Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 22
 4. desember 2005 SUNNUDAGUR22 Trygg atvinna og niðurgreitt húsnæði, enginn tekju-skattur, ókeypis menntun og heilbrigðisþjónusta og rausnarlegur ellilífeyrir. Það eru ekki amaleg réttindi sem fylgja því að vera ríkisborgari furstadæmisins Mónakó. Reyndar njóta aðeins sumir Mónakóbúa þessara rausnarlegu velferðarréttinda. Eiginlegir Mónakóar (á máli heimamanna: Monegasques), sem flestir eru komnir af fyrri kynslóðum þegna Mónakófursta (og kunna mállýskuna mónakósku) eru aðeins um 7.500. Hinir íbúarnir teljast vera aðfluttir og hafa til að mynda ekki kosningarétt. En bæði rótgrónir og aðfluttir Mónakóbúar voru mjög ánægðir með hvernig Rainier III, sem lést í byrjun apríl í vor, hafði tekizt í nær 56 ára furstatíð sinni að nútímavæða furstadæmið og festa velferð þess og virðingu í veröldinni í sessi, Nú hvíla því augu allra þegnanna á Albert II, sem tók við furstatigninni eftir andlát föður síns. Hann tók í raun við embættisskyldum fursta strax 6. apríl, en formlega þann 12. júlí. Embættistakan var innsigluð með viðhöfn þann 19. nóvember síðastliðinn, að viðstöddum íslenzku forsetahjónunum og öðrum tignarmennum. Og nú spyrja Mónakóbúar sig: Skyldi Albert takast að sjá til þess að það verði áfram jafn gott og jafnvel betra að búa í ríki hans? Eitt það fyrsta sem Albert fursti hyggst taka sér fyrir hendur í þágu ímyndarbótar Mónakó er að halda í leiðangur á hundasleðum alla leið á Norðurpólinn í vor, í félagi við sænska og norska félaga sína. Tilefnið er að á næsta ári verða rétt 100 ár síðan Albert I, langalangafi Alberts II, fór í heimskautaleiðangur og varð meðal annars fyrstur til að taka ljósmyndir af jöklum á Svalbarða. Fyrirtækið Mónakó Á Mónakó hefur lengi hvílt sú ímynd að vera bæði einn af uppáhaldsleikvöllum þotuliðsins og staður sem veitir hinum forríku skjól fyrir skattmanni í heimalöndum sínum og peningaþvætti og önnur vafasöm fjármálaumsýsla fer fram í skjóli strangrar bankaleyndar. Brezki rithöfundurinn Somerset Maugham komst svo að orði að Mónakó væri sólríkur staður fyrir skuggalegt fólk. Fyrir nokkrum áratugum kom hátt í helmingur allra tekna mónakóska ríkissjóðsins af spilavítisrekstri. En Rainier fursti beitti sér mjög til að breyta þessu og nú er svo komið að spilavítin skila aðeins fáeinum prósentum af ríkistekjunum. Hann samþykkti eftir deilur við frönsk stjórnvöld að skattleggja franska ríkisborgara sem voru heimilisfastir í Mónakó og leggja skatta á fyrirtæki sem leituðu frá Frakklandi til skattaskjólsins við Rívíeruna. „Ég er nokkurs konar yfirmaður fyrirtækis,“ sagði Rainier III eitt sinn í viðtali þegar hann talaði um hvernig hann hefði umbylt Mónakó. Á síðustu árum hefur tekist að skjóta fleiri stoðum undir efnahagslíf furstadæmisins á ýmsum sviðum þjónustuviðskipta en einnig með sérhæfðum smáiðnaði. Mónakósk yfirvöld hafa sótzt sérstaklega eftir því að fá alþjóðleg fyrirtæki til að flytja Evrópuhöfuðstöðvar sínar til furstadæmisins. Árið 2001 var ráðizt í að stækka til muna aðstöðuna í aðalhöfninni þar sem skemmtiferðaskip geta lagzt að bryggju og heil hverfi fyrirtækjabygginga reist á uppfyllingum. Virkt í alþjóðasamstarfi Furstadæmið varð fullgilt aðildarríki Sameinuðu þjóðanna árið 1993. Mónakó er aðili að mörgum alþjóðastofnunum og -sáttmálum, svo sem Evrópuráðinu. Aðalskrifstofur Alþjóða sjómælingastofnunarinnar (IHB) eru til húsa í Mónakó. Þar er einnig rótgróið haffræðisafn, stofnað í furstatið Alberts I Svalbarðafara. Mónakó heldur úti 10 sendiskrifstofum í Vestur-Evrópu og fastanefnd hjá SÞ í New York. Heiðursræðiskrifstofur Mónakó er að finna í 106 borgum í 45 löndum. Furstafjölskyldan, Grimaldi- ættin, hefur verið formlega við völd í Mónakó síðan árið 1419. Samkvæmt samkomulagi við Frakka sem gert var á 19. öld var kveðið á um að Mónakó yrði sjálfstætt ríki svo lengi sem þjóðhöfðinginn væri réttborinn til erfða furstastólsins. Þar sem Albert hefur ekki kvænzt og á ekki skilgetin börn komu upp áhyggjur meðal þegnanna af því að reyna myndi á þetta ákvæði þegar hann félli frá. En þessu var bjargað með breytingu á erfðalögunum sem heimila að ríkiserfðirnar gangi til systkinabarna furstans. Eignist Albert ekki börn verður Andrea, elzti sonur Karólínu, næsti fursti Mónakó. ■ ALBERT ÆTLAR NORÐUR Albert II fursti stillti sér upp fyrir ljósmyndara á blaðamannafundi í Mónakó í byrjun vikunnar í tilefni af áformuðum leiðangri hans á Norðurpólinn í vor. MYND/AP FURSTAFJÖLSKYLDAN Þessi mynd var tekin af fjölskyldunni nokkru fyrir andlát Rainiers fursta sem er lengst til hægri. Næst honum stendur Stefanía, þá Albert, Karólína og eiginmaður hennar Ernst-August af Hannover. Rómuð fegurð prinsessanna, dætra Rainiers og Hollywood-þokkagyðjunnar Grace Kelly, og glaumgosalíf Alberts hefur tryggt Mónakó ómælda athygli slúðurpressu heimsins. Að margir hinna ríku og frægu velji að setjast að í örríkinu hjálpar líka upp á fjölmiðlaathyglina, svo og viðburðir eins og Mónakókappaksturinn, Monte-Carlo-rallið og opna tennismótið.NORDICPHOTOS/AFP Metnaður til að vera meira en skattaskjól Þann 19. nóvember síðastliðinn var embættistaka Alberts II Mónakófursta innsigluð með viðhöfn að forseta Íslands viðstöddum. Auðunn Arnórsson rekur hér hvert örríkið nafntogaða við Miðjarðarhaf stefnir. MÓNAKÓ Tveir ferkílómetrar af velmegun í bröttum hlíðum upp af Miðjarðarhafsströnd. Hér sést snekkjuhöfnin og kjarni Monte Carlo, stærsti þéttbýliskjarni borgríkisins. NORDICPHOTOS/AFP MÓNAKÓ ✮Næstsmæsta ríki heims Opinbert heiti: Furstadæmið Mónakó (á frönsku: Principauté de Monaco). Flatarmál: 1,95 ferkílómetriar - annað minnsta ríki heims á eftir Páfagarði. Íbúar: 32.409 (2005), þar af um 5.800 með kosningarétt. Þéttbýlasta ríki heims með 16.620 íbúa á ferkílómetra. Stjórnskipun: Þingbundin furstastjórn (stjórnarskrá frá 1962). Fursti: Albert II (síðan 2005). Forsætisráðherra: Jean-Paul Proust (síðan 1.6. 2005). Mónakófursti velur forsætisráðherra úr hópi þriggja sem Frakklandsstjórn stingur upp á. Mónakóþing er kjörið á fimm ára fresti. Á því sitja 24 fulltrúar. Sjálfstætt furstadæmi síðan árið 1419. Er í sérstökum tengslum við Frakkland samkvæmt sáttmála (tolla-, efnahags- og varnarbandalag). Stjórnvöld í Mónakó birta engar tölur yfir tekjur íbúanna. Áætlaðar þjóðartekjur árið 2002 voru um 2.500 milljónir evra, andvirði 187 milljarða króna, en það er um þriðjungur af þjóðartekjum Íslendinga. Aðalatvinnuvegirnir eru ferðaþjónusta og fjármálaþjónusta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.