Tíminn - 05.09.1976, Qupperneq 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 5. september 1976
„Ingi
Björn er
beztur"
Ingi Björn Albertsson, fyrirliöi Islandsmeistara Vals
kemur f yrir sjónir sem hár og grannur og með ódrepandi
keppnisskap. Að sjálfsögðu er þessi lýsing ekki tæmandi.
Maður, sem hefur leitt Valsliðiðtil sigurs með frábærum
árangri, hefur meira til brunns að bera en ódrepandi
keppnisskap. Ingi Björn, sem er 23 ára, hefur skipulags-
gáf ur í ríkum mæli og hann hef ur bæði getu og þroska til
að vera hinn uppbyggjandi miðvallarspilari — lykilmað-
ur á bak við stórhættulegan sóknarleik Valsliðsins, sem
allir varnarmenn og markverðir óttast.
Skipulagsgáfur Inga Björns
hafa komið i Ijós I hinum óvænta
og góða leik Valsliðsins. t sumar,
virtist Valsliðið vera að gefast
upp undan hinni þungu pressu,
sein fylgirþviað vera á toppnum.
Leikmenn liðsins féllu ofan I öldu-
dal, og þegar þeir virtust vera að
uppgjöf komnir, tók Ingi Björn
við stjórninni. Honum tókst að
rétta „Vals-skipið” við og stýra
þvi i örugga höfn. Þessi sókn-
djarfi leikmaður átti cftir þann
kraft, sem þurfti til að koma
Valsmönnum upp úr öldudalnum.
Hann stillti fallbyssuna og skor-
aði mörg glæsileg mörk, sem
ruddi keppinautum Valsmanna
úr vegi siðasta spölinn að meist-
aratitlinum.
Nafn Inga Björns var á hvers
manns vörum, og hann var dýrk-
aður af hinum tryggu áhangend-
um Valsliðsins, sem sungu „Ingi
Björn er beztur”, eftir að hann
hafði tryggt Valsmönnum meist-
aratitilinn með tveimur (2:0)
mörkum gegn Þrótti f siðasta leik
Valsinanna i 1. deildarkeppninni.
Varð fljótt mikill marka-
skorari
INGI BJÖRN Albertsson lék
sinn fyrsta leik með Valsliðinu
1970, þá aðeins 17 ára gamall.
Þessi ungi piltur vakti þá mikla
athygli og mátti þá lesa þetta i
Timanum:
— „Þarna er á ferðinni geysi-
legt efni. Þótt ekki hafi borið mik-
ið á honum, sást strax, að hann á
framtiðina fyrir sér, það sem
hann gerði, hefðu fáir gert betur.
Ingi Björn virtist afslappaður og
fullur af sjálfstrausti — og það er
ekki að efa, að hann á eftir að
klæðast landsliðspeysunni oft i
framtiðinni.”
Ingi Björn opnaði markareikn-
ing sinn hjá Hliðarendaiiðinu I 1.
deildarkeppninni, þegar hann
skoraði glæsilegt mark gegn
Vestmannaeyingum 1970 og
tryggði þar með Val sigur 3:2.
Eftir þetta átti Ingi Björn eftir aö
verða marksæknasti leikmaöur
Valsliðsins og skoraði hann 6
mörk þetta keppnistimabil. Ingi
WkS
INGI BJÖRN ALBERTSSON...sést hér með tslandsmeistarabikarinn, sem Valsmenn komu með heim,
eftir niu ára útlegð frá Hliðarenda.
Björn hélt svo áfram sömu iðju
1971, og kom þá engum á óvart, að
hann var valinn i landsliðið, sem
lék gegn Frökkum á Laugardals-
vellinum, en þeim leik lauk með
jafntefli — 0:0. Þessi marksækni
leikmaöur, sem var þá 18 ára,
skoraði 9 mörk i 1. deildarkeppn-
inni 1971 og baröist hann þá um
markakóngstitilinn — og einnig
árið eftir, þegar hann skoraði 11
mörk. Ingi Björn skoraði sitt
fyrsta „hat-trick” — þrjú mörk i
leik, gegn Eyjamönnum i 1. deild-
arkeppninni 1971, og siðan hefur
hann þrisvar sinnum leikið það
eftir.
Fór meö skotskóna til
Frakklands
Þegar Ingi Björn var búinn að
skipa sér á bekk meö mestu
markaskorurum íslands, fór
hann i Viking til Frakklands, þar
sem hann lék með 2. deildarliðinu
Cognac, frá samnefndri borg.
Ingi Björn skildi skotskóna ekki
eftir heima, þvi að hann skoraöi
32 mörk með liðinu keppnistima-
biiið 1973. Þá dvaldist Ingi Björn
um tima i Paris, þar sem hann
æfði með hinu þekkta franska 1.
deildarliði St. Etienne og lék einn
æfingaleik meö liðinu þar sem
hann skoraði 4 mörk. Ingi Björn
fékk þá boð hjá St. Etienne, um að
hann væri velkominn.
— Þú tókst ekki þessu freist-
andi boði, Ingi Björn?
— Nei, ég hafði takmarkaðan
áhuga á þvi, enda taldi ég þá, að
ég væri ekki tilbúinn að gerast at-
vinnumaður.
— Myndirðu taka atvinnutil-
boði, ef þú fengir það I dag?
— Já, ég reikna fastlega með
þvi — það færi allt eftir þvi hvaö
væri i boði.Ég færi ekki i hvaða
lið, sem væri. Helzt vildi ég fara
til meginlands Evrópu.
— Nú var þér sagt, að þú mætt-
ir koma til St. Etienne, hvenær
sem þú vildir.
— Já, en ég myndi ekki hafa
samband við félagið að fyrra
bragði. Ég ætla ekki aö fara að
ota mér i atvinnumennskuna.
Annað hvort fæ ég tilboð, eða
ekki.
Framtíðin er björt
Ingi Björn kom siðan aftur
heim 1974, eða sama ár og Rúss-
inn Youri Ilitcev tók við þjálfun
Valsliðsins, sem varð það ár bik-
armeistari, og var Ingi Björn þá
enn einu sinni markhæstur Vals-
manna.
— Þið hafið tekið miklum
framförum undir stjórn Rússans?
— Já, það höfum við örugglega
„Þetta verður ekki siðasti bikarinn, sem
sjálfsögðu mjög stoltur af syni sinum.
hann vinnur”, sagði Albert Guðmundsson, eftir að Ingi Björn tók við bikarnum. Hann er að
AAYNDIR:
Gunnar
Andrésson
TEXTI:
Sigmundur O.
Steinarsson