Fréttablaðið - 04.12.2005, Page 29
ATVINNA
SUNNUDAGUR 4. desember 2005 3
Orkuveita Reykjavíkur er
sjálfstætt þjónustufyrirtæki sem
aflar og dreifir vistvænni orku á
sem hagkvæmastan hátt og í sátt
við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur íslensku
þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að
veita viðskiptavinum sínum bestu
mögulegu þjónustu og sjá þeim
fyrir ódýrri vistvænni orku sem
framleidd er úr endurnýjanlegum
íslenskum orkulindum. Þannig
stuðlar fyrirtækið að aukinni
notkun hreinnar innlendrar orku
og leggur um leið sitt af mörkum
til nýsköpunar og framfara í
landinu.
Starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur
tekur mið af skynsamlegri
nýtingu orkulinda og fyrirtækið
er til fyrirmyndar í umgengni á
eigin umráðasvæðum og vinnur
þar að uppgræðslu lands og
friðun dýralífs.
Það er stefna Orkuveitu Reykja-
víkur að auka hlut kvenna í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur óskar að ráða öflugan einstakling í stöðu deildarstjóra
Framkvæmdadeildar, sem er innan Framkvæmdasviðs Orkuveitunnar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
03
98
11
/2
00
5
Framkvæmdadeild Orkuveitu Reykjavíkur hefur aðsetur í
höfuðstöðvum Orkuveitunnar að Bæjarhálsi.
Deildarstjóri Framkvæmdadeildar stýrir öflugri sveit starfsmanna sem sjá um allar
verklegar framkvæmdir sem unnar eru af eigin vinnuflokkum og verkstæðum Orkuveit-
unnar. Í deildinni starfa 160 manns. Verkefni deildarinnar ná til dreifikerfa rafmagns,
hitaveitu, kalda vatns, gagnaveitu og fráveitu auk annarra verkefna sem henni eru falin,
s.s. varðandi fasteignir OR. Deildarstjóri ber ábyrgð á rekstri deildarinnar, fjárhagslega
og faglega. Deildarstjóri vinnur mjög náið með sviðstjóra Framkvæmdasviðs og gerir
starfið miklar kröfur til starfsmannsins.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði verkfræði og/eða
viðskipta eða sambærilegu. Þeir þurfa að hafa góða reynslu af stjórnun verklegra
framkvæmda, t.d. úr verktakastarfsemi. Æskilegt er að þeir hafi haft mannaforráð.
Þá er lögð mikil áhersla á fagmennsku, frumkvæði, metnað og samskiptahæfileika.
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga@img.is) og
Sigrún Ýr Árnadóttir (sigrun@img.is) hjá Mannafli-Liðsauka. Umsóknarfrestur er til og
með 7. desember n.k.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að leggja inn umsókn á heimasíðu Mannafls-Liðsauka:
www.mannafl.is og sendið jafnframt ferilskrá og yfirlit yfir umsagnaraðila.
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsækjendum svarað.
Deildarstjóri óskast
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Menntunar- og hæfniskröfur: