Tíminn - 25.04.1976, Síða 8

Tíminn - 25.04.1976, Síða 8
8 TÍMINN Sunnudagur 25. apríl 1976 Járnnáman „Svarti engillinn” Járngrýtið er unniö hátt uppi I fjallinu. Umfangsmikil framtíðarspá fyrir Grænland Næstu fimmtán árin mun eiga sér staö merkileg þróun á Grænlandi. Margt bendir til að náttúruauð- lindir séu miklar á Græn- landssvæðinu. Kreppa og verðbólga, sem rikir í heiminum i dag bendir til þess að það geti bráðlega borgað sig að verja miklu fé til að nýta þær. Það sem fyrir nokkrum árum leit út fyrir að vera ómögulegt/ litur nú út fyrir að geta orðið að veruleika. Eitt af þvi, sem liklegt er til að ýta undir framkvæmdir. er loft- mengunin umhverfis jörðina. Hún hefur i för með sér, að lofts- lagið á Grænlandi verður hlýrra næstu 25 árin. Þvi miður geta hlý- indin tekið yfirhöndina. ef menn- ingarþjóðirnar hætta ekki að hleypa koltvisýringi út i and- rúmsloftið og dreifa i kring um sig eiturefnum. Þegar til lengdar lætur, má gera ráð fyrir að svo hlýtt verði á Grænlandi, að inn- landsisinn taki að bráðna. Það verður til þess að úthöfin hækka um marga metra og meiri hluti móðurlandsins, — Danmerkurifer i kaf. En slikt er sem betur fer ennþá svo fjarlægt. að það skygg- ir ekki á útlitið fyrir fjármála- ævintýri i nyrzta héraði Dan- merkur. Athyglisvert Danska varnarmálaráðuneytið hefur látið gera mikla skýrslu um framtiðarmöguleika Grænlands. Hvers vegna einmitt varnar- málaráðuneytið? Svarið er, að ráðuneytinu fannst, að til þess yrðu gerðar auknar kröfur um starfsemi við Grænland. Til að ■ era viðbúinn, verður að vita uvað á að vernda, hvaða eftirlit á að hafa með höndum og hvað hægt er að leggja að mörkum. Grænlandsmálaráðuneytið hef- ur svo mikinn áhuga á skýrslunni, að hún verður væntanlega gefin út i talsverðu upplagi. Ekkert i henni er talið ómögulegt eða óraunverulegt, en hins vegar get- ur enginn sagt um, hvort allar spár hennar verða að raunveru- leika. En undir öllum kringum- stæðum munu náttúruauðiindir Grænlands auka þýðingu lands- ins á flestum sviðum. Slikt hefur i för með sér auknar kröfur til landvarna. Skýrslan skiptist i kafla, sem hver um sig fjallar um einstök atriði hinnar miklu heildar. Einstök atriði Hérá eftir fara nokkur atriði úr skýrslunni: KOL: Góðar horfur eru á að tekin verði upp að nýju vinnsla kola á Grænlandi. Á Disko, þar sem áður var náma- gröftur. munu vera fjórar til fiimm milljónir lesta eftir. Á Nugssuaqskaganum gegnt Disko. eru um 30 milljónir lesta, sem hægt er að vinna. Verð á kolum gerir það að verkum, að æskilegt væri að nýta þessar auðlindir á Grænlandi. I skýrslunni er búið til dæmi. þar sem 1500 manns vinna við kolanámurnar. Það gæti þýtt að á Nugssuaqskaganum risi nýr 5000- 60oi manna bær. Verið getur að bezt borgi sig, að vinna kolin á staðnum, til dæmis að breyta þeim i fljótandi orku, sem siðan yrði flutt burt með tankskipum. ÚRANIUM: Fyrirsjáanlegur er skortur á úranium i heiminum. Verðið hækkar og fáar þjóðir liggja á forðanum. Hvort sem Danir ákveða að reisa kjarnorku- ver eða ekki, getur svo farið að þeir neyðist til að hefja úranium- vinnslu. I skýrslunni er bent á þá staðreynd, sem mönnum vill oft sjást yfir, að ábyrgð Dana við umheiminn, einkum i sambandi við aðildina að EBE og EURA- TOM, skyldar þá undir öllum kringumstæðum til að gera áætl- un og hefja vinnslu á úranium. Danir eru háðir oliu og kolum og það gerir auk þess að verkum, að þeir geta varla látið undir höfuð leggjast að leggja sitt að mörkum á alþjóðlegum grundvelli. JÁRN: Mikið járn er i jöröu m.a. við Isua i grennd við Góðvon. En ef það á að borga sig að vinna grænlenzkt járn, verður strax að. gera það i miklum mæli. Það þarf að vinna 22 milljónir lesta af járn- grýti árlega og fá úr þvi 10 milljónir lesta af járni. Flutning- ur járnsins krefst komu 100 skipa árlega, að minnsta kosti 100 þús- und lestir að stærð. Ef þetta ævin- týri verður að veruleika, hefur það i för með sér að upp ris hafnarborg, ef til vill með 12 til 15 þúsund ibúum. Þá þarf stórt raf- orkuver. OLtA og GAS: Vesturgrænlands- olian og jarðgasið gefa mikla möguleika. Ennþá veit samt eng- inn hversu mikið magn er af þvi undir fastalandinu. Það magn sem þegar er vitað um, er aðeins á litlu svæði, en þó munu að minnsta kosti 650 manns hafa atvinnu af þvi árið 1980 og ef meira finnst, hækkar sú tala fljótt. En erfiðleikarnir vegna lofts- lagsins eru miklir. Aðeins er hægt að vinna fáa mánuði ársins og rekis hindrar notkun stórra borpalla. Búizt er við, að annað hvort verði að nota neðansjávar- paLla eða borunarskip. Þau hafa þann kost, að þeim má sigla burt og nota þau við störf annars stað- ar yfir veturinn. Ef oliuævintýri hefst, þarf miklar birgðastöðvar i landi, Slikt veitir atvinnu, en krefst einnig góðrar stjórnar og flugn- ingsmöguleika. Ef siðar hefst oliuævintýri i Norður- og Austur- Grænlandi, sem er ekki ósenni- legt, koma upp önnur og meiri vandamál. Þá verður mjög erfitt að koma oliunni burt. Það er hægt með löngum leiðslum til næstu hafnar, sem er vel fær siglingum. Leiðslurnar yrðu að liggja ofan á frosinni jörðinni, sem þvi miður vill taka upp á þvi að þiðna undan svona mannvirkjum. Það vita menn i Kanada, Bandarikjunum og Sovétrikjunum af biturri revnslu. Ef jörðin þiðnar eitt- hvað, renna leiðslurnar til og springa. Ef til vill er lausnina að finna i einhverri framtiðargerð af kaf- bátum. 1 skýrslunni segir, að kjarnaofnar hafi gert kleift að ihuga þann möguleika að nota kafbáta undir heimskautaisnum, bæði til venjulegra flutninga og oliuflutninga. A þessari öld er tal- ið tæknilega mögulegt að taka i notkun kjarnorkuknúin flutninga- skip. Nú þegar eru i notkun 14 þúsund lesta kafbátar. V ATNSAFL: Vatnsaflið á Grænlandi getur haft miklu hlut- verki að gegna. Fram til þessa hafa ekki verið reist vatnsorku- ver. Bæirnir eru of litlir. En ef hægt er að koma upp orkufrekum iðnaði i grennd við stórt vatns- orkuver, getur slikt borgað sig. Við Julianeháb gæti stórt orkuver knúið framleiðslu úraniums frá Kvanefjeld. Við Góðvon gæti það nýtzt til vinnslu járnsins. Zink- framleiðslan hefði betri mögu- leika ef orkuver á staðnum ætti þátt i henni og hið sama gildir um álið. Þá má nota rafmagnið til framleiðslu ammoniaks, metan- ols, fljótandi vetnis eða gervi- bensins. Allt þetta má flytja frá Grænlandi i þægilegu formi. Að- eins framleiðsla tilbúins áburðar úr ammoniaki gæti létt gjald- eyrisbyrði Dana um 18 milljarða (isl.) króna árlega, en það er sú upphæð, sem áburður er fluttur inn fyrir. FISKVEIÐAR: BÚizt er við að niðurstaða hafréttarráðstefnunn- ar verði sú, að ákveðin verði 200 milna efnahagslögsaga og 50 til 200 milna fiskveiðilögsaga. Þar með eru frjálsar fiskveiðar úr sögunni og danski fiskveiðiflotinn lendir i klemmu i Norðursjónum. Hægt er að imynda sér, að hluti hans — og talsvert meira af fær- eyska flotanum en nú er — leiti á grænlenzk mið, jafnframt þvi sem grænlenzki flotinn verði stækkaður. Þó eru vandræði með fiskistofnana. En til dæmis eykst nú rækjuveiðin og vekur alþjóða- athygli. Ef lögsagan verður stækkuð, missa Portúgal, Noregur, Sovét- rikin og Þýzkaland veiðiréttindi á þessu stóra svæði, sem þá þarf að vernda og lita eftir. Það hefur i för með sér aukin umsvif danska sjóhersins. DRYKKJARVATN: Möguleik- ar til að flytja út drykkjarvatn frá Grænlandi eru fyrir hendi. Tæknifræðingar hafa i fyllstu al- vöru rætt möguleikana á að draga borgarisjaka til stórborga um þúsund kilómetra veg, vegna þess að litið er um drykkjarvatn i borgunum. Þegar þarf að sækja drykkjarvatn New York-búa nokkur hundruð kilómetra leið. En það eru þó takmörk fyrir þvi, hvað mikið drykkjarvatn má flytja frá Grænlandi. Flutning- arnir ganga hægt — aðeins eina milu á klst — og jakarnir minnka um helming á leiðinni. Auk þess eru allgóðar birgðir af grunnvatni i N-Ameriku og einnig er hægt að hreinsa mengað árvatn, þótt slik hreinsun sé ýmsum vandkvæðum bundin enn sem komið er. En þó er ekki alveg loku fyrir það skotið, að Grænlendingar geti flutt út drykkjarvatn i formi iss. Mengun t skýrslu varnarmálaráðu- neytisins er fjallað á mjög alvar- legu máli um mengunarhættuna, sem getur orðið við Grænland. ef iðnaðurinn eykst og umferðin verður mikil. Heimskautasvæðin eru sérlega viðkvæm fyrir meng- un og ef tjón verður, tekur mörg ár að bæta það. En einmitt þessi svæði eru svona viðkvæm, vegna þess að veðrið yfir N-Atlantshafi og Evrópu veröur til þarna. Gerum okkur i hugarlund, að stórt tankskip hlaðið oliu farist i isnum og olian breiðist um stórt svæði og liti isinn. Þá á sólin góðan leik og bræðir dökkan isinn auðveldlega. Slikt getur haft i för með sér veðurfarsbreytingu i Evrópu um nokkurn tima. Ef isinn heldur oliunni undir yfirboröinu, bera hafstraumar hana um öll Norðurhöfin og þar sem sjórinn er kaldur, munu liða ein 50 ár, þar til olian er að fullu brotin niður. Þau efni i oliunni, sem fljótast leysast upp, eru jafn- framt þau eitruðustu og geta eyðilagt mikinn hluta átunnar, sem sjávardýrin lifa á. Þarna geta orðið náttúruhamfarir. Þess vegna hefur til dæmis Kanada um sinn hætt við allar áætlanir um auknar siglingar eftir norðvesturleiðinni á is- styrktum tankskipum. 1 skýrslunni segir, að koma megi i veg fyrir alvarlega meng- un heimskautasvæðanna með ströngum alþjóðasamþykktum. Það er nefnilega erfiðara að bæta mengunartjónið, þegar það er orðið. En varnirnar krefjast sam- starfs nálægra landa, Bandarikj- anna, Kanada, tslands, Dan- merkur, Noregs og Sovétrikj- anna. Skýrslan sýnir, að gott útlit er fyrir mikla þróun á Grænlandi á næstu árum. En spurningin er, hvernig á að snúa sér við þetta allt saman. Bent er á, að verkefn- in séu svo stór, að ekki sé hægt að framkvæma þau á þjóðargrund- velli. Fjármálin koma i veg fyrir það. Ef hafa á hönd i bagga með öllu, sem á að gerast, verða Dan- mörk og Grænland að undirbúa sig vel og i hvert sinn, sem gefið er grænt ljós fyrir framkvæmdir, verður að tryggja, að þau fyrir- tæki, sem taka að sér vinnsluna, greiði einnig það mikla skatta, að Danir geti veitt nauðsynlega þjónustu á öllum sviðum. Skýrslan greinir ekki i smá- atriðum frá hlutverki varnar- málaráðuneytisins i þessu öllu. Það getur þó verið allt frá fiski- rannsóknum og eftirliti með oliu- borun, til umferðarstjórnunar, fjölmiðlunar, björgunarstarfsemi og umhverfisverndar. Séð er fyrir i skýrslunni, að eftirlit frá stöðvum i landi, skip- um og flugvélum er ekki nóg, þegar til lengdar lætur. Bent er á, að gervihnettir séu svo hentugir til eftirlits og skráninga umferðar á sjó og landi, að vel komi til mála að taka þá i notkun, þegar mál sé til komið. Höfundar skýrslunnar Ijúka henni með þvi að spyrja: Hvernig er hægt að framkvæma þetta allt með tilliti til grænlenzka þjóðfé- lagsins? Bent er á, að Danmörk með alla sina menningu eigi að skrá, vernda og varðveita náttúru Grænlands og önnur verðmæti, áður en stjórnlaus eyðilegging hefjist. Þegar um er að ræða að halda uppi lögum og reglu, er andstæðan stjórnleysi og upp- lausn. Og þá er vandinn ekki hvort standa eigi fast á réttindum sinum og skyldum, heldur hvernig eigi að gera það. Þetta eru athyglisverð orð, þegar þess er gætt, hvað skýrslan tekur yfir risavaxna framtiðarspá. (ÞýttSB) Hjá danska varnarmálaráðuneytinu hefur veríð gerð skýrsla, byggð á vísindalegum rannsóknum, sem voru gerðar á Grænlandi. Hún þykir svo merkileg, að nú er hún væntanleg i bókarformi og á að heita „Grænland framtíðarinnar, auðlindir og umhverfi í samhengi"

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.