Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 55
SUNNUDAGUR 4. desember 2005 27
Frétt vikunnar að mati Gunnars
Kristmannssonar, annars af höfundum
kammeróperunnar Gests sem hefur
verið sýnd í Iðnó, er af bankaræningjum
í El Salvador sem voru handteknir
naktir.
„Þeir ætluðu að grafa göng undir
götu og inn í banka. Það var svo heitt að
vinna í göngunum að þeir klæddu sig
úr öllum fötunum og voru naktir. Svo
hrundu göngin og þeir voru handsamaðir
á hlaupum, allir í ryki,“ segir Gunnar og
hlær. „Þetta var nú frekar misheppnaður
glæpur en þetta voru samt örugglega
voða fínir glæpamenn og vel undirbúnir.
Þetta voru 75 metra löng göng sem
hrundu rétt fyrir framan bankann. Þeir
áttu það eiginlega skilið að þetta tækist,“
segir Gunnar, sem hefur gaman af því að
fylgjast með fréttum af seinheppnum
glæpamönnum.
Gunnar, sem sjálfur hefur aldrei
komið til El Salvador, hefur gaman af
glæpasögum og las fyrir nokkru síðan
Röddina eftir Arnald Indriðason. „Hún
var ansi góð. Hún kom mér á óvart
eins og held ég öllum öðrum. Það var
gaman að því hversu trúverðug hún
var og laus við að vera hallærisleg. Ég á
örugglega eftir að lesa fleiri glæpasögur
í framtíðinni.“
FRÉTT VIKUNNAR - GUNNAR KRISTMANNSSON TÓNLISTARMAÐUR
Naktir bankaræningjar í El Salvador
GUNNAR KRISTMANNSSON Gunnar
hafði gaman af frétt um berrassaða
bankaræningja frá El Salvador.
Gríðarlega vel var fylgst með
kynlífssenum leikarans Johnnys
Depp fyrir myndina The Libertine
vegna þess að rúmið sem þær
fóru fram í var gamall safngripur.
Starfsmenn safnsins sem rúmið
tilheyrir fylgdust með senunum
vegna hættu á að rúmið yrði fyrir
skemmdum. „Þetta er algjörlega
ómetanlegt og gríðarlega fallegt
gamalt rúm úr eik,“ sagði
safnvörðurinn Sharon Masters.
„Ég var ein af fáum sem fengu að
fylgjast með kynlífssenunum og
verð að segja að það að horfa á Depp
leika í kynlífssenu er upplifun sem
ég mun aldrei gleyma. Sem betur
fer skemmdist rúmið ekkert.“ ■
Fylgdust með
kynlífssenunum
JOHNNY DEPP Hann hefur væntanlega
ekki látið það á sig fá þó að starfsmenn
safnsins hafi fylgst með honum leika í
kynlífssenum enda er þarna alvöru leikari
á ferð.
Björk Guðmundsdóttir ætlar
að halda áfram að semja tónlist
á meðan á siglingu hennar um
heiminn stendur. Björk er um
þessar mundir að læra hvernig á að
sigla skipi og stefnir á heimsreisu
með eiginmanni sínum, Matthew
Barney, og barni þeirra.
Björk ætlar að taka ferðatölvuna
sína með í förina. „Tæknin leyfir
mér að taka tónlistina með mér
hvert sem ég fer. Með ferðatölvu
get ég komið mér fyrir hvar
sem er á minna en tveimur
klukkustundum,“ segir Björk.
„Stundum finnst mér ég þurfa að
ferðast á enda alheimsins alein og
syngja inn á upptökutæki. Þannig
er ég bara,“ segir hún.
Björk syngur þann 7. janúar
á næsta ári á tónleikum til
stuðnings náttúruvernd á Íslandi
ásamt listamönnum á borð við
Damien Rice og Damon Albarn
og hljómsveitunum Sigur Rós og
Ham.
Ferðatölvan
með í siglingu
BJÖRK Söngkonan vinsæla stefnir að því að
sigla um heiminn á næstunni. Hún tekur
ferðatölvuna sína með í förina og ætlar að
semja ný lög.
Leik- og söngkonan Julie
Andrews hefur sætt sig við það að
hafa misst röddina og segir það
hafa opnað nýjar dyr fyrir henni.
Hún var alveg miður sín í fyrstu
en hefur komist yfir harmleikinn.
„Ég hef fundið aðra hluti sem ég
hef sömu ástríðu fyrir,“ sagði
hún. „Ég er að skrifa barnabækur
og einnig er ég að leikstýra í
leikhúsinu, sem er virkilega
gaman. Ég hugsa bara um það
hversu heppin ég er.“
Skrifar og
leikstýrir
JULIE ANDREWS LEIKKONA.