Tíminn - 10.10.1976, Síða 24

Tíminn - 10.10.1976, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 10. október 1976 Á siðastliönum vetri kom út á vegum Rannsóknastofnunar vit- undarinnar skýrsla um Stjórn vitundarinnar og sálræn lyf, þar sem fram komu margs konar upplýsingar um sálfræðilegar að- ferðir til könnunar og stjórnar á vitund mannsins. Aðalmarkmiö skýrslunnar er, eins og segir i inngangi hennar: „Að kynna ör- fáar af þeim sálrænu, lifeðlislegu og félagslegu leiðum, sem fara má til þess að stjórna og þróa vit- undarlif mannsins, og stuðla þannig að þvi að draga úr hinni miklu notkun og misnotkun á sál- rænum lyfjum og vimugjöfum, sem sjá má i islenzku samfélagi nú.” Þar eö við telum að efni skýrslu þessarar eigi mikið erindi til almennings munum viö hér birta siðasta kafla skýrslunnar, sem fjallar um SALRÆN LYF OG VIMUGJAFA. Til skýringar birtum við f upphafi efnisy'firiít skýrslunnar, tilvitnanir í heim- ildfr haida sömu númerum og i heildarskýrslunni. Þar eð vitnaö er i kaflanum til skýringarmynd- araf bls. 21 er einnig hún birt hér- með. Höfundur skýrslunnar er Geir V. Vilhjálmsson, sálfræðingur, en hann er meðlimur i Félagsvis- indafélagi íslands og i Sálfræö- ingafélagi Islands og vinnur að sálfræðilegum rannsóknum á vegum Rannsóknastofnunar vit- undarinnar. Kaflinn fer hér á eftir. Algengustu vimugjafar. Hér er um hagnýta, ekki fræði- lega yfirlitsflokkun að ræða. Sum lyf koma fyrir i tveim flokkum, þar eð flokkarnir skerast að nokkru. Þetta er ekki tæmandi listi, mörg fleiri lyf og efni mætti nefna. A. Lyf eða efni notuð fyrst og fremst sem vimugjafar: Afengi (ethýlalkohól) Kaffi.svartte (caffein, tein o.f 1.), tóbak (nikotin) Cannabis (marijuana, hassish) LSD (lysergið) DOM („STP”) meskalin, psilosibin, DMT, o.fl. ofskynjunarlyf. ópium, heróin. B. Vimugjafar, sem hafa haft eða sem gætu haft læknislegt gildi áfengi: e.t.v. einstöku sinnum, sem róandi lyf gegn spennu eða streitu. kaffi, te: sem örvandi lyf gegn sleni, þunglyndi, til þess að draga úr matarlyst, „móteit- ur” gegn of stórum skömmtum svefnlyfja eða róandi lyfja. cannabis: notað af grasalæknum áður fyrr aðallega sem verkja- deyfandi eða róandi lyf. LSD, Meskalin, psilósibin, DPT (diphenyl tryptamine) o.fl. of- skynjunarlyf hafa veriö notuö i sállækningum (psychedelic eða psycholytic therapy) og til þess að rannsaka starfsemi mið- taugakerfisins og sálarlifsins. Kókain: var áður fyrr mikið not- að til staðdeyfingar og er notað enn i sambandi við staðdeyf- ingar auga, einnig áður fyrr mikið notað sem örvunarlyf likt og kaffi nú. ópium: notað sem svefnlyf og sársaukadeyfandi lyf fyrr á öldum, ýmis efni úr ópium hafa verið og eru enn mikið notuð, t.d. morfin, dilaudid og codein. C. Læknislyf, sem oft eru mis- notuð sem vimugjafar: Sterk verkjadeyfandi lyf: morfin, peditin o.fl. svefnlyf: barbtúrsýru lyf s.s. Nembutal, Phenobarbital, Seconal, einnig önnur svefnlyf, s.s. Doriden, svæfingarlyf, einkum hláturgas. Geir Vilhjálmsson. örvandi lyf: Amfetamin, Ritalin, Preludin o.fl. D. Leysisefni, sem stöku sinn- um eru misnotuð sem vimugjaf- ar: blettavatn, þynnir, lim, bensín .o.fl. Hugtök yfir misnotkun sállyfja og vimugjafa: Orð endurspegla hugarlega byggingu málsins og þau hugtök, sem á islenzku hafa veriö notuð um lyfjamisnotkun endurspegla hinn almenna skilning á málinu til þessa. Algengasta heitiö þar til fyrir skömmu var hugtakið eiturlyf. Ég hef heyrt þeirri skoðun haldið fram að þetta hugtak sé merk- ingarfræðilega óheppilegt, þar eö eitur og lyf séu merkingarlega andstæðir pólar, lyf hjálpi og likni en eitur sé skaðlegt. En slik þverstæðuhugtök geta vel átt rétt á sér, þegar fyrir- brigöið sem lýsa á er þverstæöu- kennt. Og i sambandi við mis- notkun lyfja stöndum við jú frammi fyrir þeirri grundvallar- legu þverstæðu aö i sumum til- fellum hefur notkun ákveðins lyfs jákvæöar afleiöingar en i öðrum tilfellum hefur notkun sama lyfs neikvæðar afleiðingar i för með sér. Er notkun eiturlyf jahug- taksins erfiö einmitt af þessum sökum, þ.e. að undir sumum kringumstæðum hæfir heitið „eiturlyf” ákveðnu lyfi, en undir öörum kringumstæðum hæfir það ekki sama lyfi. Til þess aö skilja þessa ofangreindu þverstæðu til fulls er nauðsynlegt að athuga eitt af frumatriðum lyfjafræöinnar „að öll lyf eru eitur, það sem gerir gæfumuninn er skammt- urinn”. (65) Það er að segja, öll lyf hafa ein- hvers konar áhrif á efnaskipti, stjórnkerfi eða aðrar hliðar likamsstarfseminnar. Ef tekinn er nægilega stór skammtur verða lyfjaáhrifin hættulega mikil. Vestur-þýzkur lyfjaprófessor hefur i þessu sambandi komizt svo að orði: „Ef þvi er haldið fram, að ákveðið lyf hafi engar aukaverkanir, þá er full ástæða til þess að ætla að efnið hafi heldur enga aðalverkan. Praktist séð verður alltaf að reikna með þvi, að ölllyf, sem áhrif hafa, hafi aukaverkanir.” (66) En úr þvi að öll lyf eru eitruð og lifshættuleg i nægilega stórum skömmtum þá er það augljósum vandkvæðum bundið að nota hug- takið eiturlyf á sum lyf öðrum fremur. Er þvi skýrara að tala um notkun eða misnotkun lyfja eftir þvi hvort jákvæðar eða nei- kvæöar afleiðingar notkunar- innar eru yfirgnæfandi. Hugtökin ávana- og fiknilyf, ávana- og fikniefni, sem hafa rutt sér til rúms um tima byggjast á ávana þeim eða fikn þeirri, sem oft er einkenni lyfjamisnotkunar. Hugtökin ávana.efni og fikniefni ergjarnan notuð um efni sem sál- ræn áhrif hafa en sem ekki eru i „viðurkenndum” lyfjaskrám, t.d. benzin og blettavatn, sem fyrir kemur að fólk verður sólgið i, svo og efni eins og cannabis, sem sjaldgæft er að finna i lyfjaskrám samtimans. En það er vafasamt að gera slika aðgreiningu milli sálrænna lyfja og sálrænna efna, að einhverju aðalatriði, þvi inni- hald lyfjaskráa er stöðugum breytingum undirorpið. Mörg lyf úr jurtarikinu eru t.d. ekki lengur i lyfjaskrám i upprunalegu eða i hálfunnu ástandi þó að viss efni úr þessum jurtum séu enn mikið notuð sem lyf. (s.s. Magnyl, at- ropin, digitalis o.f 1.). Sem heildarheitifyrir svokölluð ávana- og fiknilyf og efni hefur prófessor Þorkell Jóhannesson bent á samheitið vfmugjafar. Reynslan verður að skera úr um það hvert þetta hugtak verður almennt notað. Hin islenzka orða- bók Menningarsjóðs gefur sem merkingar á vímu: 1. ölvun, leiðsla, svimi. 2. deyfð, doöi. Þessar merkingar draga eðlilega fram ýmis einkenni áfengisvimu (ölvun, svimi, deyfð, doöi). A hinn bóginn fremur hlutlaust hug- tak leiösla, sem almennt er notað eitt sér eöa i samsetningu um breytingar á vitundarástandi. Þvi virðist hin merkingarlega hlið hugtaksins vimugjafi nægilega viðtæk að upplagi til þess að geta spannað flest lyf og efni, sem hér um ræðir. Fyrir utan aö vera þjálla i munni kemst hugtakið þannig nær þvi að lýsa llklegu markmiði með sjálfskammtaöri neyzlu (að komast í vimu), meðan ávani eða fikn lýsa auka- verkunum fremur en aðalverk- unum þessara lyfja. Að siðustu ber þess að gæta að hugtökin ávani og fikn virðast vera að hverfa úr skýrslum WHO og siðasta áratuginn tala skýrslur WHO minna og minna um ávana eða fikn. Þess i staö er komiö hugtakið að vera háður lyfjum (drug dependance) og sá sem háður er orðinn notkun lyfja (a dependent on drugs). (66) 1 eftirfarandi texta munum viö Sólaðir Nýir amerískir IEKK Sendum í póstkröfu um land allt snjó-hjólbarðar í flestum stærðum MJÖG HAGSTÆTT VERÐ ATLAS snjó-hjólbarðar með hvítum hring GOTT VERÐ BéiÆmmwm Smiðjuvegi 32-34 Simar 4-39-88 & 4-48-80 Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Prestskosningarnar í Háteigs- sókn eru í dag. Skrifstofa stuðningsmanna séra Auðar: Skipholt 37 simar 81055 og 81666. Takið þátt í kosningunni og komið snemma á kjörstað í Sjómannaskólanum! Stuðningsmenn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.