Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 56
 4. desember 2005 SUNNUDAGUR28 Tæplega fjörtíu milljarðar króna skipta um hendur nú fyrir jólin, samkvæmt spá Rannsóknarseturs verslu- narinnar á Bifröst og er búist við metári. Að jafnaði er búist við að jólavelta verslana geti aukist um 20 prósent nú fyrir jólin. Að hluta til er verið að kaupa jólamatinn, jólaskrautið og allt hitt sem snýr að því að halda gleðileg og skra- utleg jól. Að stórum hluta er aukin verslun í desembermánuði vegna þess að verið er að kaupa jólagjafirnar. Fréttablaðið hafði áhuga á að forvitnast aðeins um jólagja- fakaup landans og spurði því í síðustu könnun hvað svarandi reiknaði með að eyða í jólagja- fir þetta árið og hvað átti að gefa margar jólagjafir. Svörin voru allt frá því að eyða engu í jóla- gjafir, vegna þess að engar voru gefnar eða þær voru allar búnar til, upp í að eyða ríflega hálfri milljón til að gleðja fjölskyldu og vini. Ekki var óalgengt að þeir sem spurðir voru margfölduðu einfaldlega fjölda jólagjafa með tíu til að reikna út hversu mikið jólagjafirnar muni koma til með að kosta. Flestir voru á því að eyða heldur minna, eins og sést á því að að meðaltali sögðust sva- rendur ætla að eyða 3.773 kró- num í hverja jólagjöf. Rúmlega 55 þúsund í jólagjafir Samkvæmt könnuninni mun hver fullorðinn einstaklingur kaupa jólagjafir fyrir 55.291 krónu, en það er misjafnt hversu gjafmild við erum. Greinilegur munur er bæði á milli kynjanna og á milli íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Karlar eru rausnarlegri í því hversu miklu þeir eru tilbúnir til að eyða í hverja gjöf og sögðust tilbúnir til að reiða fram allt að 58.612 krónur, á meðan konur sögðust ætla að kaupa gjafir fyrir 51.904 krónur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins sögðust ætla að eyða 56.183 kró- num í jólagjafir þetta árið, en íbúar landsbyggðarinnar hyg- gjast borga 53.976 fyrir sínar gjafir. Karlar á höfuðborgarsvæðinu ætla svo að eyða mest, eða rúm- lega 61 þúsundum í jólagjafir. Konur á höfuðborgarsvæðinu ætla svo að eyða minnst, eða um 51.500 krónum. Fimmtán sem á að gleðja Einnig er munur hvað við ætlum að gefa margar gjafir og snúast þá tölurnar við. Þeir sem ætla að eyða meiru, ætla að gefa færri gjafir. Að meðaltali eru það fim- mtán ættingjar og ástvinir sem fá frá hverjum gjöf. Konur ætla að gefa aðeins flei- ri gjafir að meðaltali, eða sextán, á meðan karlar telja sig þekkja fjórtán sem gleðja á með gjöf. Íbúar landsbyggðarinnar þek- kja líka fleiri sem þarf að gleðja en íbúar höfuðborgarinnar, því þeir sem búa utan höfuðborgar- svæðisins gefa sextán gjafir, en íbúar Reykjavíkur og nágrennis ætla að gefa þrettán. Það eru konur á landsbyggðin- ni sem ætla að gefa flestar gja- firnar, eða 17, en karlar í höfuð- borginn reikna með að gefa 12 gjafir að meðaltali. Dýrustu gjafirnar Það eru því karlar og íbúar höfuðborgarsvæðisins sem gefa dýrustu jólagjafirnar fyrir þessi jólin. Karlar á höfuðborgars- væðinu gefa svo allra dýrustu gjafirnar. Ef skoðað er hvað meðalverð á jólagjöf, út frá þeim upplýsin- gum sem við höfum fyrir hendi, mun hver gjöf kosta um 3.773 krónur. Fyrir þá upphæð er til dæmis hægt að kaupa ágæta bók. Íbúar höfuðborgarsvæði- sins reikna með heldur meiri kostnaði á jólagjöf, eða 4.169 á meðan þeir sem búa utan þess svæðis ráðgera að hver gjöf kosti 3.274 krónur. Konur eru heldur sparsamari á hverja jólagjöf en karlar, og ætla að eyða 3.332 krónum á gjöf, á meðan karlar ætla að eyða 4.296 krónum í gjöf. Fyrir hverja gjöf eru það karlar á höfuðborgars- væðinu sem eru reiðubúnir til að kosta mestu til, eða rúmlega 4.900 krónum. Konur á landsbyg- gðinni eru hins vegar tilbúnar að borga að meðaltali 3.030 krónur fyrir hverja gjöf. Þegar kemur að jólunum er þó gott að muna að það er hugurinn sem skiptir máli, en ekki verð- miðinn á gjöfinni. Könnunin fór þannig fram að hringt var í 800 manns þann 19. nóvember, og skiptust svarendur jafnt milli kynja og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurningar- nar voru tvær, annars vegar; Hve miklu ætlar þú að eyða í jólagjafir á þessu ári? og hins vegar; Hvað munt þú gefa mar- gar jólagjafir í ár? 63,1 prósent þeirra sem spurðir voru tóku afstöðu til fyrri spurningarin- nar, 87,8 prósent tóku afstöðu til þeirrar síðari. Karlar gefa dýrari jólagjafir, en konur fleiri Íslendingar ætla að kaupa jólagjafir fyrir um 55 þúsund krónur að meðaltali og gefa 15 gjafir hver, samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Karlar ætla að eyða meiru í jólagjafir en konur, en konur ætla að gefa fleiri gjafir. Þá ætla íbúar höfuborgarsvæðisins að gefa dýrari og færri gjafir, en þeir sem búa á landsbyggðinni. Svanborg Sigmarsdóttir skoðaði jólagjafakaup fyrir þessi jól. Það eru rétt tæpar þrjár vikur til jóla og á mörgum heimilum er jólaundirbúningur kominn á fulla ferð. Þökk sé auglýsingaherferðum verslana, jólalögunum í útvarpinu og tilheyrandi stemningu í þjóðfélaginu bíða margir landsmenn nú spenntir eftir að opna pakkana sína á aðfangadag. Fréttablaðið fór á stúfana og kannaði hvað mun helst leynast í pökkunum sem eiga eftir að hlaðast upp undir jólatrjánum von bráðar. Harður pakki er alltaf vinsæll hjá krökkunum. Nýjasta bókin um Harry Potter er langvinsælasta bókin í Máli og menningu. Íslensku glæpasög- urnar seljast líka vel og þar er Arnald- ur Indriðason á toppnum með Vetrar- borgina. Þýddar skáldsögur eru farnar að seljast í auknum mæli og njóta töluverðra vinsælda en það þekktist ekki fyrir nokkrum árum. Sem dæmi má nefna að japanskar glæpasögur eru nokkuð vinsælar. Borðspilin selj- ast ávallt vel fyrir jólin og í ár er það fótboltaspilið Spark sem er vinsælast. Einnig er búist við því að Su Doku borðspilið verði vinsælt, enda má segja að hálfgert Su Doku æði eigi sér stað við morgunverðaborð landsmanna. BÆKUR OG SPIL ■ Harry Potter, reyfarar og Su doku Meðaltal 15 Höfuð- borg 13 Lands- byggð 16 Karlar 14 Konur 15 Meðaltal55.291 kr. Höfuð- borg 56.183 kr. Lands- byggð 53.975 kr. Karlar 58.612 kr. Konur 51.904 kr. Margir gæludýraeigendur gefa dýrunum sínum gjafir um jólin. Verslunin Dýraríkið selur alls konar varning handa dýrum og fyrir jólin eru þar meðal annars til sölu jólasokkar sem starfsmennirnir hanna og fylla svo af góðgæti fyrir dýrin. Hundaeigendur vilja líka að bestu vinir sínir sofi vel því samkvæmt starfs- mönnum Dýraríkisins eru margir sem koma í búðina og kaupa nýja körfu handa hundinum. DÝRAVÖRUR ■ Körfurnar eru sígildar Geisladiskar rjúka út fyrir jólin og það sem breytist þá miðað við geisladiskasölu á öðrum tímum ársins er að íslenskir tónlistarmenn raða sér í toppsætin, enda duglegir við að gefa út tónlist sína rétt fyrir jólin. Á topp fimm lista Skífunnar eru tveir íslenskir tónlistarmenn sem eru hoknir af reynslu, Björgvin Halldórsson og Helgi Björnsson sem skipa fyrsta og fjórða sætið á listanum. Sálin hans Jóns míns er í öðru sæti, Garðar Cortes í þriðja og Hjálmar í því fimmta. Í BT er Írafár með vinsælasta diskinn og stúlkurnar í Nylon eru í fjórða sæti á eftir Sálinni og Helga Björnssyni. Í DVD myndunum er Harry Potter gríðarlega vinsæll og á topp fimm lista BT eru allar þrjár myndirnar um Harry Potter sem komið hafa í kvikmyndahús. TÓNLIST ■ Geisladiskarnir rjúka út HVERSU MARGAR JÓLAGJAFIR GEFUR FÓLK? HVERSU MIKLUM PENINGUM EYÐIR FÓLK Í GJAFIR? Margir eru byrjaðir að kaupa jólagjafirnar: Jólaverslunin komin á fullt JÓLAGLEÐI Á AUSTURVELLI Fólk ætlar að eyða 3.773 krónum að meðaltali í hverja jólagjöf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.