Tíminn - 25.04.1976, Side 27
Sunnudagur 25. aprfl 1976
TÍMINN
27
miðana til sanninda-
merkis. Hann hafði þó
litla von um að fá pen-
inga sina nokkum tima
aftur. Það er langt á
milli Kongolo og Matadi
og auk þess var Grim-
aldi liklega þaulæfður
falsari.
Ibrahim var um sex-
tugt, risi að vexti og
kempulegur. Augun
voru dökk og svipurinn
alvarlegur. Þeldökkt
andlitið var eins og inn-
rammað i gránað al-
skegg. Á höfðinu hafði
hann grænan vefjarhatt
(turban). Var það merki
þess, að hann hefði farið
pilagrimsferð til Mekka.
Hann var i skykkju úr
hvitum ullardúk eins og
Arabar klæðast venju-
lega, og eins var Abdull-
ah sonur hans, en við
hans skykkju var áföst
hetta. Ibrahim talaði á-
gætlega ensku, en sonur
hans gat aðeins sagt fá-
ein orð á ensku.
Ibrahim ráðlagði
Árna að fá sér reiðbuxur
úr ensku leðri og hnéhá
leðurstígvél. Hann
sagði, að þetta væri löng
og erfið ferð og fötin
slitnuðu mikið, þegar
verið væri á hestbaki
dag eftir dag. Berit
spurði, hvort hún gæti
verið i „tveed”-buxun-
um, sem hún keypti i
Las Palmas. Ibrahim
hélt, að þær myndu
duga, ef þær væru
klæddar innanlærs með
skinni, annars gætu þær
slitnað við ásetuna. Hún
þurfti lika að fá sér hné-
há stigvél.
Við allt þetta umstang
hurfu þessir f jórir dagar
i Kongolo áður en varði.
Harry Douglas hafði
haldið áfram lengra upp
eftir fljótinu, og sáu þau
hann þvi miður aldrei
framar.
5.
Við sólarupprás 23.
júni lagði þessi langa
lest upp. Þetta var
myndarlegur hópur. Á
undan aðallestinni riðu
þrir alvopnaðir Arabar.
Þeir voru vopnaðir lang-
skeftum, öxum og hlöðn-
um rifflum. Þeir áttu
fyrst og fremst að ryðja
úr vegi ýmsum hindrun-
um, svo sem trjágrein-
um og vafningsjurtum,
en að hinu leytinu áttu
þeir að verja flokkinn
fyrir alls konar hættum,
sem á vegi yrðu, annað
hvort af völdum dýra
eða manna. Næstur
þeim reið svo Ibrahim
sjálfur á fögrum gljá-
svörtum gæðingi. Að
baki honum komu svo i
þéttum hópi Muhamed,
bróðir Ibrahims, Ab-
dullah og Árni og Berit.
öll voru þau á ágætum
gæðingum.
Þvi næst kom löng lest
af negrum og múldýrum
með sinar byrðar. Allir
negrar — baeði konur og
menn — bera byrðar
sinar á höfðinu. Það
telja margir, að negra-
stúlkur séu þess vegna
svo beinvaxnar og
fjaðurmagnaðar i gangi.
Meðal ómenntaðra
negra eru það fyrst og
fremst konumar, sem
bera farangur i ferða-
lögum. Allt frá þvi að
þær vom böm, hafa þær
vanizt þvi að bera þung-
ar byrðar á höfðinu. Allt
vatn bera þær á höfðinu
til hibýla sinna. Smátt
og smátt fá þær svo
mikla æfingu, að það er
aðeins á mjög ósléttum
vegi, sem þær þurfa að
styðja byrðina með
höndunum. Nú gengu
burðarmennirnir eða
burðarfólkið i einni
halarófu, sem hlykkjað-
ist i gegnum frumskóg-
inn eins og slanga. Allir
voru i ljómandi skapi og
mösuðu, sungu og hlógu,
þrátt fyrir allþunga
byrði. Það veitti heldur
ekki af þvi að byr ja ferð-
ina i góðu skapi, þvi að
ferðin gegnum frum-
skóginn er bæði erfið og
hættuleg og getur lika
orðið tilbreytingalaus og
þreytandi.
6.
Héraðið milli Kongolo
og Tanganyika kallast
Manjema. Það er mjög
mishæðótt og þar eru
margar ár, sem falla i
djúpum giljum, og aust-
an til ná fjöllin allt að
3000 metra hæð. Mikill
hluti landsins er þakinn
þéttum frumskógi, sem
mjög erfitt er að ferðast
um. Á stöku stað eru þó
allstór, skóglaus svæði
og viðlendar sléttur. Á
þessum sléttum fer
fram aðal-ræktunin i
þessum hitabeltissvæð-
um. Nú á timum er þar
lika talsvert af skepn-
um. Manjema er þannig
eftir Afriku-staðháttum
fremur þéttbýlt land.
Fýrr á öldum voru ibúar
Manjema allra ferða-
manna ógn, vegna þess
orðs, sem fór af grimmd
þeirra, og auk þess voru
þeir mannætur. Hver ó-
vinur, sem féll i þeirra
hendur, var umsvifa-
laust drepinn og étinn,
en óvini töldu þeir alla
aðkomumenn. Nú taka
þeir ferðamönnum frið-
samlega, en þeir lita þó
enn mjög villimannlega
út. Þeir hafa þann sið að
mála sig alla um likam-
ann með rauðum og blá-
um litum, en auk þess
skreyta þeir sig með
festum úr mannabein-
um, hnútum, kögglum,
hauskúpum og svo renn-
ingum af rándýrsfeld-
um.
Þegar Berit sá i fyrsta
sinn Manjema-mann,
fannst henni að aldrei
hefði hún séð hræðilegri
mannveru. Helzt minnti
þetta á ljótt dýr. Liklega
finnst þessu fólki hið
sama, er það sér hvitu
mennina i öllum þessum
margbreytilega fatnaði.
Liklega halda þeir, að
þetta komi af þvi, að
hvitir menn fremji ein-
hvers konar galdra og
fordæðuskap. Hjá þeim
klæðast engir nema
galdramenn og kuklar-
ar, er þeir fremja listir
sinar.
Þessir skógartroðn-
ingar, sem Ibrahim og
flokkur hans fylgdi, lá
fyrst beint i austurátt
frá Kongolo. Flestar
árnar komu þama frá
suðaustri og runnu i
norðvestur, og varð þvi
að fara yfir marga
djúpa dali og straum-
harðar ár. Leiðin lá þvi
mikið upp og ofan hálsa
og hæðir, og var það
þreytandi, bæði fyrir
fólk og fararskjóta.
Loftleiðin frá Kongolo til
Tanganyika er um 250
km., en leiðin i gegnum
frumskógana er svo
krókótt og mishæðótt, að
gera má ráð fyrir að
vegalengdin tvöfaldist.
Ekki mátti gera ráð
fyrir að fara nema 30
km. á dag, og var þvi
sýnilegt að ferðin myndi
taka marga daga, þótt
allt gengi sæmilega.
En leiðin var alls ekki
hættulaus. Strax fyrsta
kvöldið fengu systkinin
átakanlega sönnun þess.
Það var komið nálægt
sólarlagi. Frumskógur-
inn var kyrr og þögull.
Allt i einu heyrðist ein-
kennilegt, reglubundið
hljóð. Það voru ógreini-
leg, dimm „trumbu-
slög”, sem virtust koma
úr skóginum vinstra
megin við skógarslóð-
ina. Þessum hljóð-
merkjum var strax
svarað frá hægri hlið
vegarins, og seinna var
tekið undir i skóginum
fram undan. Þessi
„trumbuslög” voru
regluleg og hljómuðu
eins og fyrirfram ákveð-
ið merkjamál, enda
voru þetta hljóðmerki.
Það er margsannað,
að ýmsir ættstofnar,
sem lifa afskekktir i
frumskógum hitabeltis-
landanna, hafa mjög
fullkomið merkjakerfi.
Geta þeir með mismun-
andi tónhæð og alls kon-
ar hljóðbreytingum, þar
sem hver og einn endur-
tekur boðin, hvar sem
hann er staddur, komið
alls konar tilkynningum
ótrúlegar vegalengdir á
f ‘sparið' ^
r
J
þúsundir
kaupið
!■
1
Sumar
dekk
Nokkur verðsýnishorn af
fjölmörgum stærðum okkar af
sumarhjólbörðum:
STÆRÐ VERÐ FRA KR:
5.60-15 5.680-
5.0 -15 5.210-
155-14 5.600 -
590-13 5.550 -
560-13 5.950-
645/165-13 7.050-
550 -12 4.700-
RADIAL: 165SR15 8.150-
185 SR14 9.980-
155 SR14 6.370-
155 SR13 6.260-
145 SR13 6.230-
Öll verð eru miðuð við skráðgengi U.S.S: 178.80
TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐIÐ
Á /'SLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44 — 46 KÓPAVOGI SIMI 42606
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆOIO A AKUREYRI H/F OSEYRI 8
EGILSTAOIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR
GARÐABÆR NYBARÐI H/F GARÐABÆ
Verksmiðjan
,, 'Armúla 16
jArmúlí
Suðuriandsh,
'SST'arma «
PLAST^
NÝJUNG: NÓTAÐ VARAAAPLAST
MEÐ LOFTRASUM