Tíminn - 27.08.1976, Side 4

Tíminn - 27.08.1976, Side 4
4 TÍMINN Föstudagur 27. ágúst 1976 í spegli tímans Tímabær uppgötvun Þaö hefur löngum verið til traf- ala hversu erfitt það er fyrir fatlað fólk að komast leiðar sinnar, sérstaklega þegar um stiga er aðræða. Werner Last er fulloröinn maður, sem kominn er á eftirlaun, en hann hefur um árabil reynt að finna upp tæki, sem hægt væri að festa við hjólastól, svo hægt sé að fara á honum upp og niður stiga. Werner er sjálfur í hjólastól, og kona hans vareinnig i hjólastól, en hún dó áður en hann hafði lokið við þessa uppfinningu sina. Það hefur tekiö Werner sjö ár að fullgera þetta tæki, sem fest er viö hjólastólinn. Tækið lætur ekki mikið yfir sér, eins og sést á þessari mynd, en vélin er fimmhyrnd með mjúku sveigj- anlegu gúmmibelti. Þessi vél getur auöveldlega aölagast að- stæöum hverju sinni ásamt þvi aðöryggier fyrir þvi aö stóllinn er alltaf kyrr og i láréttri stööu. Hvort sem þú ert úti eða inni þá er stjórn vélarinnar alltaf sú sama. Werner Last, er vélfræð- ingur að mennt, og hefur bæði i heimalandi sinu Þýzkalandi jafnt sem öðrum löndum kynnt hversu mikilvægt notagildi þessi litla vél hefur. Uppgötvun hans ætti að geta orðið fastur liður hjá þeim sem sjá um hönn- un hjólastóla og hvers kyns annarra sjúkrastóla. Skemmtileg tilbreyting Heimur tizkunnar er marg- brotinn og alltaf berast okkur myndir af skemmtilegum nýjungum sem koma þar fram. Hérna gefur að lita eina slika, sem ttalinn Fiorucci á allan heiðurinn af. Hann segist fara sinar eigin leiðir þegar hann uppgötvar eitthvað nýtt, og eins og sjá má þarf enginn að efast um það. Hann hefur látið mynd af kattarhaus skreyta þessar stuttbuxur sem stúlkan klæöist. Þetta er ekki svo vitlaus hug- mynd, sérstaklega fyrir þá sem finnst gaman að eftir þeim sé tekið. með morgunkaffinu Þú skilur, aö þetta er bara ráön- ing til skamms tfma, eða þangað til gert veröur viö leynimynda- vélina okkar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.