Tíminn - 27.08.1976, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 27. ágúst 1976
Sementsverksmiðja ríkisins:
7% söluminnkun á
almennum markaði
FJ-Reykjavík. Sala Sementsverksmiöju rikisins á almennum markaöi
fyrstu 7 mánuöi ársins er um 7% minni en var á sama tima I fyrra. Ef
sementssala til Sigölduvirkjunar og hafnargeröar I Þorlákshöfn er tek-
in meö, er salan á þessu ári oröin alls 71.219 tonn, en var á sama tima I
fyrra 80.449 tonn.
I frétt frá Sementsverksmiöju rlkisins segir aö samanburöur á se-
mentssölu milli áranna 1975 og 1976 sé þannig:
1975
Sala alls 1/2-31/7 1975 . 80.4491.
-i- sala til Sigölduog Þorl.h. á sama tlma 11.7201.
Sala alls á alm. markaöi 68.7291.
1976
Sala alls 1/1-31/7 1976 71.2191.
-r Sala til Sigöldu á sama tlma 7.4201.
Sala á sekkjuðu sementi, sem
að langmestu leyti fer út á land er
þvi um 5% minni i ár en var á
sama tima i fyrra. Sala á lausu
sementi til steypustööva i
Reykjavik og nágrenni, hefur
minnkað um tæp 10% frá sama
tima i fyrra.
Samkvæmtsölu fyrstu sjö mán-
uði þessa árs má ætla, aö heildar-
sala Sementsverksmiöjunnar á
þessu ári verði um 142 þúsund
tonn en I fyrra var salan alls um
159 þúsund tonn.
Hlaut heiðursverð-
laun fyrir skrif sín um
frímerki í Tímanum
FJ-Reykjavik. — Siguröur H.
Þorsteinsson, sem annast skrif
um frimerki og frimerkjasöfnun i
Timann, hlaut I gær heiöursverö-
laun samtaka þeirra, sem skrifa
um frimerki i blöö og timarit.
Þing þessara samtaka var
haldiði'Kaupmannahöfn i gær, en
þar fer nú fram frimerkjasýning-
in Hafnia 1976. Til þingsins komu
64 blaðamenn viös vegar að úr
heiminum og er Sigurður i þeirra
hópi. A þinginu var I fyrsta skipti
úthlutað verðlaunum — grand
prbc international de journalistic,
samtakanna og féllu þau Siguröi í
skaut, sem fyrr segir.
Sigurður hefur skrifaö fasta fri-
merkjaþætti i Timann frá árinu
1970.
Sigurður H. Þorstemsson.
Þing norrænna
vatnafræðinga
-hs-Reykjavik. — Dagana 28.
ágúst til 2. september næstkom-
andi heldur félag norrænna
vatnafræðinga — Nordisk
Hydrologisk Forening — þing
sitt að Hótel Loftleiðum, en þing
félagsins eru haldin á tveggja
ára fresti.
Þátttakendur verða rúmlega
170, þar af 130 erlendir, en með
erlendu þátttakendunum kemur
um 40 manna skyldulið. A þing-
inu verða lagöar fram 54 rit-
gerðir (þar af 9 islenzkar). Frá
hverju Norðurlandanna er ein-
um visindamanni boðið að flytja
fyrirlestur um valið efni (is-
lenzka fyrirlesturinn flytur
Kristján Sæmundsson og nefnir
hann fyrirlesturinn:
„Geological Environment of
Geothermal Activity in
Iceland”.)
Þingið er i tveim hlutum A og
B. Hluti A fjallar um meðferð og
notkun vatnafræðilegra upplýs-
inga hluti B um vatnafræðileg
umhverfissjónarmiö. Að þingi
loknu fara rúmlega 100 þátttak-
endur i 3ja daga ferð um Suður-
land. Undirbúningur ráðstefn-
unnar er i höndum islenzkrar
nefndar, hún er skipuö eftirtöld-
um mönnum:
Jónas Eliasson Háskóli ís-
lands, Markús Einarsson Veð-
urstofa Islands, Guttormur Sig-
bjarnarson Orkustofnun, Björn
Erlendsson Orkustofnun, Bragi
Arnason Raunvisindastofnun
H.I., Sigmundur Freysteinsson
Verkfræðistofu Sig. Th. og Elias
Eliasson Landsvirkjun.
Sala alls á alm. markaði 63.7991.
Sement á almennum markaði er selt laust og ósekkjað til Steypu-
stöðva I Reykjavik, Selfossi og Ytri-Njarðvik, en sekkjaö til allra ann-
arra. Skipting ofangreinds magns i sekkjað og ósekkjað er sem hér
segir 7 fyrstu mánuði áranna 1975 og 1976.
1975
Seltlaust 31.7471. 46%
Seltsekkjað 36.9821. 54%
68.7291. 100%
1976
Selt laust 28.6311. 45%
Selt sekkjað 35.1681. 55%
63.7991. 100%
veiðihornið
Fnjóská
Nú hafa veiðzt i kringum 200
laxar i Fnjóská, en það mun vera
nokkuð mikið minna en á sama
tima i fyrra. Ain er tiltölulega
vatnslitil ennþá, öfugt við ár
sunnanlands. Stærsti laxinn sem
komiðhefurá land nú i sumar vó
18 pund og veiddi hann Albert
Sigurðsson á flugu, Black Fary.
Fnjóská er opin til 13. septem-
ber og að sögn Jóhönnu Gunnars-
dóttur i Sportvöruverzlun
Brynjólfs á Akureyri, þá eru enn
tveir dagar lausir á fyrsta svæði'
og eitthvað fleiri á ööru og þriðja
svæöi. Fyrir félagsmenn kostar
dagurinn á fyrsta svæði 4.600 en
aðrir verða að greiða 6.100. Á
fyrsta svæði eru á haustin góðir
möguleikar á þokkalegri bleikju.
Sagði Jóhanna að meðalþyngd
þeirrar bleikju sem komið hefði á
land hingaö til væri frá einu og
upp í þrjú pund.
Blanda: veiði
með minna móti
Það er veiðifélag á Sauðárkróki
sem hefur Blöndu á móti félagi á
Blönduósi. Skipta félögin ánni
þannig ámilli sin að þauhafa sina
tvo dagana i senn. VEIÐIHORN-
IÐ hafði I gær samband við
Brynjar Pálsson á Sauöárkróki
og innti hann eftir veiöi i Blöndu
það sem af er sumri.
Brynjar sagði að þeir Sauð-
kræklingar hefðu fengið um 600
laxa og væri meðalþyngdin frá 5
ogupp i 8pund. Stærsti laxinn var
17 pund og fékkst á 28 gr. Toby.
— Veiði var mjög góð framan-
af, allt framundir miðjan ágúst,
sagði Brynjar, en hún hefur verið
treg nú undanfarið. Sex fengust i
fyrradag, en ég veit til að menn
hafi fengið allt upp i 50 til 60 fiska
yfirdaginn. Annars hefur Blanda
verið mjög lituð i allt sumar,
þannig aö ekki hefur verið hægt
að nota annað en spón. Maðkur og
þvi siður fluga hafa komið til
greina við veiðarnar.
Aðspurður, sagði Brynjar að
það væri rétt að veiðimenn við
Blöndu hefðu sætt nokkurri gagn-
rýni fyrir aö veiða eingöngu á
spón. Telja margir að veiðimenn-
irnir freistist til að húkka laxinn.
Sagði Brynjar að þeir Norðan-
menn vísuðu öllum slikum
ásökunum á bug, enda væri erfitt
að Imynda sér hvernig slikt húkk
færi fram, þegar ekki sæist
fiskurinn.
1 Blöndu eru þrjár stangir oger
ein þeirra upp I dal, en þar hefur
veiöi verið litil sem engin. Þá gat
Brynjar þess aö vegna fjölda
veiðimanna og vegna þess hve
stangirnar eru fáar, þá hefðu
margir einungis fengiö einn og
hálfan dag. Úr þessu ætla þeir á
Sauðárkróki að bæta með þvi að
taka á leigu vatn uppá Skagan-
um. Verður reynt að veiða þar
eingöngu með flugu. Fyrir kunn-
uga þá má geta þess að vatnið
heitir ölversvatn og er fyrir ofan
Hvalsnes. Veiði þar er eingöngu
urriði.
Sæmileg veiði i Laxá i
Leirársveit
— Veiðin er alveg sæmileg,
sagði Sigurður Sigurðsson, Stóra
Lambhaga, er VEIÐIHORNIÐ
ræddi við hann i gær. Það hefúr
ekki rignt mikið undanfarið en
þrátt fyrir það er áin vatnsmikil.
Enn virðist vera að ganga lax, ég
frétti t.d. af nýgengnum og grá-
lúsugum löxum sem veiddust fyr-
ir neðan Laxfoss i fyrradag. Þeir
voru allgóðir, eða frá 8 til 10 pund
að þyngd.
Sigurður sagði að veiði væri nú
um alla ána, en þegar hún var
hvað mest, þá var veiðin einkum
á fremsta svæðinu, fyrir ofan
Eyrarfoss.
Veiði i Laxá er töluvert minni
en i fyrra og taldi Sigurður að
munaði allt aö 200 löxum. Hins-
vegar þá hafa veiðzt þar allgóðir
laxar i sumar, a.m.k. þrir laxar
hafa verið 18pund. Astæðuna fyr-
ir minni laxveiði sagði Sigurður
vera m.a. þá að lax hafi gengið
nokkru siðar i ána, en einnig væri
hugsanlegt að einhver árgangur
hefði ekki náð að þroskast og
dafna eins og skyldi.
Útlendingar hafa verið i ánni i
mest allt sumar, en Islendingar
hafa hinsvegar fengið daga i vor
og i haust. Fyrír dag á bezta tima
hafa útlendingarnir greitt tæp-
lega þrjátiu þúsund, en Sigurður
sagði að þeir Islendingar sem
hefðu fengið dag á sama tima
hefðuaðeins greitt um tiu þúsund.