Tíminn - 25.04.1976, Side 12

Tíminn - 25.04.1976, Side 12
12 TÍMINN Sunnudagur 25. april 1976 Keykjavikurdömur á göngu um borgina. Gísli Sigurðsson sýnir í Listasafni Árnes- Bóndi ieggur Ijá á hverfistein. Islendingasagna. Sjóróöramenn og landslag, með draumlyndu, súrrealistisku ivafi voru lika kærkomið myndefni. Ég átti þess kost að skoða gaumgæfilega þær myndir, er hann sýnir nú á Selfossi. Þar greinir maður framför. Liturinn er fjölskrúðugri og gefur mynd- inni visst innihald, sem áður var sjaldgæfara, þarsem stuðzt var meira við teikningu en listaval. Myndefnin eru ekki lengur af frægum viðburðum tslendinga- sagna, heldur er hinn gráklæddi hversdagsmaður nú leiddur til öndvegis. Maður situr á rúminu slnu og sýslar við net. Konur standa álengdar og bíóm eru i pottum úti I glugga. Mynd er af fjallkóngí úr Gnúpverjahreppi og einsetumanni ofan úr Biskupstungum. Kona situr i eldhúsi millistriðsáranna og hugsar. Dregið er úr poppáhrif- um, og stillinn virðist markviss- ari og persónulegri. Þarna kemur það sér vel að Gisli nauðaþekkir sveitallfið, önn þess og munað. Ef litið er á sýninguna sem heild, sést að þarna fer málari, sem yfirvegar og vandar si'na vinnu, en lokar þó ekki augunum fyrir nýjum tiðindum utan úrheimi. Þótt hér hafi verið sagt, eða talið, að Glslihafieinn ákveðinn dag far- ið að ganga allt i haginn i mál- verkinu, þá hefur hann ekki komizt fyrirhafnarlaust gegn- um list sina og málverk. Þessi sýning verður að teljast merki- legur áfangi I leitinni miklu, sem er daglegt og árlangt við- fangsefni þeirra er langt vilja ná f listum. Sýningin opnaði 24. aprll I Lista- og minjasafni Arnessýslu á Selfossi, og mun hún standa i tvær vikur. Jónas Guðmundsson. sonar. Það fór að birta til í mál- verkinu, og hinar hræðilegu myndir, sem málaðar höfðu verið gegnum tiðina fram til þessa, urðu nú allt i einu liðin saga. Nýir timar og meiri voru runnir upp. Hjá mörgum myndlistar- mönnum er list þeirra i hægri umsköpun. Reynslan kennir okkur, að stökkbreytingar eru yfirleitt óæskilegar. Menn ganga hægttil fundar við ný við- horf og eru á verði, þeir vilja gjarna fikra sig áfram og til- einka sér eitt og annað, án þess aö glata i staöinn sérkennum sinum og persónu i litklæðum tizkunnar. Hjá Gisla Sigurðs- syni gerðist þetta með öðrum hætti. Það tók hann aðeins einn dag að verða að liðtækum mál- ara. Hann hitti semsé á óska- stundina, og eins og þegar meistari Þórbergur orti kvæðið undir ljósastaurnum og nýtt skáld var borið i heiminn. Við hin skyndilegu umskipti fór áhugi Gisla Sigurðssonar á myndlistum að aukast, og sfðan hefur hann unnið stöðugt að myndlist, bæði að myndskreyt- ingum i blað sitt Lesbókina, og svo hefur hann skreytt bækur, þar á meðal fyrir undirritaðan, og má segja, að hann hafi með árunum náð verulegum árangri i teikningu og lýsingu sagna og bóka, og svo halda málverkin á- fram að verða til, hægt ög markvisst. Gisli hefur haldið nokkrar opinberar málverkasýningar, og hann hefur tekið þátt i sam- sýningum Félags isl. myndlist- armanna, haustsýningum þeirra. Hæst ber sýningu hans, sem hann hélt i Norræna húsinu fyrir þrem árum, eða svo. Þá hefur hann einnig sýnt er- lendis, og myndir hans prýða heimili og stofnanir viða um landið. Nýr þjóðlegur still Eftir að Gisli Sigurðsson hafði komizt upp á lag með málverk- ið, hélt hann sig lengi við mynd- stil, sem byggði á formteikn- ingu, svipað og t.d. Einar Hákonarson, Eirikur Smith og fl. hafa tileinkað sér. Þarna má greina poppáhrif auk annars. Aðurnefndir listamenn eru þó ekki höfundar umræddrar lista- stefnu, en hún er jafngóð fyrir það. Myndefni sótti hann m.a. i þjóðsögur, atriði úr ýmsu pexi sýslu á Selfossi UM ÞESSAR mundir stendur yfir sýning á málverkum Gisla Sigurðssonar i Lista- og minja- safni Arneshrepps á Selfossi. Þar sýnir hann 25 myndir. Gislier Bis'knpstungnamaður, fæddur i úthliö i Biskupstung- um árið 1950, og að afloknu skólanámigerðist liann fuiltrúi i Landsbankanum á Selfossi á ár- unuin 1953—1955, er hann varð blaöamaður hjá Samvinnunni. Arið 1959 varð hann ritstjóri Vikunnar, en hefur nú seinustu árin veriö ritstjórnarfuiltrúi við Morgunblaöið, þar sem hann ritstýrir Lesbók Morgunblaðs- ins. Kona Itans er Jóhanna Bjarnadóttir úr Gnúpverja- hreppi. Þau búa í Garðabæ með börnum sinum. ‘ Það mun hafa verið nokkuð snemma, sem hugur Gisla Sig- urðssonar hneigðist aö mynd- listum. Hann stundaði um hrið nám við Handiða- og myndlist- arskólann og málaði vond, þunglamaleg máiverk, sem hann gaf vinum sínum. öllu betur gekk honum við teikningu, en þó var það i rauninni fátt, sem benti til þess að hann ætti eftir að verða hlutgengur mynd- listarmaður með þjóð sinni. Dagarnir og árið liðu við brauð- strit og yfirvinnu, eins og hjá flestum öðrum ungum mönnum þá og nú. Hann málaöi fremur litið — alltaf samt eitthvað. Það mun hafa verið fyrir um það bil áratug eöa svo, sem tið- indi gerðust I list Gisla Sigurðs- Gisli Sigurðsson Bændur athugið 2 duglegir strákar, 11 og 13 ára, óska eftir plássi i sveit, þarf ekki að vera á sama stað. Annar gæti byrjað 20. mai. Simi 7-35- 47 eftir hádegi. Jörð óskast Viljum taka á leigu góða jörð. Allir staðir á landinu koma tilgreina. Kaup á áhöfn og vélum eru æskileg, hús mega þarfnast viðgerðar. Þeir sem hafa áhuga sendi til afgr. Tim- ans i Reykjavik upplýsingar sem máli skipta fyrir 1. júni merkt Landbúnaður — 1977. Fyrsta einkasýning erlends listamanns á Kjarvalstöðum var opnuð ígær, en það er finnska listakonan Terttu Jurvakainen sem sýnir þar málverk sin. Sýningin verður opin til 9. mai. Terttu Jurvakainen er vel þekkt I heimalandi sinu, þar sem hún hefur haldið ótal sýningar, en einnig hefur hún sýnt i Þýzka- landi og Sviþjóð, auk þess sem hún hefur tekið þátt I mörgum samsýningum i Finnlandi og i öðrum lönd- um. Myndirnar á sýningunni eru flestar til sölu. Tlmamvnd Gunnars sýnir listakonuna við eitt verka sinna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.