Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 31
Sunnudagur 5. september 1976
TÍMINN
3]
HLJÓMPLÖTUDÓMAR
NÚ-TÍMANS
Paradís— Paradís
PAR-002
AÐUR FYRR þótti þaö heyra til
meiriháttar viöburöar I islenzku
popptónlistarilfi, þegar Islenzk
hljómsveit gaf út plötu. Nú á
timum islenzks plötuflóös taka
menn vart eftir þvl þótt ný Is-
lenzk hljómplata komi á mark-
aöinn, vegna þess aö vart liöur
sú vika, aö ekki komi út plata
frá hljómsveit eöa einstaklingi.
Eftir sumum þessara platna er
þó beöiö meö mikilli eftirvænt-
ingu og þ.á.m. ný plata meö
hljómsveitinni Paradis — enda
hefur hijómsveitin vcriö i
fremstu röö islenzkra popp-
hljómsveita allt frá stofnun
hennar.
Astæöan fyrir því, aö margir
biöu spenntir eftir plötunni var
ekki sizt sú, aö hljómsveitin
hafði leikið lög af plötunni á
dansleikjum löngu fyrir útkomu
hennar. Þau lög, sem þeir léku
helzt og urðu nokkuð vinsæl
voru lögin „Tarzan” og „Rabb-
its”. Þetta eru létt og hressileg,
melódisk rokklög með góðum
danstakti — og lofuöu góðu um
plötuna.
En ég get ekki annað sagt en
að ég hafi orðið fyrir dálitlum
vonbrigöum er ég heyrði plöt-
una. Umrædd lög eru ekki nánd-
ar nærri þvl eins lifleg og fjörug
á plötunni og hjá Paradis á
sviði. Þetta á ekki bara við þessi
tvö lög heldur raunar alla plöt-
una i heild — lögin virðist skorta
allan kraft og tilfinningu.
Það er ekki þar með sagt, að
platan sé léleg. Margt er vel
gert, og þó aö ýmislegt mætti
betur fara, er ekki hægt að segja
annað en að Paradis komist
sæmilega frá þessari fyrstu
plötu sinni.
Þegar hlustað er á islenzkar
rokkplötur, velta menn þvi oft
fyrir sér, hvort viðkomandi
hljómsveit sé undir áhrifum
einhverrar sérstakrar erlendr-
ar hljómsveitar. Þegar hlustað
er á Paradisarplötuna, er ekki
gott um þetta að segja, þvl gif-
urlegur fjöldi hljómsveita leikur
þessa tegund tónlistar, þ.e. létt
melódiskt rokk. Þó get ég ekki
neitað þvi, að I sumum lögum
minnir Paradis mig mjög á
bandarisku rokkhljómsveitina
J. Geils Band, þó svo það geti
allt eins stafað af þvi, aö hljóð-
færaskipan hljómsveitanna er
mjög svipuð.
En svo við snúum okkur aftur
að Paradisarplötunni, þá eru á
henni 10 lög, öll eftir meðlimi
hljómsveitarinnar, þar af fimm
eftir gitarleikarann Björgvin
Gislason. Textar eru eftir ýmsa
menn hér I bæ, og eru þeir upp
og ofan — þó aðallega ofan eins
og oft vill henda, er islenzkir
fara að semja dægurlagatexta á
enska tungu.
Eitt lag er það, sem sker sig
úr á plötunni að gæðum, en það
er siöasta lag plötunnar „Life Is
A Liar” eftir Björgvin, og væri
betur ef fleiri slik lög prýddu
plötuna. Lagið er töluvert flók-
ið, og minna sumir kaflar þess á
Emmerson, Lake & Palmer, en
lagið er i heild mjög ólikt öðrum
lögum plötunnar.
Ánnað lag sker sig einnig úr,
en ekki að gæðum — heldur er
þar slakasta lag plötunnar,
„Dance Queen”. Lagið er með
nokkurs konar diskótakti og
stingur þvi mjög i stúf við önnur
lög, og fæ ég ekki skilið hvaða
erindi það á á þessa plötu.
Eitt lag er það enn, sem vert
er að minnast á, en það er lag
Nikulásar Róbertssonar,
„Someday”, en þar er á ferðinni
ein fallegasta melódia, sem ég
hef heyrt á islenzkri plötu um
langt skeið. 1 þessu lagi er einn-
ig gullfallegt gitarsóló frá hendi
Björgvins.
Annaö sem vekur athygli I
þessu lagi, er það, að lagið er
ekki sungið af Pétri Kristjáns-
syni, heldur af Pétri Hjaltested,
og hlýtur það að vera dálitið
sárt fyrir Pétur Kristjánsson aö
kyngja þeim bita, að þetta skuli
tvimælalaust vera bezt sungna
lagið á plötunni.
Utlit plötuumslagsins er einn-
ig hið þokkalegasta, en um það
sá Þorsteinn Eggertsson, og
teiknaði hann jafnframt mynd
þá, sem er á framhlið umslags-
ins, en Björgvin Pálsson tók
ljósmyndina af Paradis, sem
prýðir bakhlið umslagsins.
Textar fylgja plötunni, allir
handskrifaðir af Þorsteini Egg-
ertssyni, og er greinilegt, að
þetta er mun verðugra svið fyrir
Þorstein að starfa við, heldur en
að fást viö textagerð.
Þegar litiö er á plötuna i heild,
má segja, að þar sem flestir
meðlima Paradisar eru mjög
reyndir tónlistarmenn og hafa
komið fram á fjölmörgum plöt-
um —hefði mátt búast við vand-
aðri plötu en raun varð á.
Ef ekki veröa tiðar manna-
breytingar I Paradis, er ekki að
efa, að hljómsveitinni á eftir að
takast betur upp við plötugerð.
Beztu lög:
Life Is A Liar
Someday
—SþS.
Rokkhátíðin
tókst
ágætlega
V MlDVIKl DAGSKVOI.I) kom
Óttar Kelix llauksson fimm
hljómsveitum l'yrir a sviðiliu i
l.auardalshöllinni og hélt þar
ágæta rokkhátið. L'm 20(10
manns sóttu samkomuna, sem
fór i alla staði vel fram. Kimm-
hljómsveitir léku, Kresh, Kik,
í'abaret. telsius og Paradis —
og voru menn alls ekki á einu
máli um þaö, livaða hljómsveit
liati verið bezt. Hljómsveitirnar
komust allar vel frá sinu hlut-
verki og vöktu óblandna ánægju
meðal poppunnenda. sem eru
samkomum sem þessum ekki
vanir. Allar hljóntsveitirnar
léku frumsamið efni að veru-
legu leyti.
Sjónvarpið sendi upptöku-
ntenn á staðinn og festi allt á
lilmu, einnig var Tony Coek
þarna til þess að festa allt á
hljóöhand. Sjónvarpsþáttur er
þvi væntanlegur og jafnvel
plata frá rokkhaliðinni !!)T(>.
J
George Benson — Breezin .
Boz Scaggs — Silk Degrees
Neil Diamond — Beautiful Noise
Wings At The Speed Of Sound .
Lou Rawls — All Things In Time
Chicago X.
Wiid Cherry.
Steve Miller Band — Fly Like An Eagle......15
Average White Band —Soul Searching......... 8
Beach Boys —15 Big Ones.................... 8
JohnDenver — Spirit....................... 1
Aerosmith — Rocks........................ 15
Barry Mainlow — This One’s For You......... 3
i HelenReddy — Music.Music.................. 4
i Linda Ronstadt — Hasten Down The Wind..... 2
- War —GreatestHits......................... 1
: Commodores — HotOn The Tracks............. 9
nýjar plötur
Stuðmenn — Tivoli
Vilhjálmur Vilhjálmsson — Með sínu
nef i
Rió — Verst af öllu
. L inda Ronstadt — Hasten Down the
Wind
lan Gillan Band — Child in Time
Queen — A Night At The Opera
The Richie Furay Band — l've Got A
Reson
Bachman Turner Overdrive — Best Of
BTO
Jefferson Starship — Spitfire
Black Street Crawler — 2nd Street
Roxy Music — Viva Roxy Music
Thin Lizzy — Jailbreak
The Band — Best Of. . .
Grand Funk Railroad — Good Singin
Good playin
Jon Anderson — Olias Of Sunhillow
D. Crosby/ G. Nash—Whistling Down
The Wire
Alice Cooper — A.C. Goes To Hell
10 cc — How Dare You
10 cc — 100 cc Greatest Hits
Chicago — Chicago X
Jeff Beck — Wired
The Rolling Stones — Black And Blue
Abba — Greatest Hits
The Bee Gees— Best of Vol 1 og 11
The Bee Gees — Main Course
Sendum gegn póstkröfu
Laugavegi 89 Hafnarstræti 17
sími 13008 simi 13303.