Tíminn - 05.09.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 5. september 1976
Systurnar fjórar Margrét, Gubrún, Anna og Agústa I islenzkum
skautbúningi.
t þessu húsi viö Skólavöröustig er sýningarsalurinn „Loftiö”.
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
138
í gamla daga
1 133. þætti 1. ágúst siðastlið-
inn var birt mynd af fjórum
konum á skautbúningi. Hefur nú
borizt vitneskja um málið frá
Jóni Sigurðssyni á Hrepphólum
i Arnessýslu ofl. Jón skrifar:
„Þetta eru systur minar
Margrét, Guörún, Anna og
Agústa (talið frá vinstri) — og
tók ég myndina um 1922 á heim-
ili okkar, og eru bæjarhúsin,
baðstofan og stofuhúsið i bak-
sýn. tJtihúsin eru svo lengra til
vinstri, geymsla, skúr, hey-
hlaða og fjós, einnig i skúr-
bvggingu. —
Systurnar ólust upp i foreldra
húsum og þar sem móðir okkar
(JóhannaGuömundsdóttir) var
mjög vei verki farin til klæða-
gerðar og sauma, var fundið
upp á þvi, til tilbreytingar frá
rokknum og vefstólnum, að
keypt var allt efiii til upphluta-
gerðar annað en beltin og ennis-
spöngin og þær voru samtimis
látnar baldera, sauma rósa-
bekkinn og allt annað, sem til
þurfti, undir tilsögn móður
sinnar, en þetta allt hafði hún
lærti föðurgarði ásinum tima”.
Kortiö mun vera gefiö út um
1930.
Marfuklukkan setur skemmtilegan svip i þetta hús á Bergþórugötunni.
Gamalt verzlunarhús á Klapparstignum.
Fróðlegt væri að fá fleiri
myndir af búningum, hannyrö-
um, vinnubrögðum og ýmsum
byggingum fyrr á tíð. Fjárhús
og fjós ekki undanskilin. Og
hver á mynd af fjárleit að
vetrarlagi?
Víkjum snöggvast tíl Rejkja-
vikur, beygjum upp á Skóla-
vörðustíg og litum þar á nr. 4,
lágt hús hlaðiö úr grásteini, þak
rauít. Skrautmunaverzlun er
niðri, en spjald með nafninu
„Loftið” hangiryfir dyrum. Til
gamans má geta þess, að i
verzlunin niðri fékk viðurkenn-
ingu fyrir smekklegustu
gluggaútstillinguna, en sú
viðurkenning var veitt á afmæli
Reykjavíkurborgar 18. ágúst
siðastliðinn. Ergengiði gegnum
búðina upp i sýningarsal er
nefnist Loftið. Sambyggt til
hægri er grátt bárujárnsklætt
hús, með verzlun niðri, eru
bókabúðir á báðar hendur þess-
um byggingum — Bókin til
vinstri og bókaverzlun Lárusar
Blöndal til hægri. Breiðfirðinga-
búð að baki og leynir á sér. —
A Klapparstig 30 ber fyrir
augu litið fomlegt hús, gult á lit
með rauðu þaki, klætt sléttu
blikki. Grunnur steyptur og
baklóðarhluti hússins. Gengið
frá götunni inn i matvöruverzl-
un (Vaðnes). Til hægri á mynd-
inni sér i hlaðinn gafl heldur
stærra gamals nágrannahúss
með gulu bárujárni á framhlið.
Að baki sér i hið græna allstóra
hús matvörubúðar Náttúru-
lækningafélagsins, handan
Laugavegar.
A Vatnsstig 33A ber fyrir augu
roskinlegt, dimmrautt steinhús
með háum reykháfum, kvisti,
þakgluggaútskoti og háum
tröppum. Þakiö er grænt. Sér i
steinhús til hægri nýlegra að
sjá, og öldurmannlegt báru-
járnshús til vinstri.
A Bergþórugötu 17 sjáum við
lágt bárujárnshús grátt til
vinstri, og til hægri við það ögn
hærra steinhús, klætt fagur-
grænum fléttum af mariu-
klukku báðum megin við
glugga. Há steinhús eru á báðar
hliðar hinna gömlu lágu bygg-
inga, en trérimlagirðing
sameinar gamalt og nýtt.
Roskinlegt steinhús á Vatnsstig 33A.