Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 6

Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 6
6 4. desember 2005 SUNNUDAGUR Handa öllum foreldrum Nauðsynleg bók fyrir alla foreldra ungra barna. Tilvalin í jólapakkann. Bókin er notuð á foreldranámskeiðum hjá heilsugæslunni og hefur fengið frábæra dóma. Bók sem skiptir máli. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is ������������������������������������� ������������������������ ������������������� DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur viðurkennt greiðslu- skyldu Reykjavíkurborgar vegna aðstoðar táknmálstúlks á foreldra- fundum í barnaskóla þar sem mál- efni barna heyrnarlausra hjóna voru til umfjöllunar. Hjónin báru fyrir dómi að móðurmál þeirra væri íslenskt táknmál og að konan talaði enga íslensku og maður hennar tak- markaða. Þau höfðu óskað eftir aðstoð túlks vegna foreldraviðtala í skólanum, en þurftu að greiða fyrir þá þjónustu sjálf. Í október 2003 komst borgarlögmaður að þeirri niðurstöðu að túlkaþjónusta félli ekki undir þær skyldur sem sveitarfélögum væri ætlað að veita fötluðum einstaklingum. Taldi dómurinn að færð hefðu verið fram gild og málefnaleg rök fyrir þeirri mismunun sem fælist í þeirri ákvörðun að greiða fyrir aðstoð túlks í foreldraviðtölum þegar um væri að ræða fólk af erlendum uppruna, en ekki þegar í hlut ætti heyrnarlaust fólk, enda væri svipað ástatt hjá báðum. - óká Héraðsdómur segir sömu lögmál gilda um útlenska foreldra og heyrnarlausa: Borgin á að borga fyrir túlkun FRÁ MÓTMÆLUM HEYRNARLAUSRA Félag heyrnarlausra efndi í mars 2003 til mótmæla við Alþingishúsið og krafðist þess að íslenska táknmálið fengist viðurkennt formlega í lögum og fólki yrði tryggð túlkaþjónusta. KJÖRKASSINN Er nauðsynlegt að bæta kjör öryrkja? Já 86,7% Nei 13,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að veita ungmennum undir tvítugu lán? Segðu skoðun þína á Vísi.is Árekstur fyrir ofan Hellu Bíll og kerra skullu saman um hádegi í gær á Suðurlandsvegi austan við Hellu. Bíl var ekið inn á Suðurlandsveg og tók bílstjórinn ekki eftir kerru aftan í bílnum. Nokkurt tjón varð bæði á kerru og bíl. Skrykkjótt ökulag í Keflavík Rúmlega þrítugur ökumaður var tekinn ölvaður í Keflavík um hádegisbil í gær. Lögregla taldi ástæðu til að stöðva bílinn þar sem ökulag var ekki eðlilegt. Bíll út af í hálku Hálkuóhapp varð við Eskifjörð í gær. Bíll rann út af veginum vegna hálku og var dreginn aftur upp á veg. Engin slys urðu á mönnum og bíllinn var óskemmdur. LÖGREGLUFRÉTTIR Kveikt á jólatrjám Víða var kveikt á jólatrjám í gær. Meðal annars var kveikt á jólatrénu á Akratorgi á Akra- nesi og á Kirkjutorgi á Sauðárkróki. Handverksmenn voru með sölu í Safnaðarhúsinu. JÓLAUNDIRBÚNINGUR FANGAR Fangar heimsins eru orðnir rúmlega níu milljón tals- ins og meira en helmingi þeirra er haldið í fangelsum í þremur ríkjum: Bandaríkjunum, Kína og Rússlandi. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hafa fæsta bak við lás og slá. Föngum hefur fjölgað í þrem- ur af hverjum fjórum ríkjum heims á síðustu árum, samkvæmt samantekt háskólans King‘s College í Lundúnum. Flestir eru í bandarískum fangelsum, rúmar tvær milljónir. Meira en einni og hálfri milljón manna er haldið í kínverskum fangelsum. Næst kemur Rússland með 760 þúsund fanga og Brasilía og Kína með rúmlega 300 þúsund fanga. Bandaríkin eru líka efst á lista yfir þau ríki heims sem eru með hæst hlutfall íbúa sinna bak við lás og slá. Þar eru 714 í fangelsi á hverja 100 þúsund íbúa. Á hinum enda töflunnar er svo Búrkína Faso þar sem 23 af hverjum 100 þúsund íbúum eru í fangelsi. Ef litið er til Norðurlanda eru flestir fangar í Svíþjóð, 75 á hverja 100 þúsund íbúa. Næstir koma Finnar með 71 fanga á hverja 100 þúsund íbúa, Danir með 70, Norðmenn 65 og Íslend- ingar með 39. Fæstir eru svo í haldi í Færeyjum, fjórtán í allt eða þrjátíu framreiknað á 100 þúsund íbúa. ■ Föngum í heiminum fjölgar stöðugt: Níu milljónir dúsa í fangelsi LITLA-HRAUN Íslendingar virðast upp til hópa löghlýðnir sé horft til fjölda fanga hérlendis samanborið við önnur ríki. STÝRIVEXTIR Greiningardeildir bankanna telja að verðbólguhorfur séu enn slæmar þó þær hafi batnað frá því í haust. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 25 punkta á föstudaginn og var það heldur lægri hækkun en búist var við. Greiningardeild KB banka segir að hækkunin sé á mörkum þess að vera í samræmi við fyrri yfirlýs- ingar Seðlabankans. Hætta sé á því að svo lítil hækkun komi niður á trúverðugleika bankans. Greining Landsbankans bendir á að á næstunni verði Seðlabankinn að haga peningastefnunni þannig að aðlögun gengis leiði ekki til meiri verðbólgu. Ef útgáfa skulda- bréfa taki ekki við sér í desember má gera ráð fyrir að krónan sígi áfram. Tryggvi Þór H e r b e r t s s o n , forstöðumaður Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands, segir að ákvörðun S e ð l a b a n k a n s hafi komið á óvart, sérstaklega í ljósi vaxtahækkana erlendis. Hann telur samt að hækkunin hafi jákvæð áhrif. „Vaxtamunin- um er haldið svipuðum milli Íslands og hinna Evrópulandanna sem þýðir að gengið mun eitthvað veikjast í framhaldinu en þetta sýnir að það er áfram sama aðhaldið þó það haldist kannski ekki jafnmikill hraði eða styrkur að hækkunum og hefur verið. Ég held að við hljótum að sjá frekari hækkanir framundan. Nú fer að þrengja meira að lánsfjár- magnsmarkaðnum, fjármagnið verður dýrara og vonandi leiðir þetta út í langtímalánin þannig að það slái á þenslu á fasteignamarkaði,“ segir Tryggvi Þór. „Ég var að vonast til að Seðlabankinn myndi bíða með frekari vaxtahækkanir í bili. Það eru teikn á loft um að það slái á verðbólguna núna. Við höfum verulegar áhyggjur af því hvað gengið er sterkt og stýrivaxtahækkanir ýta undir að það haldi áfram að vera sterkt eða styrkist enn frekar. Veruleg vandræði eru hjá útflutnings- og samkeppnisgreinunum, hátækni- greinarnar, sem byggja sinn rekstur á tekjum í erelndri mynt, eiga undir högg að sækja, Hjartavernd hefur sagt upp fólki og Medcare Flaga er að flytja starfsemina úr landi. Við þessar aðstæður skiptir miklu máli að vinna gegn því að krónan sé svona ofursterk,“ segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að vaxtahækkunin hafi verið skynsamleg. Forystumenn í atvinnulífinu hafi haft áhyggjur af því að of miklar vaxtahækkanir, sem hafi skilað sér í gegnum hátt gengi krónunnar, séu farnar að valda of miklu tjóni í atvinnulífinu og því sé ekki þörf á þeim. „Við teljum það jákvætt að bankinn skuli meta stöðuna með þessum hætti og taka mið af breytingum sem við teljum að hafi orðið í atvinnulífinu,“ segir hann. ghs@frettabladid.is Verulegar áhyggjur af styrkleika krónunnar Hagfræðingur ASÍ vonaðist til að Seðlabankinn biði með vaxtahækkun fram í janúar. Framkvæmdastjóri SA segir að hækkunin hafi verið skynsamleg. KB banki telur að lítil hækkun eftir stór orð komi niður á trúverðugleika bankans. TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON ÓLAFUR DARRI ANDRASON ARI EDWALD . FJÁRÖFLUN Leikarinn sir Roger Moore leit inn á jólakortasölu UNICEF á Laugavegi 42 í gær. Kortasalan var ein fyrsta fjáröflun almennings sem UNICEF fór út í og er enn stór tekjulind samtakanna. Á Íslandi hafa kortin verið seld í nærri 50 ár en Félag íslenskra háskólakvenna hefur séð um söluna í sjálfboðavinnu. ■ Jólakortasala í UNICEF: Roger Moore í miðbænum MOORE HEIMSÆKIR UNICEF Á LAUGAVEGI Roger Moore ásamt eiginkonu sinni Lady Kristina og þeim Sigrúnu Stefánsdóttur og Erlu Elínu Hansdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK BRETLAND, AP Meðlimir fjölmargra náttúruverndarsamtaka stóðu að mótmælagöngu um London í gær, laugardag. Um 10.000 tóku þátt samkvæmt skipuleggjendum, en 4300 samkvæmt lögreglu. Forsprakkar göngunnar afhentu Tony Blair bréf. þar sem þess er krafist að staðfestur sé niðurskurður á losun gróðurhúsaloftteguna og að alþjóðlegur sáttmáli um mengun sé virtur. Eftir gönguna hélt fyrrverarndi umhverfisráðherra Bretlands tölu og sagði m.a. „Ef hann (Bush) heldur að (fellibylurinn) Katrina hafi verið slæm, þá eru mun verri fellibylir á leiðinni breyti hann ekki stefnu sinni.“ ■ Hlýnun jarðar mótmælt: Þúsundir ásaka Blair og Bush SEÐLABANKASTJÓRAR TILKYNNA VAXTAHÆKKUN Vaxtahækkunin að þessu sinni var heldur lægri en búist hafði verið við.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.