Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 33
Sunnudagur S. september 1976
TÍMINN
33
allir voru komnir til
náða, en ákveðið var að
fara snemma á fætur að
morgni.
Það var litið farið að
birta, er vélamaðurinn
kom þjótandi inn i tjald
ofurstans, vakti hann og
stamaði og rak i vörð-
urnar:
,,Mig ekki finna kon-
urnar. Þær gengið út.
Blökkumennirnir þrir
lika burtu.”
Ofurstinn glaðvaknaði
strax. Hann hafði kynnzt
of mikið þessum hita-
beltisþjóðum til þess að
skilja ekki, að hér var
illt i efni. í flýti vakti
hann Karl og Árna og
þeir þutu allir hálf-
klæddir út i kvenna-
tjaldið. Jú, það var rétt,
sem Arabinn sagði,
Tjaldið var tómt. Og það
vakti illan grun, að þær
höfðu tekið svefnpokana
og fatnaðinn með sér, en
slikt hefur enginn með á
venjulegri skemmti-
göngu. Karl og Árni
stóðu alveg undrandi.
Hér hafði eitthvað und-
arlegt skeð. En hvað
gat valdið burtför
þeirra?
Það var auðséð á öllu,
að hér höfðu engar
stimpingar farið fram.
Allt var óhreyft, það
sem eftir var i tjaldinu.
Karl fór að hugsa um
það, að Alice var vön að
drekka te áður en hún
sofnaði, og ef hún átti
bágt með svefn, þá lét
hún svefnskammta i te-
ið. Þetta vissu blökku-
mennirnir. Það gat
hugsazt, að þeir hefðu
látið of mikið af svefn-
meðulum i könnuna
jafnvel látið eitthvað
sterkara, og þær hefðu
svo allar drukkið af
þessum drykk. Þessir
blökkumenn voru nú
ekki allfjarri heimkynn-
um sinum. Það gat vel
verið, að þeir hefðu fyrir
löngu gert samtök um
að ræna stúlkunum. Þeir
héldu, ef til vill, að
frændurnir væru stór-
auðugir og myndu
greiða gifurlegt lausn-
argjald fyrir stúlkumar.
Karl athugaði tjaldið
nánar. Tekannan
stóð á borði við rúm
Alice og voru örlitlar
dreggjar i henni. Hann
bragðaði á þvi og var af
þvi sætur, smeðjulegur
keimur. Einkennilegt að
stúlkúrnar skyldu ekki
taka eftir þessu sér-
kennilega bragði, En
þessar leifar höfðu kóln-
að og staðið þama i 5
tima. Bragðið gat verið
verra nú en meðan teið
var heitt. Karl bjóst við,
að mannránið hefði farið
þannig fram: Um kvöld-
ið hefðu blökkumennirn-
ir blandað sterku svefn-
meðali i drykkinn, og
hefðu stúlkurnar þá
eiginlega misst ráð og
rænu. Þvi næst hefðu
þeir borið þær út úr
tjaldinu i svefnpokunum
og ef til vill vafið tepp-
unum utan um höfuðið á
þeim, ef þær skyldu
rumska og gefa frá sér
hljóð. Siðan hefðu þeir
bundið þær upp á úlfalda
NOTIÐ
ÞAÐ BESIA
Mýkt og
öryggi
með
GIRLING
••
H
F
Skipholti 35 ■ Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
eða hesta og þeyst i burt
með þær. Þeir hefðu vit-
anlega farið mjög
hljóðlega, til þess að
vekja ekki karlmennina,
sem sváfu i næsta tjaldi,
en þeir sváfu auðvitað
mjög fast, þar sem þeir
sofnuðu svo seint. Það
var lika álit ofurstans,
að þetta hefði farið
þannig fram. Hann var
heldur ekki i nokkrum
vafa um það, að blökku-
mennirnir þrir væru
þeir seku. Hann sagði,
að ofsi þeirra, peninga-
græðgi og hefnigirni ætti
sér engin takmörk.
Framkoma frú Alice við
þá hefði lika æst þá upp.
Nú ætluðu þeir að hefna
sin. Hefnd þeirra gat
orðið hræðileg. „En það
þýðir litið, að við stönd-
um hér og bollaleggjum
um þetta fram og aftur.
Við verðum að hafast
eitthvað að,” sagði
ofurstinn. „Við skulum
nú flýta okkur niður að
bátnum og senda hann
til Kosti með skeyti til
lögreglunnar um að
gera viðvart herflokkum
og lögreglu i E1 Obeid og
Sennar, og alls staðar,
þar sem lögregla er hér i
nágrenninu og tilkynna
það, sem skeð hefur.
Sjálfir verðum við að at-
huga nánasta umhverfið
og þorpið og freista þess
að komast á slóð þeirra.
Við verðum að fá full-
vissu um það, hvort
blökkumennirnir hafa
verið einir um þetta, eða
hvort þeir hafi haft að-
stoðarmenn.”
Að 10 minútum liðnum
voru þeir komnir niður
að bátnum. Þar skýrðu
þeir skipstjóranum i
flýti frá málavöxtum og
lögðu fyrir hann að
hraða sér sem mest
hann mætti til Kosti með
tilkynningu til lögregl-
unnar. Stundu siðar
brunaði Ramses með
fullum hraða niður fljót-
ið.
Karl, Árni og ofurst-
inn hófu nú leit i sjálfu
þorpinu. Það kom sér
vel, að ofurstinn talaði
ágætlega arabisku.
Hann gekk hús úr húsi
meðfram einu götunni i
Um Sir og spurði fólkið,
hvort það hefði ekki orð-
ið vart neinnar umferð-
ar eða séð nokkuð til
ránsmannanna, en allt
árangurslaust. Enginn
vissi neitt, eða ef hann
vissi eitthvað, þá vildi
hann ekkcrt segja. Þeir
voru alveg að gefast upp
við leitina, er gömul,
tannlaus kerling kom út
úr einum kofanum og
fékk ofurstanum
pappirsblað, án þess að
segja nokkurt orð. Á
ð
■ ■ ^
&
„Mér er mikið ánægjuefni að staðfesta að
Trabant Station 1976 er ég keypti hefur kom-
ið mér þægilega á óvart með hagkvæmni i
rekstri. Billinn fer vel á vegi og er sérlega
snarpur i akstri.
Trabantinn fer meö benzín fyrir kr. 1.470 til 1.540 á 418 km
vegalengd, sem ég ekoft, en þurfti áöur — meöan ég átti nýj-
an lúxusbQ — aö greiöa kr. 10.500 á sömu vegalengd. Aö lok-
um: Stiilingar og önnur þjónusta fyrirtækisins Ingvar Helga-
sonh.f. hefur reynztmér bæöilipurog örugg. "
Leifur Núpdal Karlsson
Starhólma 2, Kópavogi (Y-1419).
Vorum að fá sendingu
af Trabant-bifreiðum
TRABANT UMBOÐIÐ
INGVAR HELGASON
V
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 84511
Feluleikur
Innihurðin verður oftar á vegi þínum
heima fyrir en nokkuö annaó. Því er
vönduö smíói, góöur frágangur og fall-
egt útlit þaö sem mest er metið þegar
fram líöa stundir.
Viö merkjum huröirnar okkar, því viö
höfum ekkert aö fela.
SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI,
SÍMI 41380