Tíminn - 30.04.1976, Síða 24
Föstudagur ;iO. april 1976
brnado
þeytidreifarinn
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
Tryggið gegn stein-
efnaskorti,-gefið
STEWART fóðursalt
SAMBANDIÐ
INNFLUTNINGSDEILD
§
plast
ÞAKRENNUR ^
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
Nýborg?
O Ármúla 23 — Sími 86755
Sambúðin
við Sovét
jgfn qóð
Iteuter, Houston. — Gerald
Ford, Bandarilcjaforseti, sagði i
gær að sambúð Bandarikjanna
og Sovétrikjanna hefði ekki
versnað undanfarið, þrátt fyrir
afskipti Sovétrikjanna af mál-
efnum Angóla, kyrrstöðu i við-
ræðunum um takmörkun kjarn-
orkuvopna og önnur deilumál,
sem upp hafa risið.
Sagði forsetinn á frétta-
mannafundi, sem haldinn var
þegar hlé varð á kosningabar-
áttu hans i Houston: — Ég hef
ekki orðið var við eða tekið eftir
neinum afgerandi breytingum i
samskiptum og tengslum milli
Sovétrikjanna og rikisátjórnar
Bandarikjanna.
Ronald Reagan, keppinautur
hans um útnefningu Repúblik-
anaflokksins i forsetakosning-
unum á komandi hausti, hefur
gert tengsl Bandarikjanna og
Sovétrikjanna að kosningamáli.
Hefur Ford forseti hert stöðu
sina með þvi að fullyrða að
Bandarikin séu i dag betur
vopnum búin en Sovétrikin.
— Við reynum að vinna að
þvi, eftir öllum þeim leiðum
sem ég þekki, að koma i veg
fyrir átök i heiminum, sagði for-
setinn þegar hann lýsti sam-
bandinu milli rikjanna.
Sagðist hann sjá merki þess,
að Sovétrikin ætluðu að standa
við samkomulag það, sem gert
var milli rikjanna um sölu USA
á komi til Sovétrikjanna næstu
árin. Á miðvikudag var tilkynnt
um kaup Sovétmanna á rúm-
lega þrem milljónum tonna af
mais og öðrum korntegundum
frá Bandarikjunum.
Staða Carters styrkist enn við þó tilkynningu að Humphrey
Bjóði sig ekki fram
Sýrlandsher d ferð um Líbanon:
Reuter, Washington. Hubert
Humphrey, öldúngardeildarþing-
maður staðfesti i gær að hann
myndi ekki taka beinan þátt i for-
kosningum bandariska Demó-
krataflokksins, sem nú standa
yfir.
Akvörðun þessi, sem
Humphrey tilkynnti á blaða-
mannafundi i gær, er talin styrkja
mjög vonir Jimmy Carters,
fyrrverandi fylkisstjóra
Georgia-rikis, um að verða út-
nefndur forsetaefni Demókrata-
flokksins i kosningum þeim, sem
fram eiga að fara i nóvember-
mánuði.
Humphrey sagði einnig, að
hann væri enn reiðubúinn öl að
verða frambjóðandi flokksins, ef
honum verður boðið þaðá flokks-
þinginu i New York i júli. Hann
sagðist þó ekki vera og ekki ætla
að verða frambjóðandi i forkosn-
ingunum.
Humphrey, sem er sextiu og
fjögurra ára gamall, sagðisthafa
• hyggju að bjóða sig fram til
endurkjörs sem öldungadeildar-
þingmaður Minnesota, en þeir
eru kosnir til sex ára i senn.
Hvatti hann þá demókrata, sem
þegar eru frambjóðendur i for-
kosningum að halda baráttu sinni
áfram og gefast ekki upp.
Hann bætti þvi við, að þrátt
fyrir mikinn þrýsting vina sinna
hygðist hann ekki taka þáttifor-
forkosningunum i New Jersey
þann 8. júni, en Igærvoru siðustu
forvöð að skrá frambjóðendur
þar.
Þessi ákvörðun Humphreys
virðist gera Jimmy Carter þvi
sem næst öruggan um að hljóta
útnefningu demókrata. Hann
hefúr unnið sjö af þeim niu for-
kosningum, sem haldnar hafa
verið, en tuttugu og tvö rlki eiga
eftir að kjósa.
Vonir helztu keppinauta Cart-
ers, þeirra Henry. Jacksons og
Morris Udalls urðu nánást að
engu eftir sigur Carters i Penn-
sylvani'u á þriðjudag,
Þó er Carter ekía búinn aö
tryggja sér sigur og margt getur
hent enn, bæði i forkosningunum
og á sjálfu flokksþinginu.
Flutningalesf á leið til Beirút
Reuter, Sidon,— Lest sextiu her-
flutningabifreiða með sýrlenzk-
um númerum stefndu i gærkvöld i
átt til Beirút. Þessir flutningar
gætu orðið til þess að auka á
spennuna i höfuðborginni, sem
þegar er mjög striðshrjáð.
Vitni i bænum Sidon i
suðurhluta Libanon sögðu að bif-
reiðarnar, sem virtust hlaðnar
hermönnum, hefðu snúið til norð-
urs, i átt til Beirút, eftir að hafa
komið til Sidon að austan.
Ekki var vitað i gær hvort h^r-
sveitir þessarhefðu verið komnar
til Libanon. Mikill fjöldi sýr-
lenzkra hermanna var fyrir i
Masnaa-héruðunum.
Á miðvikudagskvöld sökuðu
samtök vinstrimanna i Libanon,
sem um þessar mundir eru á-
hrifamesti hópurinn innan stjórn-
máialifs landsins Sýrlendinga
um að beita þvingunum, bæði
stjórnmálalegum og hernaðar-
legum, til þess að fá kjörinn for-
seta, sem þeim er að skapi.
Fyrirhugað er að þingið i
Libanon komi saman á laugardag
til þess að kjósa arftaka Suleiman
Franjieh, forseta, en afsögn hans
hefur verið ein af meginkröfum
vinstrimanna i Libanon.
Samtök vinstrimanna báðu þó
um það i gær, að kosningunum
yrði frestað um sinn.
Eftir framburði . vitna i
Sidon að dæma eru sjúkrabifreið-
ar og talstöðvarbifreiðar i fylgd
með herflutningalestinni. Þar
sem breitt var yfir palla flutn-
ingabifreiðanna var ekki að fullu
ljóst hvort þær væru fullskipaðar
mönnum, en hver um sig er
venjulega látin flytja fjörutiu
menn sem þýddi, að i lestinni
væru um tvö þúsund og fjögur
hundruð hermenn.
Engin skýring var gefin á flutn-
ingum þessum i gær, en talið var
að þeim væri ætlað að tryggja
friðsamlegar kosningar forseta
Sýrland hefur nú að minnsta
kosti fjörutiu skriðdreka innan
iandamæra Libanon og, að þvi er
talið er um tiu þúsund hermenn.
Reuter, Peking,— Hua Kuo-feng,
hinn nýi forsætisráðherra Kína,
hélt i gærkvöld enn eina harða
andsovézka ræðu og varaði hann
þá Nýja Sjáland og önnur
Kyrrahafslönd við yfirgangi
Kremlverja.
Ræðu sina flutti Hua i veizlu,
sem haldin var Robert Muldoon,
forsætisráðherra Nýja Sjálands,
til heiðurs og sagði hann að Sovét-
rikin væru nú „hættulegasta
styrjaldaruppspretta heims” og
ennfremur að þau væru „veru-
lega framgjarnt en innanveikt”
stórveldi.
Sendiherra Sovétrikjanna,
Vasily Tolstikov og aðrir sendi-
menn A-Evrópulanda, sátu
„svipbrigðalausir” undir árás
Hua, en hún er meðal þeirra
hörðustu, sem kinverskur leiðtogi
hefur sett fram i Ráðhúsi
Alþýðunnar I Peking.
Hua talaði meðal annars um
stórveldi sem hefði „gripið tæki-
færið til þess að auka útþenslu
sina og afskipti á Kyrrahafs-
Asiusvæðinu”, og átti hann þar
greinilega við Sovétrikin.
Sagði hann ennfremur, að lönd
á þessu svæði, svo sem Ástralia
og Nýja Sjáland, hefðu aukið
mótstöðu sina gegn útþenslu-
stefnu Sovétrikjanna og bætti
siðan við: — Við styðjum
eindregið þá réttlátu afstöðu
þeirra -.
Um Sovétrikin sagði Hua
einnig, að þau „sýndu hinum
veika yfirgang og ofbeldi, en
óttuðust þann sterka”, Minntist
hann að minnsta kosti fjórúm
sinnum á þennan yfirgang.
Greinilegt er að fordæming
Muldoons á „heimsvaldastefnu
Sovétrikjanna” i Angóla og á
Indlandshafi, hefur vakið athygli
og hrifningu stjórnvalda i Peking.
KissingerberekkisamanviðWashington umGhana-afboðunina
Kveisa hrjáði ráðherrann í gær
Reuter, Kinshasa. Henry Kiss-
inger, utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, varð að breyta áætlun
Afrikuferðar sinnar i gær. Sjálf-
ur þjáistKissinger af innantökum
og eru aðstoðarmenn hans i vafa
um hvað þeir eiga að gera næst.
Kissinger veiktist I gærmorgun
og segja læknar að hann sé með
væga iðrabólgu.
Bandariskir embættismenn
vissu ekki i gær hverjar áætlanir
Kissingers væru nú, en upphaf-
lega átti hann að leggja upp til
Ghana i gær. Rikisstjórn Ghana
aflýsti afhm á móti heimsókn
hans þangaf. á siðustu stundu.
Ekki hefur fengizt skýring á
þvi, hvers vegna Kissinger ber
ekki saman við yfirlýsingar
Washington um aflýsingu heim-
sóknarinnar til Ghana. Ráðherr-
ann sagði i ræðu á miðvikudags-
kvöld, að Bandarikin ætluðu ekki
að mótmæla afboðun heimsókn-
arinnar, en samkvæmt tiikynn-
ingu stjórnvalda I Washington
hefur rikisstjórnin þegar mót-
mælt við Ghana, Nigeriu og
Sovétrikin.
Búizt var við i gær, að Kissing-
er héldi Afrikuferðinni áfram i
dag og færi þá til Liberiu, þrátt
fyrir kveisuna.
Fótur
fannst
Reuter, Paris. — Þegar
hraðlestin frá frönsku
Rivierunni kom til enda-
stöðvar sinnar i Gare de
Lyon I Paris i gær, fannst
mannsfótur sem rifnað hafði
af um mjöðm, fastur á
eimreið lestarinnar.
Lögreglan hóf þegar
rannsókn málsins og leitar
nú manns þess, sem fóturinn
er af, meðfram spori
lestarinnar.
HORNA
FBÍ ásótti King
Reuter, Washington.— Edward
Levi, saksókpari, fyrirskipaði i
gærleitað leynilegum skýrslum
um morðið á dr. Martin Luther
King, til að ákvarða hvort FBI
hafi á einhvern hátt beitt sér á
vafasaman hátt, fyrir eða eftir
morðið.
Levi lagði um leið áherzlu á,
að lokið væri fimm mánaða
langri athugun á skýrslum FBI
og að ekkert gæfi ástæðu til aö
ætla aö stofnunin hafi á nokkurn
hátt borið sök á dauða dr. King.
— Byrjunarathuganir gefa
enga ástæðu til að ætla annað en
að rannsókn FBI á morðinu hafi
verið fullnægjandi og heiðarleg,
sagði Levi.
Samt sem áður, sagði hann,
fundust við athugun þessa sönn-
unargögn fyrir þvi að FBI hafi,
löngu áður en morðið var
framið, tekið upp áætlun um
eftirlit og ofsóknir, til þess að
rægja og skaða bæði dr. King
sjálfan, svo og hreyfingu þá,
sem hann var i forystu fyrir.
™v 'A Mllll
áT
Frakkar enn reiðu-
búnir til stjórnmála-
sa mbands við
Kambódiustjórn.........
Reuter, Paris. — Jean Sau-
vagnargues, utanrikisráð-
herra Frakklands sagði I gær,
að honum heföu ekki borizt
neinar þær upplýsingar, sem
staðfestu orðróm um fjölda-
morð I Kambódiu.
— Svo framarlega sem ég
veit, er litið um öruggar
upplýsingar af þróun mála i
Kambódiu, sagði hann. — Allt
það sem sagt er um landið
vekur ugg með okkur og við
hljótum að hugsa um þab
hvort þessar ógnvekjandi
fregnir eigi sér einhverja stoð.
Vestræn blöð hafa birt
skýrslur þar sem segir, að um
sex hundruð þúsund manns
hafi verið drepin i Kambódiu
siðan Khmer Rouge tók við
völdum þar.
Franski forsætisráðherrann
sagði i gær, aö frásagnir
manna um þetta stönguðust á
og bætti hann siðan við: — Við
erum enn reiöubúnir til að
taka upp stjórnmálasamband
við land þetta. —
Evrópski Alþýðu-
flokkurinn stofnaður i
gær
Rcuter, Brussel. -- Leiötogar
flokka Kristilegra demókrata
i löndum Efnahagsbandalags
Evrópu samþykktu i gær
myndun heildarfiokks i
Evrópu og kusu Leo Tinde-
mans, forsætisráðherra
Belgiu sem forseta hans.
Flokkurinn mun standa að
sameiginlegri baráttu vegna
fyrstu beinu kosninganna til
Evrópuþingsins, en þær eiga
að fara fram að vori árið 1978.
Innan flokksins eru félagar
frá öllum löndum EBE, nema
Bretlandi, þar sem enginn
flokkur Kristilegra-demó-
krata er fyrir hendi.
Nafn þessa nýja flokks er
Evrópski Alþýðuflokkurinn.
ófrjósemisaðgerðir
ekki i alrikislög
Reuter, Nýju Delhi. — Rikis-
stjórn Indlands hefúr ákveðið
að hætta við setningu laga,
sem gera myndu ófrjósemis-
aðgerðir á fólki að skyldu við
tilteknar aðstæður, þar sem
landið á ekki þann útbúnað
sem þarf til að framfylgja
lagasetningunni, eftir þvi sem
heilbrigðis- og fjölskylduáætl-
unarmálaráðherra, landsins,
Karan Singh, sagði i gær.
En rikisstjórnin vill þó
halda málinu opnu og mun
ekki stöðva neitt einstakt fylki
Indlands i setningu laga af
þessu tagi, eftir þvi sem ráð-
herrann sagði.
Fyikið Maharashtra hefur
þegar sett lög, sem nú eru I at-
hugun sérstakrar nefndar, þar
sem farið er fram á að
minnsta kosti annað hjóna
gangist undir ófrjósemisað-
gerð, þegar þau hafa eignazt
þrjú börn.
Þeir fá að læra
hvað þeim er
fyrir beztu......
Reuter Varsjá. — Pólverjar
hafa nú fellt ungmennasveitir
inn i her sinn. Sveítir þessar
starfa i íbúðarhverfum og á
vinnustöðum og er þeim ætlað
að skapa grundvallarkjarna
tveggja milljón ungmenna,
sem gera á betur móttækileg
fyrir kommúnisku skipulagi.
Innfelling ungmennasveit-
anna i herinn var formlega
gerð á miðvikudag, meðan á
þingi pólskrar æsku stóð.
Tvö ungmennasambönd,
pþlskir skátar og samtök
stúdenta i Varsjá, verða
áfram utan skipulags hers-
ins.
Pólska fréttastofan PAP
sagði að tilgangur þessarar
innfellingar væri að koma
betur áleiðis þeim skilningi aö
sósialistarikið væri öllum
Pólverjum fyrir beztu.