Tíminn - 27.08.1976, Side 10

Tíminn - 27.08.1976, Side 10
10 TÍMINN Föstudagur 27. ágúst 1976 Föstudagur 27. ágúst 1976 TÍMINN 11 NORÐURí LAND Þaö rigndi eins og vanalega i Reykjavik, þegar viö Jóhann Jónasson, forstjóri Grænmetis- verzlunar landbúnaöarins, lögö- um af staö til Akureyrar þriöju- daginn 10 ágúst þeirra erinda aö lita eftir ræktun útsæöiskartaflna á 14 stööum i Kaupangssveit, Svalbarösstrandar- og Grýtu- bakkahreppum. Eru jafnan þarna 2 eftirlitsferöir á sumri, og hefur undirritaöur framkvæmt sjúkdómaeftirlit. Eyjafjöröur heilsaöi meö sól og sumri. Fögur byggöin blasti viö úr lofti, grænir garöar, slegin og alhirt tún. Rosk- iö fólk kvaöst varla muna eftir ööru eins einmunagóöu sumri. Aö visu haföi veriö sunnanstrekking- ur nokkra daga og fauk litilshátt- ar af heyi, en mestallt var þaö komiö i hlööu áöur. Dálitiö sá á kartöflugrösum sums staöar, en þóekkitil teljandi skemmda. Arfi sást varla i þessari samfelldu þurrkatiö og flestir garöeigendur nöföu úöaö meö arfaeyöandi lyfjum i vor. baö sparar mjög vinnu, en mikla nákvæmni þarf viö blöndun og notkun lyfjanna — eins og allra plöntulyfja. Upp- skeruhorfur virtust mjög góöar, þroskinn talsvert á undan meöal- lagi á þessum tima. Ashóil, nýbýli I landareign Laufáss, er miöstöö útsæöisrækt- arinnar þarna nyröra og hefur held ég allt aö 9 ha kartöfluakra, bæöi niöur viö sjó á eyrunum og suöur frá bænum. Smáhorn viö sjóinn var sviöið af særoki. Útsæðiskartöflutegundirnar, sem Grænmetisverzlunin lætur rækta, eru: Gullauga, Helga Rauöar islenzkar og Bintje. Heil- brigöi virtist yfirleitt góö, en jafn- an ber þó eitthvað á stöngusýki og tíglaveiki. Ersennilegaógerning- ur aö útrýma þeim alveg, en vel fært aö halda þeim i skefjum, ef vandað er val á útsæöi — og fariö umgarðana á sumrin, litiö eftir og sjúk grös fjarlægö, ásamt þeim kartöflum, sem undir þeim kunna aö vera. Niöri á Fnjóskáreyrum var allt fagurblátt af umfeðmingi. Þar eru „prestagaröarnir”. Hefur i f jörunni neðan viö Ashól 10. ág. 1976. Kartöfluupptaka sunnan viö Laufás 11. ág. 1976. / séra Bolli Gústafsson og fleiri prestar haft þar talsveröa kartöflurækt i mörg ár. Gæsir sækja hér aö á stundum. A myrd, sem tekin er i fjörunni neöan við Ashól, sýnir Bergvin Jóhannsson bóndi okkur „gæsa- hræöu”. Hún hefur stabiö þarna i mörg ár, sagði hann og er klædd i gömlu fermingarfötin min. Hér á einnig viö visan gamla, kveöin um reka á Ströndum: „Öjá, elsku vinurinn — fjörurnar eru fullar af: Asum, súlum, röftum, rám, keflum, mori, kubbum, trjám”. Rétt sunnan við Laufás var fólk frá bænum Sigluvik að taka upp kartöflur til sölu, er okkur bar aö garði i fylgd Karls Gunnlaugs- sonar kaupfélagsstjóra. Upp- skeran ver óvenjugóð, svo snemma á tima. Fyrstu kartöflur af þessum slóðum höföu komiö á markaðá Akureyri nokkrum dög- um fyrr. Karl ók okkur brátt til Grenivlkur, sem er kauptún i vexti og viðgangi, rétt utan viö Höföann. Bæirnir Hjalli og Finna- staöir skammt frá eru nú yztu byggö ból á Látraströnd, en hún var áöur byggð allt út i hinn kunna útgerðarstað Látur, er mikiö kemur við sögu i bók Haga- lins „Virkir dagar”. — Mér þykir leiöinlegt aö sjá ljósin smáhverfa af Látraströndinni, sagöi bóndi vestan fjarðar, er mundi allfjöl- menna byggð þar, og fast var sóttur sjórinn. A Grenivik hafa nýlega verið geröar hafnarbætur, ibúöarhús eru i byggingu og unniö er viö hol- ræsagerð. Frystihús er þarna og minkabú. Frá Grenivik eru nú gerðir út þrir stórir bátar — um 30 tonn — auk smærri þilfarsbáta og trilla. Um 40 manns borða að staðaldri i mötuneyti á Grenivik — og sýnir það atvinnuna. Á myndinni er horft af brún Höfðans noröur yfir Grenivik og i blásinn Kaldbak. Oft blæs á norö- an á Grenivik og særok gengur yf- ir. önnur mynd sýnir stærstu tré á Grenivik. Þaö eru 30-40 ára göm- ul reynitré, er vaxa i skjóli við húsiö Miðgarð. Særokið sviður laufið, ef trén reyna aö gægjast upp yfir húsiö. Til hægri er unnið aöholræsagerð rétt viö grænmál- að, gamalt sjóhús, byggt upp úr húsi i Hrisey. Af Höfðanum rétt sunnan viö Grenivik er hiö fegursta útsýni út og suöur um Eyjafjörö. 1 skjól- sælum Kvigudölum vestani Höfö- anum hefur land veriö brotiö til tún- og kartöfluræktar. Annast bæöi Höfða- og Grenivikurbúar þau ræktarlönd. Bændur höföu hvarvetna lokiö fyrri slætti, en sums staöar haföi verið borið á i annaö sinn, og var beðið eftir góöri háarsprettu. Menn voruað dytta aöhúsum sin- um og verkfærum, kljúfa rekavið i giröingahólk fyrir fé aö haust- lagi o.s.frv. Mikiö var rætt um tankvæðingu þá, er stendur fyrir dyrum. Hún er mjög dýr og veröur liklega til þess, aö sum kúabú stækka, en önnur veröa lögö niöur og snúiö yfir i sauöfjárrækt. Vonandi batn- ar mjólkin eitthvað viö breyting- una, ef vel er aö verki staöiö. Erlend reynsla viröist benda I þá átt, aö mjög þurfi aö vanda til tankanna og hiröingu þeirra, ef bót til mjólkurgæ.öa á aö veröa aö þeim. Og tankvagnar eru mjög þungir og þurfa góöa snjólétta vegi og öruggar heimkeyrslur aö bæjunum. Hvarvetna blöstu viö stór upp- borin hey, vel verkuö. Myndin sýnir eitt á Stóru-Hámundarstöð- um. Gamalli sildarnót hefur veriö hvolft yfir heyiö, og stög meö þungum steinum hanga niður meö hliöunum. Þetta er gott farg, og tryggir gegn suövestanvind- um, er hér eru stundum snarpir. A Akureyri var suddi úr lofti, aldrei þessu vant, 12. ágúst. Þungur himinn grúfði yfir tjald- svæöinu viö Þórunnarstræti, sem oft hefur verið þéttsetiö i sumar. En brátt skeim sól á ný. Reyni- berin voru aö veröa rauö — og út um móa var fólk byrjaö að vaga með berjailát sin. Ing.Dav. 30-40 ára reynitré viö Miögarö á ág. 1976. Hey á Stóru-Hámundarstööum 13. ág. 1976. Séö yfir Grenivik 10. ág. 1976. Tjaldstæðiö viö Þórunnarstræti á Akureyri 12. ág. 1976.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.