Tíminn - 25.04.1976, Síða 7
Sunnudagur 25. aprll 1976
TIM'INN
7
HELGARSPJALL
Steingrímur Hermannsson:
Að lokinni rógsherferð
Svo viröist sem lokið sé, að
minnsta kosti i bili, harðvitugri
og skipulagðri rógsherferð á
hendur ólafi Jóhannessyni,
dómsmálaráðherra. Moldrykið
er farið að setjast og myndin að
skýrast. Eftir standa ýmsar
staðreyndir og einnig spurning-
ar, sem ástæða er til að skoöa.
Ólafur
Jóhannesson
Ólafur Jóhannesson stendur
jafn beinn eftir sem áður. A þvi
er enginn vafi.
Um þá niðurstöðu Ólafs, sem
hann framkvæmdi reyndar ekki
sjálfur, að ekki væri réttlætan-
legt að loka veitingastaðnum
Klúbbnum á þeirri forsendu,
sem það var gert á sinum tima,
hefúr mikið verið fjallað af lög-
fróðum mönnum. Þeir hafa
komizt að þeirri niðurstöðu, að
lagaskýring Ólafs sé tvimæla-
laust sií eina rétta. Þetta kom
m.a. fram strax i áliti lögfræð-
ings, sem birtist i dagblaðinu
Visi. Ég hlustaði vandlega á
skýringarþær,sem Ólafur gaf á
Alþingi á þessari niðurstöðu
sinni. Þær voru ákaflega glögg-
ar. Ekki fór á milli mála, að þar
talaði maður mjög fróður á
þessu sviði, ákveðinn i þvi að
láta sannleikann einan ráða
gerðum sinum.
Sú ásökun, að Ólafur
Jóhannesson hafi leitazt við að
tefja rannsókn á morðmáli er
svo fáránleg, að hún getur varla
talizt svaraverð. Engin gögn
benda til sliks, enda dettur
engum i hug, sem Ólaf
Jóhannesson þekkir, og það ger-
ir raunar þjóðin öll, að Ólafur
væri liklegur til sliks verknaðar.
Hin raunverulega
„Mafia"
Eitt af þvi, sem nú er orðið
ljóst, þegar moldrykinu léttir,
er hverjir standa I raun og veru
að baki þessari aðför.
Ekki er óeðlilegt, að
stjómendum Visis væri um
kennt. Eigendur VIsis eru
nokkrir „businessmenn”, sem
eiga þá hugsjónhelzta aö fá arð
af sinnifjárfestingu. Þeirleggja
þvi megináherzlu á, að blaöið
seljist. Ég hygg, að það sé rétt,
að þeir hafi litil afskipti af þvi
hvað birtist i blaðinu frá degi til
dags, svo lengi, sem það selst.
Mér sýnist jafnframt ljóst, að
þeir hafi ekki undirbúið þessa
aðför á hendur ólafi Jóhannes-
syni. Þeir voru fyrst og fremst
verkfæri i höndum annarra.
Þeir verða þó aldrei losaðir
undan þeirri ábyrgð, sem þeir
bera á rekstri eigin fyrirtækis.
Segja má, að þeirra sök sé
stjórnleysið og barnaskapurinn.
öllum er nú orðið ljóst, að að-
för þessi var undirbúin og fram-
kvæmd af Alþýðuflokknum.
Atburðarásin sýnir það ljós-
lega:
1. Frambjóðandi Alþýðuflokks-
ins i Keflavik, Kristján
Pétursson, mun vera
upphafsmaðurinn.
2. Frambjóðandi Alþýðuflokks-
ins i Vestfjarðakjördæmi, Vil-
mundur Gylfason, færir sög-
una i búning og setur spurn-
ingarmerkin á rétta staði með
reynslu þess, sem vanur er
vafasömum skrifum, vill
forðast meiðyrðadóm, en veit
á sig sökina.
3. Enn einn frambjóðandi
Alþýðuflokksins, Arni
Gunnarsson, var fréttastjóri
við dagblaðið Visi og er ein-
mitt, þegar Vilmundur kemur
með greinina, efalaust ekki af
tilviljun, ritstjóri i veikindum
aðalritstjóra blaðsins. Mér
skilst, að hann hafi fengið
greinina á fimmtudegi, hann
birtir hana án tafar á föstu-
degi og i fjarveru aðalrit-
stjóra gerir hann efni grein-
arinnar að þriggja dálka
fyrirsögn á forsiðu blaðsins.
4. Enn einn frambjóðandi
Alþýöuflokksins og þingmað-
ur, Sighvatur Björgvinsson,
rýkur meö aðdróttanirnar inn
á Alþingi þegar næsta mánu-
dag. Honum liggur svo mikið
á, að hann má jafnvel ekki
vera að þvi að skoða ýmsa
efnisþætti málsins, eins cg
hann sagði sjálfur hvað eftir
annað i ræðu sinni.
5. Frambjóðendur Alþýðu-
flokksins og þingmenn, Bene-
dikt Gröndal og Gylfi Þ.
Gislason, gera þessa aðför að
meginuppistöðu i ræöum sín-
um i útvarpsumræðu frá
Alþingi.
Nokkur fleiri smápeð Alþýðu-
flokksins mætti tina til inn á
milli, en mér sýnist, aö með
þessu sé rakinn allur megin-
þáttur þessa máls. Ekki fer á
milli mála, að hér var um fyrir-
fram hugsaða og skipulega póli-
tiska aðför af hendi Alþýðu-
flokksins að ræða. Alþýöuflokk-
urinn hlýtur að hafa ætlað sér
mikinn ávöxt. Liklega hefur
hann haft i huga að koma Ólafi
Jóhannessyni frá og sundra
rikisstjórninni. Þá væri rétt að
spyrja, hvað átti framhaldiö að
verða? Sjálfstæðisflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn hafa ekki
meiri hluta á Alþingiog, eins og
alþjdð veit, hefur Alþýðuflokk-
urinn verið mesti Þrándur i
Götu vinstri samstarfs.
Ef til vill má segja það Alþýðu-
flokksmönnum til hróss, að þeir
réðust á múrinn þar sem hann
er hæstur. Hins vegar ber það
vott um ákaflega lélega dóm-
greind.
Þóttur
Framsóknar
flokksins
1 þessu sambandi hefur verið
reynt að koma höggi á
Framsóknarflokkinn. Þvi hefur
verið haldiö fram, að
Framsóknarflokkurinn sé I fjár-
málalegum tengslum við Sigur-
björn Eiriksson.
Framsóknarflokkurinn átti
einu sinni Frikirkjuveg 7. Þar
var gert samkomuhús og leigt
Ragnari Þórðars. i Markaðn-
um, sem svo er gjarnan nefnd-
ur. Ragnar rak þar um nokkurt
skeið fyrirmyndar veitingahús,
en hætti siðan þeim rekstri og
framseldi leiguna Sigurbirni
Eirikssyni. Þannig kom Sigur-
björn inn i það hús.
1 desember 1971 brann
Frikirkjuvegur 7. Sigurbjörn
gerði þá kröfu á hendur
Framsóknarflokksins um aðild
að brunabótum. Um þetta stóðu
deilur i nokkra mánuði.
Steingrlmur Hermannsson.
Sigurbjörn hóf siðan veitinga-
rekstur I Klúbbnum. Klúbbnum
var lokað skömmu síðar vegna
einhverra misferla þar. Þá kom
Sigurbjörn til Húsbygginga-
sjóös Framsóknarflokksins og
féllst á lausn þessa máls, sem
var stórum hagstæðari fyrir
Húsbyggingasjóðinn en Sigur-
björn hafði áður viljað sam-
þykkja. Að þvi var gengið að
lána Sigurbirni til þriggja ára
kr. 2,5milljónir og losna þannig
við allar kröfur af hans hálfu.
Sumir menn eru að reyna að
gera það tortryggílegt, að þessi
sætt skyldi takast. Það er þó á
engan máta undarlegt. Augljóst
er,að Sigurbjörn var i vandræð-
um á þessum tima og kaus þá
fremur að fá þessa peninga að
láni en að standa i málaferlum,
sem voru vafasöm og heföu
tekið langan tima. Segja má
með nokkrum rétti, aö
Framsóknarflokkurinn hafi
notað sér erfiðleika
Sigurbjörns. Það er e.t.v. ekki
sérstaklega fallegt.
Kratar reyna svo að gera
þetta að stórmáli og segja, að
fjármálaleg tengsl flokksins og
Sigurbjörns séu sönnuð. Ef
Framsóknarflokkurinn hefði
selt þetta skuldabréf, þá skilst
mér, að tengslin hefði engin
verið. Slæmt væri það, ef allir
þeir aðilar, sem kunna i ein-
hverjum viðskiptum að eignast
skuldabréf væri þar með orðnir
meðábyrgir fyrir fjármálum
skuldandans. Nei, staðreyndin
er vitanlega sú, að Framsókn-
arflokkurinn losaði sig úr öllum
fjármálatengslum við Sigur-
björn Eiriksson, þegar leigu
hansá Frfkirkjuvegi 7 var lokið
og frá kröfu hans var gengið
með fyrrnefndri sátt og skulda-
bréfi.
Fjórmól
flokkanna og
fleiri spurningar
A Alþingi liggur nú tillaga um
athugun á fjármálum flokk-
anna. Ég er henni i öllum
meginatriðum fylgjandi. En
hún þarf einnig aö ná til hinna
fjölmörgu stofnana, sem sumir
flokkar hafa sett á fót. A bak við
hlutafélög má oftfela alls konar
óhreinindi.
Framsóknarflokkurinn hefúr
birt sina reikinga og mun gera
það áfram. Framsóknarflokk-
urinn á engin hlutafélög, en
reikningar stofnana flokksins,
einsog t.d. Timans og Húsbygg-
ingasjóðs, eru lagðir fram ár-
lega. Þar er ekkert aö fela.
Liklega hefur enginn flokku.r
stofnað eins mörg hlutafélög
eins og Alþýðuflokkurinn.
Hvað ætli þau séu mörg i
kringum rekstur Alþýðublaðs-
ins? Vildi ekki Vilmundur
Gylfason birta þann lista og
jafnframt lista yfir skuldir
þessara hlutafélaga i hinum
ýmsu lánastofnunum landsins?
Háværar raddir heyrast um
það, að þessar skuldir séu mjög
miklar og séu i mikilli óreiðu.
Eitt er a.m.k. vist, þessi hluta-
félög hafa hvert eftir annað
„farið á hausinn” og nýtt verið
stofnað til að halda starfseminni
áfram. Þetta minnir anzi mikið
á starfsaðferðir braskaranna,
sem stofna gjarnan hlutafélög,
hlaupa siðan frá þvi og stofna
nýtt og skilja allt eftir i rúst.
I sambandi við þetta mál
hefur um fjölmargt fleira verið
spurt. m.a. um þá einstaklinga,
sem að aöförinni hafa staðið.
Fáir þekktu t.d. Kristján
Pétursson áður. Nú hefur hann
hlotið þá frægð, sem hann efa-
laust sóttist eftir. Nú vilja menn
fá aö vita hver hann er þessi
„snjalli” maður, sem virðist
lita á sig sem eins konar yfir-
rannsóknarlögreglu. En fróð-
legt er að sjá viðbrögð mannsins
t.d. i Morgunblaöinu 14. april
s.l. Hann vildi alls ekki þola þaö,
sem hann þó ætlar öðrum. Hann
bregzt hinn versti við og telur
það nú hinn versta róg, að
nokkur skuli leyfa sér að spyrja
um störf hans. Hann er jafnvel
með hótanir: Óttast þeir, segir
hann, „að ég muni gera at-
huganir á þeirra starfsemi?”
„Heimreksturinn mun verða
auðveldur”, segir maöurinn.
Það er rétt, sauðirnir koma
venjulega sjálfir fram. Innrætið
leynir sér ekki. Ég var lengi i
vafa um það, hver væri
„kauði”. Nú má öllum vera það
ljóst.
Réttlát gagnrýni
og verðug
viðurkenning
Þvi miður er viða pottur
brotinn i okkar þjóðfélagi. Rétt-
lát gagnrýni og aðfinnslur eru
ekki aðeins æskilegar, heldur
nauðsynlegar. En sá, sem tekur
sér slikt fyrir hendur verður aö
vera vandanum vaxinn. Hann
verður að þekkja málið og geta
rætt um þaö hleypidómalaust.
Þetta er töluverður vandi. Þeim
vanda hefur Vilmundur Gylfa-
son ekki reynzt vaxinn.
Slik gagnrýni verður jafn-
framt ávallt að hafa það mark-
miö að rifa ekki niður megin-
stoðir okkar lýöræðisþjóðfélags,
heldur styrkja þær og efla. Þvi
miður hefur málflutningur fjöl-
miðlanna ekki verið þannig.
Það á efalaust verulega sök á
minnkandi trausti almennings á
ýmsum stofnunum og horn-
steinum þjóðfélagsins. Þetta er
varasöm þróun.
A sama hátt og sjálfsagt er aö
gagnrýna þaö, sem betur mætti
fara, ætti einnig aö vera sjálf-
sagt aö viðurkenna hitt, sem vel
er gert. Þetta virðist hinir sjálf-
skipuðu gagnrýnendur þjóðfé-
lagsinseiga ákaflega erfittmeð
að gera. Þeir virðast jafnvel
ekki beina skeytum sinum sizt
að þeim, sem vandaðastir eru.
Hvers er að vænta, þegar þann-
ig er unnið?
Ólafur Jóhannesson er án efa
einn vandaðasti stjórnmála-
maður, sem nú starfar hér á
landi. Hann er þekktur fyrir það
að athuga hvert mál mjög vel og
láta eigin sannfæringu ráða
gerðum sinum. Þetta þekkja
bæöi þeir, sem kynnzt hafa hon-
um sem kennara, eða sem
stjómmálamanni. Ólafur hefur
einnig sýntóvenju mikinn kjark
og viljafestu i erfiðum málum.
Staöreyndin er sú, að undan-
farin ár hefur hann staðið upp
úr að þessu leyti.
Þaö er satt að segja ekki mjög
sannfærandi, að þaö skuli verða
helzta markmiðið að reyna að
koma höggi á slikan mann og
helzt eyðileggja hans starf. Það
vekur ekki traust á flokki eða
mönnum, sem þannig starfa.
Sem betur fer tókst þetta ekki.
Hins vegar ættu menn aö draga
verðugan lærdóm af slikri
framkomu.
A
iS&J
Kópavogsbúar
Þeir sem vilja halda garðlöndum sinum
greiði gjöidin fyrir 15. mai n.k. á bæjar-
skrifstofunum (suðurdyr 3. hæð) kl. 9.30-
12 f.h.
Leigan er fyrir heilan garð ca. 300 fm kr.
2000.00, fyrir hálfan kr. 1200.00.
Garðyrkjuráðunautur.
yerndum
, líf
Kerndum,
Kotlendi/
LANDVERND
AuglýsM
í Timanum
Grósleppuveiðimenn
Erum kaupendur eða tökum i umboðssölu
söltuð grásleppuhrogn. Ennfremur kaup-
um við grásleppu eða óverkuð grásleppu-
hrogn á Reykjanessvæðinu.
Nánari
upplýsingar
UMBOÐS & HEILDVERZLUN
Borgartðn 29. Póslhólf 1128
Sfmors 23955. 26950, Rvík