldsson og Sigurlina Simonardóttir.
Á Æsustöðum 1937 (hópmynd).
ökum fram i Fjörð og nemum
staðar á stórbýlinu Æsustööum i
Saurbæjarhreppi 32 km frá
Akureyri. Helga Nielsdóttir
ljósmóöir hefur léð i þáttinn
myndir þaðan, en þar bjuggu
foreldrar hennar Niels og Sigur-
lina á árunum 1906-1945. Litum
fyrst á gamla bæinn, myndin er
tekin 1937. Vænt lerki o.fl. hrisl-
ur sjást i garðinum. Helga segir
svo frá:
Þessi garður var með fyrstu
blómagöröum, sem skipulagður
var i Saurbæjarhreppi. Geröi
það Jónina H. Nielsdóttir, eftir
að hún lærði garðyrkju hjá
Jakobi Lindál' i GróÖrarstoÖ
Akureyrar.
Systir min, Jónina H. Niels-
dóttir keypti Grundarorgelið og
áklæði, sem þvi fylgdi, sem er
siðan 1837. Það er ofið úr jurta-
lituðu bandi með ártali og nafni
Hólmfríðar Magnúsdóttur frá
öxnafelli. Þegar orgelið var
flutt úr gamla bænum i nýja
húsiö, sem ég byggði fyrir for-
eldra mina árið 1942, orti móðir
min þessar visur:
I.
Breytinganna bifar ómur.
Bláveg lofts og fold og sæ.
Aldrei heyrist orgelhljómur,
oftar i þessum gamla bæ.
II.
Liðin gleði, gæfa og harmur,
grafast undir rústirnar.
Gleymsku
þögull breiöist barmur
bráðum yfir þústirnar.
Æsustaðir gamli bærinn 1937
lsienzkir landncmar veiða sinn fyrsta björn (1906).
III.
Aldrei dáðrik orka svigni.
Auðna geymi lög og svörö.
Alvalds kraftur ætið signi
Æsustaða friða jörð.
Hópmyndin er tekin á Æsu-
stöðum 1937. Lengst til vinstri er
Sigtryggur Ólafsson og hjá hon-
um Matthias Axfjörð þá
unglingur. Niels Sigurðsson
bóndi stendur fram undan miðj-
um torfveggnum og framan við
hann Niels Sveinsson (fóstur-
sonur og barnabarn). Þá hús-
freyjan Sigurlina Rósa
Sigtryggsdóttir og við hliö henn-
Gamli og nýi bærinn á Æsustöðum
ar Hulda Kristinsdóttir með
brúðuna sina. Svo bilstjórinn Óli
Magnússon frá Sandhólum og
Kristin Axfjörð fyrir framan
hann og Svava Sveinsdóttir
dótUrdóttir Sigurlinu og Nielsar
og fósturdóttir lengst til hægri.
Myndin með enska textanum
sýnir 3 landnema, er þeir hafa
lagt að velli fyrsta bjarndýrið
árið 1906. Þessir menn: Tryggvi
J. Halldórsson, Leopold
Halldórsson og Óli J. Halldórs-
son, voru einhverjir fyrstu land-
nemar i Wynyard, Sask. Móðir
þeirra, Anna Sigurðardóttir,
var frá Æsustaðagerðum, syst-
kinabarn Sigurlinu á Æsustöð-
um. Þeir fengu heimilisréttar-
(1942)
land frá Kanadastjórn 1903,
byggðu þar bjálkakofa glugga-
lausan og lokuðu honum til
næsta árs, en fluttu þá inn með
fjölskyldur sinar. Kristin, kona
Tryggva, hoppaði upp um háls-
inn á honum og sagðist vera
hamingjusamasta kona i heimi,
þegar hún kom að gluggalausu
bjálkahúsinu. Búslóðina og
fjölskylduna fluttu þeir á uxa-
kerrúm til Wynyara.
Svo islenzkur er þessi bær enn
að maður heyrir talaða islenzku
á götum úti, og kennd er hún i
sunnudagaskólanum.
Og nú eru barnabörnin að
taka við gömlu heimilisréttar-
löndum afanna.
....— — > ,
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga
^.........-