Tíminn - 25.04.1976, Side 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 25. aprll 1976
hann værí slikur svikari.
Þau sáu það nú, að þau
höfðu verið göbbuð með
fölskum farmiðum inn i
Mið-Afriku, sem lengst
frá venjulegum sam-
gönguleiðum. Árna
virtist, að út úr þessi
lægi engin önnur leið en
taka sér far aftur sömu
leið til Matadi, þótt það
væru harðir kostir.
Hann kveið fyrir að
Berit myndi taka þetta
nærri sér. Ferðin hingað
hafði verið henni mjög
erfið og þeim báðum, og
eiga nú að fara sömu
leið til baka.
Hann gat varla hugsað
til þess að koma aftur til
Matadi og verða
kannski að búa hjá
maddömu Mörtu i þessu
sóðalega húsi, ef til viU
vikur og mánuði, þar til
eitthvert skip kæmi þar,
sem legði leið sina til
Ameriku.
Hanngatvarla hugsað
til þess að koma aftur til
Matadi og verða kannski
að búa hjá maddömu
Mörtu i þessu sóðalega
húsi, ef til vill vikur og
mánuði, þar til eitthvert
skip kæmi þar, sem
legði leið sina til Ame-
riku.
I vandræðum sinum
sneri hann sér að Harry
Douglas og spurði, hvað
hann áliti, að þau ættu
að gera.
„ Já, það er nú einmitt
Með hinu hagstæða
afmælisverði á Skoda
— er hægt að hafa
2 bi/a á heimilinu.
SKODA 100
verð
ca. kr.
630.000.
til öryrkja
ca. kr. 460.000.
Shodr
j tilefni af því að 30 ár eru síðan fyrsti
Skodinn kom til landsins,
hefur verið samið við SKODA
verksmiðjurnar um sérstakt
afmælisverð á takmörkuðu magni
af árgerðum 1976.
5000asti SKODA bíllinn verður
fluttur inn á næstunni.
Hver verður sá heppni?
SKODA 110L
verð ca. kr. 670.000.—
til öryrkja ca. kr. 492.000.—
SKODA 110LS
verð ca. kr. 725.000.—
til öryrkja ca. kr. 538.000.—
SKODA HORCoupé
verð ca. kr. 797.000.—
til öryrkja ca. kr. 600.000.—
TEKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44 - 46 KÓPAVOGI SÍMI 42600
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ Á AKUREYRI H/F. ÓSEYRI 8.
EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.
Anton Mohr:
Árni og Berit
Ævintýroför um Afríku
það, sem ég brýt heilann
um,” svaraði Englend-
ingurinn.
„Ég skil það vel, að
ykkur langar ekki til
baka aftur til Matadi.
Mér dettur nú i hug,
hvort Ibrahim, gamli
vinur minn i Kongolo,
getur ekki hjálpað ykk-
ur. — Ibrahim er mjög
rikur, arabiskur kaup-
maður,” hélt hann á-
fram. „Hann rekur við-
skipti um alla Mið- og
Austur-Afriku. Fyrr á
árum var hann þekktur
þrælakaupmaður, en nú
held ég, að hann hafi
aðallega lögleg við-
skipti. Einkum verzlar
hann mikið með fila-
bein. Auk þess er hann
trylltur i alls konar
veiðiskap. Ég veit, að
Ibrahim fer margar
ferðir árlega milli Kong-
olo og Tanganyika, og
alltaf með mikið fylgd-
arlið. Ef þið yrðuð svo
heppin að fá að vera
með honum, þá gætuð
þið ekki fengið betri
samfvlgd. í þessari ferð
gætuð þið lika komizt i
hættuleg veiðiævintýri
—- veiðiför, sem allir at-
vinnuveiðimenn frá
Evrópu myndu stóröf-
unda ykkur af. Ibrahim
þekkir frumskógana og
dýr skógarins betur en
nokkur annar. En nú
veltur á þessu þrennu:
Er Ibrahim nú i Kong-
olo? Á hann bráðlega
leið til Tanganyika? Og
það, sem mest veltur á:
Vill hann leyfa ykkur að
vera með I slikri ferð? —
Siðasta atriðið held ég
annars, að ég geti ráðið
nokkru um,” bætti hann
við að lokum brosandi.
„Undanfarandi ár hef
ég haft svo mikil við-
skipti við Ibrahim, að
það væri ekki mikið, þótt
hann tæki ykkur með
min vegna. Svo mikið
hefur hann grætt á mér.
Auk þess veit ég það, að
enginn maður stendur
betur að vigi en Ibrahim
með að leiðbeina ykkur
um framhald ferðarinn-
ar frá Tanganyika. Ef
hann tekur ykkur með,
þá megið þið treysta
honum fullkomlega.”
Það var eins og birti
yfir Árna, þvi lengur
sem Englendingurinn
talaði. Hér virtust
möguleikar til að halda
ferðinni áfram, og fram-
undan voru ef til vill
meiri ævintýri en hann
hafði nokkurn tima
dreymt um. Að hugsa
sér það, ef hann fengi að
ferðast um frumskóg-
ana með hópi af fyrrver-
andi þrælaræningjum,
og fá að vera með i
veiðiferðum svo spenn-
andi, að mestu veiði-
menn Evrópu gætu
gulnað af öfund yfir að
hafa ekki átt þess kost
að vera með. Bara að
Ibrahim væri nú i Kong-
olo og ætti bráðlega leið
austur!
4.
Það virtist svo sem
lánið léki nú við systkin-
in. Þegar þau, þrem
dögum siðar, komu til
Kongolo, var Ibrahim
þar, og það, sem mest
var um vert: Eftir fjóra
daga hafði hann ákveðið
að fara til Tanganyika.
Eftir tilmælum Harry
Douglas, ákvab hann
strax að taka þau Árna
og Berit með. Hann ætl-
aði sjálfur að hafa með
sér son sinn. Abdullah,
dreng á sama aldri og
Árni og bróður sinn,
Muhamed. Auk þess
hafði hann ekki færri en
90 burðarmenn og f jölda
af múldýrum og hestum.
Það breytti þvi litlu, þótt
tvöböm bættust við hóp-
inn. Ferðin skyldi heldur
ekki verða þeim dýr.
„öðm hvoru leikur
gæfan við mann,” hugs-
aði Ámi. Hann gat varla
ráðið við sig fyrir til-
hlökkun. Berit, sem
fyrst var dálitið hikandi,
smitaðist ósjálfrátt af
bjartsýni Árna.
Til þess að vita vissu
sina, fór Árni og spurðist
fyrir um, hvort farmið-
amir væru gildir. En
það sýndi sig, að Eng-
lendingurinn hafði haft
rétt fyrir sér. Þeir voru
ekki virði pappirsblaðs-
ins, erþeir voru skrifað-
ir á. — Samkvæmt ráði
Englendingsins kærði
Árni svikin fyrir lög-
reglunni og afhenti far-