Tíminn - 27.08.1976, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. ágúst 1976
TÍMINN
7
Greinargerð um jarð-
fræðilegt ástand Kröflu-
svæðisins og ályktanir
varðandi hættu á eldgosi
Si'öan i desember s.l. , er smá-
gos varö við Leirhnjúk hefir oft-
sinnis veriö gefiö i skyn, aö búast
megi við að aftnr gjósi á svipuö-
um slóðum. Ef svo yröi, þá gæ.ti <
Kröfluvirkjun, og e.t.v. einnig
þéttbýlið við Reykjahlið og Kisil-
iðjan verið i yfirvofandi hættu.
Hér verður reynt aö kryfja til
mergjar þá þekkingu, sem fyrir
liggur og nýta má til aö áætla gos-
hættu við Kröflu (eða annars
staðar þar nálægt.
Jarðskjálftar:
Eldgosum fylgja jafnan jarð-
skjálftarog oft verður þeirra vart
áður en gos hefjast. A Kröflu-
svæðinu er nú fylgzt mjög náið
með jarðskjálftum og eru stöðugt
i gangi þri'r jarðskjálftamælar á
svæðinu. Jarðskjálftar hafa verið
tiöir á svæðinu siðan snemma á
árinu 1975, en um þverbak keyrði
eftir gosið 20. desember 1975 og
allt fram i miðjan febrúar 1976.
Svo virðist sem mjög tiðir jarð-
skjálftar hafi hafizt um 2 klst fyr-
ir gosið 20. desember, en enginn
fylgdist þá með mælunum. Jarð-
skjálftar munu hafa fundizt á
Reykjahliðarsvæðinu um 20 min-
útum fyrir gosið. Þessar upp-
lýsingar geta benttilþess, að með
stöðugri vakt við jarðskjálfta-
mælana megi segja fyrir með
hálfrar til tveggja klstfyrirvara ef
gos er að hefjast. Alitamál er
hvort nýta megi jarðskjálf ta-
mælingarnar tilað segja fyrir um
goshættu vikum eða mánuðum
fyrir hugsanlegt gos.
Sem fyrr segir dró mjög úr
skjálftavirkni i febrúar 1976 og
náði hún lágmarki siðari hluta
marzmánaðar eða i aprfl, en þá
mældust að meðaltali um 15 jarð-
skjálftar á dag i Reynihliö. Siðan i
april hefir skjálftavirkni aukizt,
fyrsthægfara, en siöar með meiri
hraða. Meðalfjöldi jarðskjálfta
sem mældust á dag i Reynihlið
var um 20 i mai, tæplega 30 i júni
og um 40 i júh’. Enn fleiri mældust
fyrri hluta ágústmánaðar. Þessa
fjölgun jarðskjálfta má túlka sem
merki um aukna goshættu, en
ekki liggja fyrir neinar upplýs-
ingar sem nota megi til að dæma
um, hve mikil goshætttan er, né
hvenær helzt megi búast við að
eldgos brjótist upp á yfirborð
jarþar. Þó er e.t.v. hægt að gera
einhverjar ágizkanir þar að lút-
andi. Svo viröist sem fjöldi jarð-
skjálfta umfram 10 á dag hafi um
það bil tvöfaldazt á mánuði hverj-
um siðan i april. Ef svo heldur
áfram, verða jarðskjálftar orðnir
mjög tiðir um næstu áramót, eöa
nokkrir tugir mælanlegra jarð-
skjálfta á hverri klukkustund, en
slikt er eðlilegt að túlka sem yfir-
vofandi hættuástand.
Þótt vafasamt sé aö jarð-
skjálftamælingar verði notaðar
til að áætla goshættu dögum eða
vikum fyrir gos, þá er hægt að
nota þær til að áætla hvar mest
hætta sé á gosi. Nú i sumar hafa
langflestir jarðskjálftar á Mý-
vatnssvæðinu veriö innan hrings
með miðju við Leirhnjúk og 4 km
geisla, en auk þess hafa nokkrir
jarðskjálftar átt upptök á lfiiu,
sem liggur um það bil frá Leir-
hnjúki að Bjarnarflagi. Flestir
stærstu jarðskjálftarnir hafa átt
upptök innan eins km fjarlægöar
frá Viti. Nær allir jarðskjálftar á
Kröif lusvæðinu hafa átt upptök á
minna en 4 km dýpi, en upptök
sumra skjáifta á linunni frá Leir-
hnjúk að Bjarnarflagi hafa verið
nokkru dýpri, allt niður undir 10
km dýpi. Þessi dreifing jarö-
skjálftaupptaka afmarkar tvö
svæði þar sem goshætta virðist
mest. Annars vegar næsta ná-
grenni Vitis, þar sem stærstu
skjálftarnir eiga upptök, og hins
vegar linu frá Leirhnjúk að
Bjarnarflagi, þar sem dýpstu
jarðskjálftarnir verða. Þessi lina
fylgir gossprungu Mývatnselda
frá fyrri hluta átjándu aldar.
Athuganir á jarðskjálftabylgj-
um geta sýnt, hvort bylgjan hefir
boriztgegnum vökva. Bylgjur frá
jarðskjálftum austan Leirhnjúks
og norðan stöövarhúss Kröflu-
virkjunar sýna merki um að þær
hafi boriztgegnum vökva á leið til
Reynihliðar. Þessar upplýsingar
gefa til kynna, að bráðin hraun-
kvika sé undir svæði sem tak-
markast að vestan af noröur-suð-
ur lin u um Leirhnjúk, en að sunn-
an af austur-vestur linu um
stöðvarhús Kröfluvirkjunar. Dýpi
á þessa hraunkviku er vart yfir 4
km, annars mundu bylgjur frá
mjög grunnum skjálftum ekki
berast gegnum kvikuna.
Hæðarmælingar og
hallamælingar:
Hæð fastamerkja i homum
stöðvarhúss Kröfluvirkjunar hef-
ir verið mæld nokkrum sinnum
bæði fyrir og eftir gosið I desem-
ber s.l. Fyrsta mæling eftir gosið
var gerö 18. jan. 1976 og kom þá i
ljós, aö noröurendi hússins haföi
sigiðum næstum 5 cm miðað viö
suðurendann siðan i október 1975.
Siðan seig norðurendinn enn allt
fram i miðjan febrúar og hafði þá
sigið 5,2 cm miðað við suðurend-
ann. Mælingar fyrst i marz
sýndu, að þessi þróun hafði snúizt
við. Siðan hefir norðurendi húss-
ins risið jafnt og þétt um rúmlega
4 mm á mánuði, eða samtals um
2,4 cm siðan snemma i marz, en
siöasta mæling var framkvæmd
11. ágúst 1976. Mælingar þessar
sýna,aðmeð sama rishraða mun
húsið hafa rétt sig við til fulls um
miðjan febrúar 1977.
Hæðarmælingar frá Mývatni til
Kröflusvæðisins hafa verið fram-
kvæmdar nokkrum sinnum siðan
i marz 1976, en þá kom i ljós, að
vi-ö stöðvarhús Kröfluvirkjunar
hafði land sigiðum rúma 2 metra
miðað við Reykjahlið. Siðan hefir
land risiö við Kröflu og I byrjun
ágúst 1976 var risið orðið 1 meter
siðan i marz.
Rishraðinn hefir veriö mjög
jafn, en siöasta mæling gaf til
kynna minnkun rishraðans um 5
til 10%. Þessi minnkun rishraö-
ans er svo litil, að hæpið er að um
raunverulega breytingu sé að
ræöa. Ef rishraðinn verður jafn
áfram, verður hæð lands við
Kröflu oröin jöfn og fyrir gos um
miðjan janúar 1977.
Nákvæmnishallamælingar
austan Námaskarðs sýna, að þar
ris land til norðurs eða norð-norð-
austurs, en hallabreytingar eru
þar aðeins 1/18 þess sem mælist
við stöðvarhúsið.
Þessar halla- og hæðarmæling-
ar sýna, að slðan i marz 1976 hefir
land risiö á Kröflusvæöinu. Risið
er i mjög góðu samræmi við það
ris sem fræðilega á aö eiga sér
stað ef efnisauki veröur á 2900
metra dýpi undir stað, sem liggur
500 til 1000 metra norðan stöðvar-
húss Kröfluvirkjunar. Þetta verð-
ur bezt skýrt með þvi, aö bráðin
kvika þrýstist að þessum stað.
Aðstreymið þarf að vera um 4,25
rúmmetra á sek. til að skýra
landrisið. Dýpi á kvikuna viröist
aðeins vera 2900 metrar, en þess
ber að gæta, að forsendur, sem
gera þarf ráð fyrir við útreikning
þessa dýpis, eru ekki að fullu
þekktar, svo vera má að nokkru
skakki, þó vart meira en 500
metrum.
Mælingar á landrisi og halla
gefa ekki til kynna, hvort gos á
eftir að verða, eða hvenær. Þó er
augljóst aö ekki getur land haldið
áfram að hækka mjög lengi þar
sem togspenna bergsins yfir
kvikuþrónni hlýtur þá að yfirstiga
styrkleika bergsins. Þá myndast
sprungur og um þær flæðir vænt-
anlega upp eitthvað af þeirri
hraunkviku, sem safnazt hefir
saman.
Þaö er ástæða til að hafa i huga
þá staðreynd, að land við Kröflu
mun ná fyrri hæð á fyrstu mánuð-
um ársins 1977, e.t.v. er þaö sá
timi þegar helzt má búast við
gosi.
Togspenna bergsins eykst þar
sem landris ermest, en það er ná-
lægt hánorðri frá stöðvarhúsinu i
500 til 1000 metra fjarlægð. Hæð-
armælingar benda til aö þar sé
mest hætta á gosi.
Aðrar mælingar:
Ymsar fleiri mælingar og at-
huganir hafa verið gerðar á
Kröflusvæðinu á þessu ári, en þær
gefa ennþá a.m.k. litlar eða engar
visbendingar varðandi hugsan-
lega goshættu. 1 marz varð vart
mikillar aukningar á gasi I bor-
holum við Kröflu, sem bendir til
þess að þá hafi nokkurt magn
hraunkviku komizt i snertingu viö
jarðvatn svæðisins. Sennilegt er,
að litlu hafi munað aö hraun
flæddi upp á yfirborð jarðar þeg-
ar þetta skeði.
Ályktanir:
1) Kvikuþró liggur undir allstóru
svæði viö Kröflu og eru vestur-
mörk þróarinnar við Leir
hnjúk, en suðurmörk nálægt
stöðvarhúsi Kröfluvirkjunar.
2) Miðja þessarar þróar er nálægt
Viti, en hún nær næst yfirboröi
jarðar (um 3 km dýpi)
skammt (0,5— 1 km) noröan
stöðvarhúss.
3) Inn I þessa kvikuþró hefir
streymt þunnfljótandi kvika
siðan i ínarz 1976. Aðstreymið
hefir verið jafnt, um 4,25 rúm-
metrar á sek., eða um 370.000
rúmmetrar á dag.
4) Ekki er með vissu vitað, hvaö-
an hraun streymir að kviku-
þrónni, en likur benda til að
kvikan komi upp um sprungu
þá sem gaus i Mývatnseldum á
átjándu öld, en flæði til austurs
út sprungunni á um 3 km dýpi.
5) Þegar hraunkvikan tók að
flæða inn i kvikuþróna við
Kröflu i marz 1976, komst
nokkurt magn af hrauni svo
hátt i jaröskorpuna að gas úr
þvi komst I jarðvatnið. Þá mun
hafa legið við að gos hæfist.
6) Nóg bráðin hraunkvika liggur
á litlu dýpi undir Kröflusvæö-
inu til að stórgos geti orðið.
Stöðugt bætist við kvikuna, en
það má túlka þannig, að mögu-
leiki sé á langvarandi gosi.
7) Ekki verður sagt með neinni
vissu, h vort gos hefst á Kröflu-
svæðinu á þessu ári, eða næstu
árum, og ekki hvenær slikt
gæti helzt orðið. Þó benda bæði
jarðskjálftamælingar og hæð-
armælingar til þess að gos-
hætta fari nú sifelllt vaxandi.
8) Ef svo fer, að gos hefjist að
nýju, þá verður það sennilcga
annað hvort á gossprungu er
liggur frá Leirhnjúk að Bjarn-
arflagi, eða i botni Hlfðardals,
rétt noröan við stöðvarhús
Kröfluvirkjunar.
9) Land viö Kröflu mun, meö nú-
verandirishraða, ná sömu hæö
og var fyrir gosiö 20. desember
1975 á fyrstu mánuðum ársins
1977. Landris umfram fyrri
landhæð má túlka sem merki
um yfirvofandi goshættu.
10) Likur eru til að gos, ef af þvl
verður, geri boð á undan sér
með snöggri aukningu á tiðni
jarðskjálfta. Sú aukning hefst
sennilega hálfri til tveimur
klukkustundum áður en gos
hefst. Vaktmenn við jarð-
skjálftamæla munu væntan-
lega geta sent út viðvörun áður
en hugsanlegt gos hefst.
11) Frásagnir af Mývatnseldum
1724-1729 gefa til kynna að eld-
gos á þessu svæöi geti verið
langvarandi en slitrótt. t Mý-
vatnseldum liðu nær þrjú ár
með slitróttri virkni unz stór-
gos hófst i ágúst 1727.
Reykjavik, 25. ágúst 1976.
Guðmundur E. Sigvaldson
Karl Grönvold
Eysteinn Tryggvason
Páll Einarsson
OARK II R — nýju endurbættu
rafsuðu- xsrvlr ,,s 08 4'00
TÆKIN 140 amp. Eru með innbyggðu
r öryggi til varnar yfir-
hitun.
Handhæg og ódýr.
Þyngd aðeins 18 kg.
Ennfremur fyrirliggj-
andi:
Rafsuðukapall
25 og 35 Sq. mm.
■XI
k A
ARMULA 7 - SIAAI 84450
ORYGGISHJALMAR
opnir og lokaðir
Eigum jafnan mikið úrval öryggishjólma, sem
hlotið hafa viðurkenningu í Evrópu og Banda-
ríkjunum sem skíða-, vélsleða-, vélhjóla, mótor-
hjóla- og bílarallyhjdlmar. Andlitshlífar úr glæru,
reyklitu og gulu öryggisgleri, einnig
mótorhjólagleraugu og baksýnispeglar í úrvali.
Verðið er ótrúlega Idgt.
Sendum gegn póstkröfu.
ORYGGI A VEGUM OG VEGLEYSUM.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8
IUTTL