Tíminn - 27.08.1976, Síða 3
Föstudagur 27. ágúst 1976
TÍMINN
3
REYKJAVÍKUR-SKÁKMÓTIÐ
Fridrik vann Wester- fonkiarik /9 7-L L L L £ jL JL L SL ÍL ii ÍL H \il lí lí.
inen glæsilega í gær MóL. Reykjavik. - Friörik Ingi og Helgi sömdu jafntefli ólafsson vann Westerinen i e“J.r aöeins þrettán leiki. mjög vel tefldri skák, af hálfu Kunningjarnir Keen og Guö- Friðriks, I þriöju umferö mundur somdu emmg jafntefli I Reykjavikurmótsins I skák i nær ötefldri skák, eftir aðeins gærkvöldi. sey.tján leiki. Hann þjarmaði illþyrmilega Skák .Antoshin og Björns fór I að finnska stórmeistaranum, bið og hefur Bjorn aðeins lakari sem varð að gefast upp eftir að- stööu. Þá fór einnig I bið skák eins 24 leiki. Gunnars og Hauks, en Haukur Margeir var með skiptamun hefur mann yfir og sennilega yfir á móti Tukmakov, en lék unna stöðu. óvænt af sér hrók og gaf þegar. Staða efstu manna: Matera tefldi vel á móti Timman — 3 vinninga Timman, en hollenzki skák- Najdorf — 2 1/2 vinning meistarinn tefldi einfaldlega Tukmakov - 2 vinninga og bið- betur og vann sannfærandi sig- skák ur Friðrik — 2 vinninga Vukcevich og Najdorf tefldu Klukkan 14.001 dag verða bið- skemmtilega skák, sem lyktaði skákir tefldar, en fjórða umferö með jafntefli. mótsins á morgun. JL Helgi ólafsson X k 'k 1
2 Gunnar Gunnarsson 'k X a
1 Ingi R Jóhannsson 'lx T 0
*L Margeir Pétursson X h o cT
JL Milan Vukcevich X h K
á Heikki Westerinen X 0 T o
X Raymond Keen X 0 {h.
X Salvatore Matera X '/2. Ö
JÍL Vladimir Antoshin % X T
/ó Björn Þorsteinsson IF
iL Jan Timman 1 1 r T
iL Guðmundur Sigurjónsson lk Tx X
H Friðrik ólafsson Tx k i T
Æ Miguel Najdorf ± 1 'k T
/s Vladimir Tukmakov T ; FT T
ÍL Haukur Angantýsson - __ - — — >— — —- — — T
Leitar- og björgunaræfing:
Flugslys við Kleifarvatn
Gsal-Reykjavik — Atlantshafs-
bandalagiö sviðsetti I gærmorgun
flugslys á islandi og I Noregi, og
fóru fram leitar- og björgunar-
æfingar i báðum iöndunum með
þátttöku margra aðila. Segja má,
að þessari æfingu hafi verið
stjórnað frá þremur höfuðstöðv-
um hér, frá Björgunarstöð
varnarliðsins á Keflavikurflug-
velli, frá Flugstjórnarmiðstöö-
inni á Reykjavfkurflugvelli og frá
alrnanna vörnum rikisins I
Reykjavik.
Auk þessara aðila tóku þátt i
æfingunni m.a. Björgunarmið-
stöðin á Reykjavíkurflugvelli,
Flugbjörgunarsveitin, Hjálpar-
sveitir skáta, Slysavarnarfélagið,
Landhelgisgæzlan og Lögreglan i
Reykjavik.
Orsök flugslysanna var sú, að
tvær farþegaflugvélar rákust
saman skammt frá Færeyjum, en
voru þó báðar flughæfar eftir
áreksturinn. önnur þessara véla
hafði skömmu áður haldið frá
Færeyjum, til Reykjavikur, og
hin vélin var á leið til Keflavikur
frá Shannon i trlandi. Orsök
árekstursins var sú, að vélin frá
Færeyjum var I annarri flughæð
en hún átti að vera.
Við áreksturinn rofnaði fjar-
skiptasamband við báðar vélarn-
ar, og þvi var ekki hægt að hafa
neitt samband við þær. Skömmu
eftir áreksturinn bárust þó upp-
lýsingar frá radarstöð I grennd
við Færeyjar, og frá veöurat-
hugunarskipi um aðra vélina og
virtist hún vera á leið til Norður-
landa. Nokkru áður haföi flug-
stjórnarmiðstööin I Voga I Fær-
eyjum heyrt neyðarkallið „may-
day” frá flugvél, en ekki var vitaö
frá hvorri flugvélinni kallið var.
Flugstjórnarmiöstöðin I
Reykjavik reyndi eftir öllum
hugsanlegum leiðum að grennsl-
ast fyrir um hina vélina, sem
samkvæmt sinni flugáætlun átti
að lenda i Reykjavik. Strax eftir
að fjarskiptasambandið rofnaði
við vélina var komið á svonefnt
óvissustig, en á Flugstjórnarmið-
stöðinni er unnið eftir þrlskiptu
kerfi I tilvikum sem þessum.
Óvissustigið er fyrsta stigiö I
þessu kerfi. Þá er leitaö upp-
lýsinga eftir öllum tiltækum leið-
um, haft samband viö loftskeyta-
stöðvar, skeyti send út til nær-
liggjandi stöðva I nágrannalönd-
um, og allar stöðvar aðvaraöar,
ef ekki næst neinn árangur I þess-
ari upplýsingaleit. 1 gærmorgun
var þessu einmitt þannig farið, að
engar upplýsingar bárust um
þessa vél.
Annað stigiö er svonefnt hættu-
stig, en þá eru ýmsir aðilar, sem
heyra undir Flugstjórnarmið-
stöðina, beðnir um að vera til
taks. Þá er hafinn undirbúningur
að leit, og stundum sendar út
flugvélar til leitar. I gærmorgun
voru tvær flugvélar sendar til
leitar á þessu hættustigi, önnur
var vél frá Keflavik, sem var
send á móti vélinni samkvæmt
flugáætlun hennar, en hin vélin
var flugvél Landhelgisgæzlunnar,
sem I sinu eftirlitsflugi var beðin
um að leita meöfram suöaustur-
ströndinni.
Siðasta stigið er sjálft neyöar-
stigið, en þá eru allir kallaðir út,
leitarflokkar og björgunarsveitir
auk fjölmargra annarra.
Það er af vélinni að frétta, að
menn I radarstöð varnarliðsins á
Stokksnesi við Hornafjörö sáu til
flugvélar I radarnum, sem ekki
kom heim og saman við þær upp-
lýsingar, sem þeir höfðu um flug-
umferð. Nokkru eftir þetta bárust
einnig upplýsingar frá manni á
Eyrarbakka, sem hafði séð vél-
ina, og sagði hann, að hún hefði
stefnt I átt til fjalls.
Vélin brotlenti siðan viö
Kleifarvatn, en I vélinni voru 53
farþegar, og slösuðust margir
mikiö. Flugbjörgunarsveitin kom
fyrst á slysstaöinn, og voru þegar
hafnir flutningar á sjúkum til
Reykjavikur.
Hin vélin, sem lenti I árekstrin-
um, lenti aftur á móti I fjalli
skammt frá Bodo I Noregi. 1
þeirri vél voru 40 farþegar.
— Okkar hluti I þessari æfingu
tókst ágætlega, sagði Guðmundur
Matthiasson deildarstjóri á Flug-
stjórnarmiðstöðinni á Reykja-
víkurflugvelli I gær. — Þvi er hins
vegar ekki að leyna, að nokkur
smáatriði má bæta, en það er ekki
hægt að segja aö neinir stórgallar
hafi komið fram.
Guðmundur sagði, að raunar
hefði gengið of greiðlega að finna
vélina og þvi hefði ekki orðið
nægjanlega mikil leit að vélinni,
til þess að hún hefði orðið aö veru-
legu gagni sem æfing fyrir leitar-
flokkana.
— Það hefur ekki verið haldin
áður jafnyfirgripsmikil æfing og
þessi, þar sem hún tekur til
tveggja landa, sagði Guðmundur
og bætti við, aö liklega yrði fram-
hald á þessum æfingum og jafn-
vel yrði um árlegar æfingar að
ræöa.
— Tilkynning kom til okkar kl.
10.45, sagði Guðjón Petersen hjá
almannavörnum rikisins i sam-
tali við Timann I gær, um að
saknað væri flugvélar meö 53
innanborðs og eldsneyti hennar
þrotið, — en leitarflokkar hefðu
hafið leit. Um likt leyti komu upp-
lýsingar um þaö, að vélin væri
fundin við Kleifarvatn.
Með tilliti til þess aðvöruðum
við almannavarnarnefndina i
Hafnarfirði, og tók hún til starfa,
samkvæmt skipulagi sem gert
hefur verið fyrir hana, auk þess
sem hún haföi samband við al-
mannavarnarnefndina á Suður-
nesjum og bað hana um aöstoö.
Við tókum að okkur að sam-
ræma dreifingu slasaðra á spital-
ana og hafa eftirlit með sjúkra-
flutningum inn I borgina og
annaðist lögreglan I Reykjavik
þann þátt á götum úti. Reyndar
voru sjúklingar aðeins fluttir aö
spitölunum, en ekki talin ástæða
til þess að æfa spitalana aftur.
Við erum nokkuð óánægðir með
ýmsa þætti varðandi þessa æf-
ingu, sagði Guðjón, t.d. voru fjar-
skiptin ekki nægjanlega góð, og
það var erfitt að henda reiður á
það, hversu margir bflar voru á
Guömundur Matthiasson deildar-
stjóri t.v. viröir fyrir sér kort af
flugleiöum beggja vélanna.
Timamynd: Gunnar
leiö til borgarinnar og hve margir
væru I hverjum bil. Einnig var
sambandið viö slysstaðinn nokk-
uð slitrótt.
Guðjón gat þess þó, að fjar-
skipti við Flugbjörgunarsveitina
hefði verið mjög gott, bæði I
bilunum og ennfremur á slys-
staðnum.
Að lokum má geta þess, að
þyrlur varnarliösins komu ekki á
slysstaðinn fyrr en allt var svo að
segja um garð gengið.
„Við verðum að hlýða lögunum"
— en samkvæmt þeim verður AAjólkursamsalan heildsöluaðili, segir
Stefón Björnsson forstjóri Mjólkursamsölunnar
SJ-Reykjavik. — Viö erum ekki
aö hlaupa frá skyldum okkar viö
neytendur. Mjólkursamsalan
var stofnuö meö sérstökum
lögum, og nú hafa veriö sett
önnur lög til breytingar á þeim.
Viö veröum nátturulega aö fara
eftir þeim og þar meö önnumst
viö ekki lengur smásölu á
mjólk, sagöi Stefán Björnsson
forstjóri Mjólkursamsölunnar i
Reykjavik I viötali viö
Timann I gær.
Stefán sagði ennfremur, aö
undanfarið hefði nokkuð borið á
þvi að deilt hefði verið á
Mjólkursamsöluna vegna fyrir-
hugaðrar breytingar á mjólkur
sölu á svæði Mjólkursamsöl-
unnar, en þaö nær yfir Reykja-
nesskagann, Suövesturland og
Vestmannaeyjar. Um siöastliö-
in áramót voru 165 mjólkurút-
sölustaöir á þessu svæði, þar af
voru 94 eða meirihlutinn reknir
af öðrum en Mjólkursamsöl-
unni. Stefán Björnsson kvað
ókleift að reka tvöfalt dreif-
ingarkerfi á mjólk, slikt yrði of
kostnaðarsamt, auk þess sem
lög
in segðu fyrir um að Mjólkur-
samsalan og mjólkurbú yrðu
heildsöluaðilar.
Samkvæmt lögunum á breyt-
ingin að hafa átt sér stað 1.
febrúar 1977 og eðlilegast væri
aö kaupmenn og verzlunarfyrir-
tæki tækju við mjólkursölunni á
nokkrum mánuðum, segjum frá
1. okt. til 1. feb.
— Það hefur verið gert heil-
mikið úr þvi að mjólk veröiekki
á boðstólum 1 heilum bæjar-
hverfum eftir breytinguna. Ég
hygg, að það komi samt viðast
fram kaupmenn, sem vilji selja
mjólk. Og þau hverfi verða ekki
mörg, sem slik vandkvæöi koma
upp I, en ef það verður. þá
fyndist mér eölilegast að kaup-
menn yfirtækju þær verzlanir,
sem við höfum haft I hverf-
unum.
A milli 170 og 180 konur hafa
til skamms tima starfaö i
mjólkurbúðum samsölunnar.
Fyrir nokkru var þeim tiikynnt,
að þær gætu héðan af ráðiö sig i
aðra vinnu með skömmum
fyrirvara og hætt störfum hjá
Mjólkursamsölunni. Ýmsar
þeirra eru þegar farnar að út-
vega sér vinnu annars staðar.
Þá hafa Kaupmannasamtökin
sinnt máii starfsstúlknanna á
þann hátt, að þau hyggjast setja
upp vinnumiölun, þar sem þær
sitja fyrir öðrum að fá starf um
ákveðinn tima.
— Það viðkvæma i þessu máli
er að sjálfsögðu það, hvað
verðurum elztu konurnar, sem i
buðunum vinna, sagði Stefán
Björnsson. Hann sagði starfs-
stúlkur mjólkurbúðanna yfir-
leitt vera ágæta starfsmenn,
sem væru vanar sinum störfum.
Hins vegar væri eflaust óþægi-
legt og erfitt fyrir þær þeirra,
sem farnar væru að eldast að
fara i nýtt starf.
Stefán Björnsson sagöi for-
ystu kapmanna hafa verið m jög
ákafa i að verzlanir tækju aðsér
mjólkursöluna, og hefði
Mjólkursamsalan oft veriö
nefnd einokunaraðili, þegar
kaupmenn hefðu rætt um þau
mál. Hann kvað það þvi nokkuð
öfugsnúið nú, þegar úr þeirra
hópi hefðu nú heyrzt raddir,
sem vildu að Mjólkursamsalan
tæki þátt i dreifingunni eftir þær
breytingar sem nú eiga að fara
fram.
Þá hafa einnig veriö uppi
raddir um að mjólkurdreifing
yrði ef til vill ekki eins fullkomin
frá heilbrigðissjónarmiði eftir
breytinguna. Borgarlæknir
hefur nú þegar tekið þetta mál i
Stefán Björnsson.
slnar hendur og sent fulltrúum
væntanlegra söluaðila bréf þar
sem fram kemur að hvergi
verði slakað á kröfum i þessu
sambandi.
Sex manna nefnd ákveöur
framvegis verö á mjólk.
Alagning á mjólk er töluvert
lægri en á öðrum vörum, sem
seldar eru i matvöruverzlunum.
Mjólkursala hefur i marga
áratugi verið hitamál hér á
höfuöborgarsvæðinu, en upphaf
þess var barátta um, hvortleyfa
ætti bændum að selja áfram
mjólk beint til neytenda eför að
fólki fór að fjölga i borginni eða
taka upp hollustusamlegra
dreifingarkerfi.