Tíminn - 30.04.1976, Side 9
Föstudagur liO. april 1076
TÍMINN
9
17. lands-
þing SVFÍ
Landsþing Slysavarnafélags
íslands, það 17. í röðinni, verður
sett i húsi félagsins á Granda-
garði i Reykjavik föstudaginn 30.
april kl. 15.30 að undan-
genginni guðsþjónustu, sem hefst
kl. 14.00 i Dómkirkjunni.
Sérstakir gestir þingsins verða
forseti Islands dr. Kristján
Eldjárn og frú, dr. Gunnar
Thoroddsen félagsmálaráðherra
og frú, biskupinn yfir Islandi dr.
Sigurbjörn Einarsson og frú,
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri og frú og fleiri.
Þingfulltrúar verða alls um 130,
en deildir félagsins eru nú um 200
talsins um land allt. Félagatala
er um 30.000 manns, svo að SVFl
er meðal öflugustu áhugamanna-
samtaka á landinu. Björgunar-
sveitir félagsins eru orðnar 79 og
björgunarskýli af öllu tagi eru
samtals 96.
A dagskrá fyrsta fundarins
flytur forseti félagsins, Gunnar
Friðriksson, skýrslu um
starfsemi félagsins á siðasta ári
og drepur einnig á það, sem
brýnast er úrlausnar um þessar
mundir og verður á næstunni.
Heiðursgestir þeir, sem getið er
hér að ofan, munu einnig flytja
ávarp að lokinni ræðu forseta.
Þá verða lagðir fram reikning-
ar félagsins fyrir árið 1975 og
fjárhagsáætlanir fyrir árið 1976
og 1977, og loks mun Hjálmar R.
Bárðarson siglingamálastjóri
flytja erindi um öryggismál
sjófarenda.
(Fréttatilkynning)
Hagsveifluvog iðnaðarins:
Hagur iðnfyrirtækja
hefur farið versnandi
og innheimta sölu-
andvirðis gengur illa
Nýlega kom út Hagsveifluvog
iðnaðarins tekin saman af Félagi
islenzkra iðnrekenda og Lands-
sambandi iðnaðarmanna. Tima-
bilið, sem hún nær yfir, er 4.
ársf jórðungur 1975 og árið 1975 I
heild.
Niðurstöður Hagsveifluvogar-
innar benda til, að lltils háttar
framleiðslumagnsaukning hafi
orðið á árinu 1975 miöað við 1974
eða um 2-3% samkvæmt þeim
upplýsingum, sem bárust um
hlutfallslega breytingu fram-
leiðslumagns. Er þetta lægri hlut-
fallstala en árið áður, en þá
reyndist framleiðsluaukning vera
um 5%. Aukningin var mest i
prjónavöruiönaöi, málmiðnaði og
skipasmiðum og viögerðum.
H i ns vegar varð minnkun I sútun
og verkun skinna og steinefna-
iðnaði.
Nokkur framleiösluaukning var á
4. ársfjórðungi 1975 miðað við 3.
ársfjórðung oger þarum svipaða
aukningu að ræða og áriö áöur, þó
heldur minni. Ekki er gert ráö
fyrir,aðum neina verulega fram-
leiðsluaukningu verði að ræða i
iðnaðinum á 1. ársfjórðungi 1976,
en gert er ráö fyrir, að fram-
leiðslumagniö verði mjög svipað
og á síðasta ársfjóröungi 1975.
Fyrirliggjandi pantanir og
verkefni voru töluvert minni I
árslok 1975 en 30. sept. 1975 og er
nettóniðurstaða könnunarinnar
sú, að fyrirtæki með 26% mann-
aflans hafa minna af fyrir-
liggjandi verkefnum. Fyrir einu
ári var nettóniðurstaöa sú, að
fyrirtæki með 32% mannaflans
höfðu minni fyrirliggjandi verk-
efni i árslok en 30. sept.
Birgðir fullunninna vara jukust á
4. ársfjórðungi 1975. Sömu sögú er
að segja um birgðir hráefna, þó
jukust þær minna en birgðir full-
unninna vara.
Minnkun varð á starfsmanna-
fjölda á 4. ársfjórðungi 1975
miöað við 3. ársfjórðung. Ekki
var gert ráð fyrir breytingu á 1.
ársfjórðungi 1976. Er hér um að
ræða sömu niðurstöðu og var
siðastliðiö ár en öfugt við það,
sem vogin sýndi árin þar á undan.
Venjulegur vinnutimi var svo til
óbreyttur I lok 4. ársfjórðungar
miðaö við 3. ársfjórðung 1975.
Nýting afkastagetu var lakari i
lok 4. ársfjóröungs en I upphafi
hans. Nettóniðurstaða könnunar-
innar er, að fyrirtæki með 13%
mannaflans telja afkastagetuna
lakari.
Innheimta söluandvirðis hefur
versnað nokkuð á 4. ársfjórðungi
miðað við 3. ársfjórðung og er
nettóniðurstaðan, að fyrirtæki
með 28% mannaflans telja
innheimtuna ganga verr en 30.
sept. Sambærileg þróun hefur átt
sér stað undanfarin ár. Er sem
áöur, að þetta er mest áberandi
hjá fyrirtækjum, er skipta aðal-
lega við útgerðarfyrirtæki og
önnur fyrirtæki tengd sjávar-
útvegi. En slfellt bætast nýjar
greinar verksmiðjuiönaðarins við
og nú er svo komið, að þetta á við
um allar greinar.
Fjárfestingarfyrirætlanir fyrir-
tækjanna voru þær sömu I árslok
1975 og i upphafi þess árs. Fyrir-
tæki með 43% mannaflans svör-
uðu þeirri spurningu játandi.
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag
Norður-Þingeyinga, Kópaskeri er laust til
umsóknar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist for-
manni félagsins Árna Sigurðssyni
Hjarðarási við Kópasker eða Baldvin
Einarssyni starfsmannastjóra Sambands-
ins, fyrir 15. mai n.k.
Kaupfélag Norður-Þingeyinga
Þjóðdans frá Panama
Þjóðdansafélagið sýni
Norðurlandi
r a
Þjóðdansafélag Reykjavikur
fer nú um næstu helgi i sýningar-
ferð norðurá land og sýnir m.a., á
Blönduósi á föstud.kvöld og á
Dalvik sunnudaginn 2. mai. Sýn-
ingar þessar eru I tilefni af 25 ára
afmæli Þjóðdansafélagsins, sem
er nánar tiltekið þann 17. júni
n.k.. 1 marz s.l. hélt Þ.R. 2 af-
mælissýningar I Þjóðleikhúsinu
við húsfylli og mjög góðar undir-
tektir áhorfenda, enda er efnisval
og uppsetning ásamt búningum
mjög fjölbreytt, dansaðir eru
þjóðdansar frá 15 þjóðlöndum og
þar má nefna m.a., Island, Rúss-
land, U.S.A., Perú og ttaliu.
Stjórnandi og aðalkennari er
Svavar Guðmundsson, en einnig
hafa þær Helga Þórarinsdóttir og
Kolfinna Sigurvinsdóttir haft um-
sjón með hluta úr prógramminu.
Hópurinn, sem fer I þessa ferð,
telur um 65 manns og þar af eru
dansarar um 55. Þessi ferð Þjóð-
dansafélagsins norður á land er
með viðamestu sýningarferðum
út á land með eigin hóp, en félagið
hefur farið nokkrar ferðir út um
landið siðastliðin ár meö erlenda
hópa, og má þar nefna miklu ferð
s.l. sumar sem félagið fór um
Austur-, Norður-, Suður- og
Vesturland með þátttakendur i
Norrænu Þjóðdansamóti, sem
var haldið i Reykjavík siðastl.
sumar á vegum Þ.R. og U.M.F.l.
Fataverksmiðjan Sportver h.f.
tilkynnir nýtt aðsetur að
Skúlagötu 26 (gengið inn frá
Vitastíg). Símanúmerið verður
óbreytt: 19470
SPORTVER HF
KÓRónn °g skri,stofur
Hið sama gilciir um skrifstofur
neðantaldra ver/.lana.
herm^
.hÚSlOy
skrifstofur
skrifstofur
skrifstofur
'!
r