Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 59
SUNNUDAGUR 4. desember 2005 31 h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s -20% ROCCO sófasett 3+1+1 Verð áður: 232.000.- Verð nú: 185.600.- -20% CAPRI leðurtungusófi Fáanlegur bæði í hvítu og dökkbrúnu leðri Verð áður: 212.000.- Verð nú: 169.600.- BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Opið um helgina: lau 10:00-17:00 - sun 13:00-17:00 -10% Borð (180x100) og sex stólar 126.000.- Verð áður: 140.000.- Verð nú: Sjónvarpsskenkur Fáanlegur í tveimur stærðum 240cm Verð: 29.500.- 69.000.- 183cm Verð: 65.000.- Hilla með ljósi Verð: Sjónvarpsskenkur 200cm Verð: 67.000.- FOCUS sófasett 3+1+1 199.800.- 3+2 188.000.- Vestmannaeyjar eru alltaf jafn fallegar. Við gengum frá Herjólfi og vorum nokkuð eftir okkur en sjóveikitöflurnar sem við tókum áður rifu aðeins í. Við fórum á Prófastinn þar sem við áttum að spila og byrjuðum hið sískemmtilega rót. Við vorum samt slappir og tussulegir eftir ferðina þannig að þetta gekk mjög hægt fyrir sig. Við urðum að fá okkur eitthvað í gogginn áður en kláruðum þetta með herkjum. Hljómsveitin Tranzlokal hitaði lýðinn upp og stóðu þeir sig frábærlega. Giggið var mjög gott en við vorum svo dasaðir að Ragnar missti jafnvægið þrisvar og var næstum fallinn til jarðar á sviðinu. Þrátt fyrir sjóriðuna gekk allt vel og er það að mestu leyti Steinu og Jóni Inga að þakka. Þau hugsuðu ótrúlega vel um okkur eins og þeim einum er lagið. Eftir tónleikana var farið á Lundann en við vorum staðráðnir í að skála í bjór fyrir Ragnari sem átti afmæli á miðnætti. Við sátum þarna og spjölluðum við nokkra hressa peyja, þar til einn peyi kom en kauði var ekki í alveg sama stuði og við. Hann hóf innkomuna á því að rífa í hárið á mér og fór að vera með stæla upp úr þurru. Ég ýtti honum í burtu og bað hann vinsamlegast um að fara. Á sama augabragði mundaði félaginn á sér olnbogann og skýtur honum svona skemmtilega í andlitið á mér. Ragnar rauk upp en vissi samt ekki hvað hann var að gera heldur beið bara eftir mér, stóra bróður. Skari stóð upp og Ragnar settist niður. Við vorum nú ekki lengi að kasta honum út enda drengsstaulinn ekki meira en 50 kíló. Við settumst síðan niður og ákváðum að láta þetta ekkert á okkur fá. Ragnar og Addi fóru stuttu seinna á klósettið til að létta á sér en þegar þeir komu út beið vinur minn síkáti eftir þeim og sló til Adda. Þetta leit ekki vel út en heimamennirnir tóku málið fljótlega upp á sína arma og komu þessari boðflennu í bólið. Framundan var önnur ferð með „Dallinum“, klukkan átta um morguninn sem er mjög ókristilegur tími fyrir okkur strákana. Það er löng helgi framundan. Styrktartónleikar og tvennir tónleikar á Gauknum þar sem allir aldurshópar geta komið og heyrt í okkur. Á miðnætti er síðan stefnt að brjáluðu rokki og róli. Egill SIGN BLOGGAR FRÁ TÓNLEIKAFERÐ SINNI UM LANDIÐ Eyjamenn sjá um sína og tek ekki fíkniefni. Þetta er bara ákveðin skoðanapæling en kemur tónlistarstefnum ekkert við. Þetta er ekkert AA dæmi fyrir tónlistarmenn. Þetta var bylgja sem myndaðist í byrjun áttunda áratugarins þegar rokk- arar voru allir ónýtir og útúr- drukknir og dópaðir. Ímynd sem hefur alltaf loðað við vinsælustu rokkarana. Þetta hefur auðvitað áhrif hvort sem þeir vilja það eða ekki. Mig hefur bara aldrei langað til að drekka eða dópa. Auðvitað vil ég frekar hafa góð áhrif en vond en reikna ekki með því að ég sé að hafa nein áhrif á fólk yfirleitt. AMB: Sumir segja að þeir geti ekki hlustað á tónlistina þína, hún sé svo þunglyndisleg. ÞGJ: Ég þjáist af klínísku þunglyndi þannig að það er ekkert skrítið. Það hefur auðvitað mikil áhrif á líf manns og öll samskipti að vera þung- lyndur. Íslendingar eru ansi þunglyndir að eðlisfari myndi ég segja. Ætli skammdegið hafi ekki áhrif á það. Svo held ég að við þjáumst af því að hafa hop- pað svona snöggt inn í nútímann. Þá verður allt svo rosalega öfga- kennt. Held að Íslendingum fin- nist þeir vera undir miklu álagi til að standa undir þessari ste- reotýpu að „hafa meikað það“. Ekki er fólk að bögga sig á að eiga ekki jeppa og svoleiðis í nágrannalöndunum. AMB: Hvernig var með lagið Heya? Átti það ekki að fara í Eli Roth myndina? ÞGJ: Jú, en Outkast á lagið og þeir vildu svo mikla peninga að það var ekki hægt. Þú verður að athuga að Outkast fær öll stef- gjöldin af þessu eina lagi sem fór í spilun með mér. En ég spjallaði heillengi við Eli þegar hann kom hingað og hann er fínn gaur. Bara svona lúði eins og ég sem hefur gaman af hryllingsmyndum. Við gerum örugglega eitthvað saman í framtíðinni. AMB: Ert þú sem sagt lúði? ÞGJ: Já, er það ekki ákveðið einkenni á lúða að eyða öllum sínum tíma í að grúska í tónlist, öllum peningunum í plötur og geta ekki átt mannleg samskipti án þess að þau snúist um tónlist? AMB: Fá jaðarbönd einhvern tímann útvarpsspilun? ÞGJ: Ætli það, nema kannski Hjálmar og Mugison. AMB: Mugison kemur frá Ísafirði, var svokallaður jaðar- maður og verður „mainstream“. Ætlar þú að fara sömu leið? Kominn í viðtal í Fréttablaðið og svona? ÞGJ: Það er svo fín lína þarna á milli á Íslandi. Til dæmis hafa hardkor pönkbönd sem ég er í fengið umfjöllun í blöðunum sem gerir þau nú ekki „mainstream“. Þetta er bara eini miðilliinn. Það er enginn sjálfstæður miðill hérna. Þetta er líka mjög fínt svo lengi sem fjölmiðlar hafa áhuga á tónlistinni minni en ekki endi- lega mér. Held þó ekki að ég sé nógu áhugaverður fyrir Séð og heyrt. AMB: Ég frétti að þú hataðir fótbolta. ÞGJ: Ég hata ekki fótbolta. En nei, hef ekki áhuga á fótbolta. Ég hef bara ekkert gaman af keppni yfir höfuð. Tónlistin er engin keppni hvort eð er, skiptir ekki máli hvar ég er í samanburði við aðra. Mér finnst það bara vera gott og það er alveg nóg. AMB: Er það ekki rétt að þú æfir ekkert lögin? ÞGJ: Jú, ég spila aldrei lögin nema á tónleikum. Svo breyti ég þeim oft þegar ég er kominn á svið. AMB: Þú fékkst mjög góða dóma eftir Airwaves hjá blaðamanni Rol- ling Stone. Verður þú á forsíðunni þeirra bráðum? ÞGJ: Ég vissi ekkert af þessari grein fyrr en fyrir skömmu. Fylg- ist ekki nógu vel með þessu. AMB: En þú ætlar samt að meika það úti? ÞGJ: Auðvitað vill maður geta lifað af tónlistinni og gera þetta að æviferlinum. 12 tónar dreifðu síðustu plötu í Skandinavíu og Bretlandi og gera það aftur núna. Svo ætla að leita að litlu fyrirtæki í Bandaríkjunum og athuga hvort það vilji dreifa mér í litlar búðir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.