Tíminn - 27.08.1976, Qupperneq 17
Föstudagur 27. ágúst 1976
TÍMINN
17
FH-ingar voru að fagna
þegar Skagamenn skoruðu
— sigurmarkið (3:2) á Kaplakrikavellinum í gærkvöldi og tryggðu sér farseðilinn
í úrslit bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum
Skagamenn tryggðu sér
rétt til að leika tii úrslita í
bikarkeppninni/ þegar þeir
unnu sigur (3:2) á FH-ing-
um á Kaplakrikavellinum í
Hafnarfirði í gærkvöldi.
Árni Sveinsson tryggði
Skagamönnum sigurinn#
þegar hann skallaði knött-
inn í netið hjá Hafnfirðing-
unum, þegar 8 mínútur
voru til leiksloka.
Skagamenn áttu í miklu basli
með FH-inga, þrátt fyrir að þeir
voru alltaf betri aðilinn. Það var
ekki laust við, að það færi skjálfti
um þá, þegar FH-ingar náðu að
vinna upp tveggja marka (2:0)
forskot þeirra og jafna (2:2)
þegar 9 minútur voru til leiks-
loka. En Skagamenn gáfust ekki
upp — þeir snéru dæminu við
strax á eftir og 'AHANGENDUR
FH-liðsins voru enn að fagna
jöfnunarmarki Helga Ragnars-
sonar þegar Skagamenn voru
búnir að senda knöttinn i netiö hjá
FH-ingum og trvggja sér farseð-
ilinn i úrslitin á Laugardalsvell-
inum 12. september.
Skagamenn mættu ákveðnir til
leiks — og fljótlega tóku þeir leik-
inn i sinar hendur. FH-ingar áttu
þó margar hættulegar sóknarlot-
ur, þar sem varnarleikur Skaga-
manna var oft mjög gloppóttur.
Fyrsta hættulega marktækifærið
kom á 13. minútu, þegar Arni
Sveinsson tók aukaspyrnu fyrir
utan vitateig FH-inga. Árni
„vippaði” knettinum skemmti-
lega yfir varnarvegg FH, og skall
knötturinn á þverslá FH-marks-
ins. Það var svo ekki fyrr en á 32.
minútu, að Skagamenn fundu
leiðina að marki Hafnarfjarðar-
liðsins, Jón Alfreðsson sendi þá
góðan bolta fyrir mark FH-inga,
þar sem Arni Sveinsson tók við
honum og skaut lausu skoti að
marki. Ómari Karlssyni, mark-
verði FH, urðu þá á ljót mistök.
1 staðinn fyrir að góma knöttinn
örugglega, kastaði hann sér niður
— fékk knöttinn i brjóstið og það-
an hrökk knötturinn til Teits
Þórðarsonar, sem skoraði örugg-
lega. Teitur Þórðarson var siðan
aftur á ferðinni á 3. minútu siðari
I Allir beztu kylfingar landsins
verða i sviðsljósinu á Nesvell-
inum á sunnudaginn, en þá fer
fram „GLASSEXPORT” keppn-
in. Fimm beztu kylfingum frá
stærstu golfklúbbum landsins
hefur verið boðið til keppninnar
Iog einum bezta kylfing Luxem-
borgar — Alec Graas.
Glæsileg verðlaun eru i boði, en
það eru þrir glæsilegir kristal-
vasar, sem eru eignarverðlaun
og auk þess fjórði vasinn, sem er
farandverðlaunagripur. Búast
má við að 25-30 beztu kylfingar
okkar mæti til leiks i keppnina,
sem hefst kl. 10 á sunnudags-
morguninn. Leiknar verða 36
holur.
Siaurður
keppir um
heims-
bikarinn
IHann æfir með
landsliði Svía í vetur
SIGURÐUR ^
Jónsson, hinn
ungi og efnilegi
skiðamaður frá
isafirði, hefur
Iákveðið að taka
þátt i heims-
bikarkeppninni,
sem fer fram
viðs vegar um Evrópu i vetur.
Sigurður mun æfa meö sænska
Ilandsliðinu i vetur — en hann er
nú byrjaður að æfa á fullum krafti
i Sviþjóð.
Sigurður lieldur til ttaliu meö
sænska landsliöinu 5. september
Ítil æfinga —og siöan mun keppnin
um heimsbikarinn hefjast og
verður Sigurður þá i keppnum i
allan vetur og langt fram á vor.
Glæsi-
leg
verðlaun
á Nesinu
PÉTUR PÉTURSSON... hinn stórefnilegi leikmaður Skagamanna, sést hér I baráttu við Magnús Teits-
son, bakvörð FH-inga á Kaplakrika vellinum I gærkvöldi. (Timamynd: Gunnar).
hálfleiks, þegar hann „nikkaði”
knettinum yfir varnarvegg FH-
inga — til Péturs Péturssonar,
sem skoraði auðveldlega af stuttu
færi — 2:0.
FH-ingar náðu að minnka mun-
inn (2:1) á 57. minútu, þegar
íþróttir
Umsjön;
Sígmundur O.
Steinarsson
Gunnar Bjarnason skoraði með
skalla. Hafnfirðingarnir náðu sið-
an að jafna (2:2) á 81. minútu,
þegar Helgi Ragnarsson skoraði
eftir varnarmistök Skagamanna.
Helgi skoraði með hælnum, eftir
að hann hafði fengið sendingu frá
Leifi Helgasyni. Eins og fyrr seg-
ir, þá var gleðin ekki lengi i her-
búðum FH-inga, þvi að Arni
Sveinsson tryggði Skagamönnum
sigur, með þvi að skalla knöttinn
aftur fyrir sig og i mark FH-inga,
eftir sendingu frá Guðjóni Þórð-
arsyni.
Pétur Pétursson, hinn stórefni-
legi leikmaður Skagamanna
vakti mikla athygli á Kaplakrika-
vellinum. Þessi 17 ára piltur sem
var aðalógnavaldur FH-inga,
sýndi stórgóðan leik - var pottur-
inn og pannan i sóknarleik Skaga-
manna. Pétur er fljótur og ákveð-
inn leikmaður, sem hefur næmt
auga fyrir samspili og einnig skil-
ar hann knettinum mjög vel —
sendir hann kantanna á milli.
Þarna er gifurlegt efni á ferðinni.
Þá má geta þess til gamans, að
Helgi Númason, fyrrum lands-
liðsmaður úr Fram, lék sinn
fyrsta leik með FH — kom inn á,
sem varamaður. Helgi var nær
búinn að skora gott mark, þegar
hann kastaði sér fram og skallaði
knöttinn að marki Skagamanna
— en áður en knötturinn komst
alla leið, náðu Skagamenn að
bjarga. —-SOS.
KR-ingar réðu
ekki við Hinrik
— og Blikarnir mæta íslandsmeisturum Vals í
undanúrslitum bikarkeppninnar
KR-ingar réðu ekki við landsliðsmiðherjann Hinrik Þór-
hallsson á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, þegar þeir
mættu Blikunum í bikarkeppninni. Hinrik, sem gerði
varnarmönnum Vesturbæjarliðsins oft lífið leitt, skoraði
2 mörk á fimm mínútum og öruggur sigur (3:1) Köpa-
vogsliðsins var í höfn. Blikarnir mæta því nýbökuðum
íslandsmeisturum Vals i undanúrslitum á Laugardals-
vellinum á þriðjudaginn kemur.
Blikarnir náðu fljótlega tökum
á leiknum, þar sem þeir léku
undanstrekkings vindi. Þeir léku
mjög góða knattspyrnu gegn
Vesturbæjarliðinu — knötturinn
gekk manna á milli. Það var eftir
eina af stórgóðum sóknarlotum
þeirra, (20. min.), að Gisli Sig-
urðsson skoraði mjög fallegt
mark — hann fékk knöttinn send-
ann fyrir markið, tók hann niöur
og skoraði með góðu vinstrifótar-
skoti frá vitateig. Ólafur Frið-
riksson fékk stuttu siðar gullið
tækifæri til að bæta öðru marki
við, þegar hann komst einn inn
fyrir KR-vörnina. Magnús varði
þá gott skot frá honum — en hann
hélt knettinum ekki, hann skopp-
aði aftur til Ólafs, sem stóð þá
fyrir opnu marki. ólafi brást þá
bogalistin, eins og svo oft áður —
hann skaut i stöng.
KR-ingar snéru dæminu við i
siðari hálfleik, þegar þeir höfðu
vindinn i bakið. Þeir sóttu
grimmt — en það var ekki nóg,
þvi að Hinrik Þórhallsson gerði út
um leikinn með tveimur mörkum
á fjórum minútum — 15. og 19.
minútu. I bæði skiptin var Hinrik i
þröngri aðstöðu. Hann náði i bæði
skiptin að senda knöttinn með
jörðu, fram hjá varnarmönnum
KR og i netið.
Eftir þetta sóttu KR-ingar i sig
veðrið og sóttu stift að marki
Blikanna, sem léku varnarleik.
Þeim tókst aðeins einu sinni að
koma knettinum i netið og var
markið mjög ódýrt. Sigurður
Indriðason átti þá fast skot að
marki Blikanna — knötturinn
skall á Ólafi Hákonarsyni, mark-
verði, sem hélt knettinum ekki,
með þeim afleiðingum að hann
skoppaði i gegnum klofið á honum
og i netið. KR-ingar héldu press-
unni áfram að marki Blikanna, en
þeir vörðust vel og sigurinn var
þeirra.
Eins og fyrr voru bræðurnir
Hinrik og Einar Þórhallssynir
beztu menn Breiðabliksliðsins, en
Hálfdán örlygsson átti bezt-
an leik KR-inga.
MAGNÓS JÓNSSON... hinn efnilegi leikmaður KR. sést hér sækja að
marki Breiðabliks i gærkvöldi. Bjarni Bjarnason og Heiðar Breiðfjörð
eru til varna. (Timamynd: Gunnar).