Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
15. desember 2005 — 339. tölublað — 5. árgangur
�������
������
������������������������������������������
�� �����������������������������������
����������
�����������
�����������������������
JólaKubbur2FrBl 11/30/05, 5:37 PM1
9
DAGAR
TIL JÓLA
24 síðna
jólagjafahan
dbók
frá BT SVARTIR KJÓLAR
Bráðnauðsynlegir
fyrir jólaboðin
tíska • heimili • heilsa • jól
Í MIÐJU BLAÐSINS
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGT KÓLNANDI Á LANDINU.
Skýjað og yfirleitt úrkomulítið, síst þó
allra syðst. Hætt við stöku éljum úti við
norðurströndina. Hiti 0-5 stig í dag en
frystir víða með kvöldinu. VEÐUR 4
Kristín Rós og Jón Oddur best
Kristín Rós Hákonardóttir og Jón
Oddur Halldórsson voru
í gær útnefnd
íþróttamenn
ársins í röðum
fatlaðra en
bæði eru þau
í heims-
klassa í sinni
íþróttagrein.
ÍÞRÓTTIR 62
STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir,
formaður félagsmálanefndar
Alþingis, segir að félags- og fjár-
málaráðherra hafi í gær óskað
sameiginlega eftir úttekt Ríkis-
endurskoðunar á fjárhagsstöðu
Íbúðalánasjóðs.
Erindi ráðherranna barst inn
á fund nefndarinnar í gær. Þar er
farið fram á svör Ríkisendurskoð-
unar við því hvort eigið fé Íbúða-
lánasjóðs stefni niður fyrir áskilið
hlutfall í náinni framtíð. Sé þeirri
spurningu svarað játandi er spurt
hvort um varanlegt eða tímabund-
ið ástand sé að ræða. Í þriðja lagi
er spurt hvort reyna muni á rík-
isábyrð á skuldbindingum Íbúða-
lánasjóðs.
Lúðvík Bergvinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, situr
í félagsmálanefnd. Hann segir að
breytingar á áhættustýringu hafi
sett Íbúðalánasjóð í uppnám og
auki líkur á að ábyrgð falli á ríkis-
sjóð. „Við sem viljum veg sjóðsins
sem mestan höfum af þessu mikl-
ar áhyggjur. Sjálfstæðismenn
vilja sjóðinn feigan og reyna að
notfæra sér ástandið til að ná því
pólitíska markmiði sínu að leggja
hann niður,“ segir Lúðvík. Í sama
streng tekur Jóhanna Sigurðar-
dóttir sem einnig situr í nefndinni,
en hún kallar málið tímasprengju
í samstarfi stjórnarflokkanna.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi
í félagsmálanefnd, segir sjóðinn
tímaskekkju og lánastarfsemin sé
best komin hjá bönkunum. Þess í
stað gæti ríkið stundað minnihátt-
ar íbúðalánastarfsemi á félags-
legum grundvelli.
- jh
Ráðherrar biðja sameiginlega um úttekt á fjárhagsstöðu Íbúðalánasjóðs:
Spurt hvort reyni á ríkisábyrgð
SVEINKI SKEMMTIR KRÖKKUNUM Í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu í Reykjavík er mikið fjör klukkan ellefu á hverjum morgni dagana fyrir
jól. Þá mæta þeir einn af öðrum íslensku jólasveinarnir og uppfræða gestina sem safnið sækja heim um sögu sína og siði. Eins og sjá má
hér að ofan gengur það ekki alltaf átakalaust fyrir sig, en þarna geiflar sig Giljagaur og gleður með því börnin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STEFÁN MÁNI ER ÓSÁTTUR
Sakar Eddu um að vilja
ekki auglýsa Túrista
Forlagið segir málið eiga sér sínar eðlilegu skýringar
FÓLK 70
Elskar einfaldan mat
Hlynur Sigurðsson er
mikið fyrir að grilla,
einkum ef hann
hefur kaldan bjór
við höndina. Hann
gefur uppskrift að
girnilegum
kjúklinga-
rétti.
MATUR 54
Er fátækt ólæknandi?
Þorvaldur Gylfason
segir fátækustu lönd
heims standa við stiga
sem hangir yfir
höfðum þeirra
en þau ná ekki
upp í og sökkva
dýpra.
Í DAG 34
LÖGREGLA Rökstuddur grunur leik-
ur á að þjófur eða þjófar í heima-
bankamálinu svokallaða hafi nýtt
sér tölvubúnað hjá saklausu fólki til
að færa þýfið inn á tvo bankareikn-
inga sem það fannst á. Lögreglan
í Reykjavík hefur rakið nokkrar
færslur í þjófnaðarmálunum til
innlendra IP-talna, samkvæmt upp-
lýsingum sem Fréttablaðið hefur
aflað sér.
Millifærslurnar af reikningun-
um voru framkvæmdar með þess-
um IP-tölum, sem skráðar voru á
nokkra einstaklinga á höfuðborg-
arsvæðinu. Lögreglan telur ekki
minnstu ástæðu til að gruna þá um
aðild að þjófnaðinum eftir rannsókn
málsins.
Hún leiddi það hins vegar í ljós
að allir þessir einstaklingar áttu
eitt sameiginlegt. Þeir notuðu allir
tölvur tengdar við þráðlausan „rout-
er“ eða beini inn á netið. Beinir er
tæki sem tölvur tengjast þráðlausri
tengingu.
Maður á þrítugsaldri, sem sat
í gæsluvarðhaldi um skeið vegna
gruns um aðild að þjófnaðarmálun-
um fjórum, þar sem ríflega tveim-
ur milljónum króna var stolið úr
heimabönkum einstaklinga, játaði
að hafa tekið við peningunum, tekið
þá út í reiðufé og ráðstafað þeim
til annarra. Hann hefur ekki viljað
gefa upp hverjir það voru.
Rannsókn lögreglunnar hefur
því meðal annars beinst að því að
finna þann eða þá sem létu hann
hafa peningana og þá sem við þeim
tóku. Reikningarnir sem fjárhæð-
irnar fóru inn á voru í eigu manns-
ins. Ekki hefur reynst unnt, enn sem
komið er, að rekja hver eða hverjir
stóðu að færslum úr heimabönkun-
um til hans.
Lögreglan hefur áður fengist
við mál þar sem eigandi þráðlauss
netaðgangs taldi að einhver óvið-
komandi hefði nýtt sér aðgang hans
í heimildarleysi, farið inn á netið
og hlaðið niður miklu magni af efni
erlendis frá. Eigandinn fékk svo
himinháan reikning, sem engan
veginn fékk staðist miðað við afnot
hans af netinu. Misnotkun af þessu
tagi á sér stað með þeim hætti
að forrit í stýribúnaði fartölva er
útbúið á þann hátt að það leitar
uppi þráðlaust netsamband tölva í
nágrenninu. Þess vegna geta tölvu-
þrjótar lagt fyrir utan heimili fólks
og látið tölvur sínar leita uppi tölvur
með þráðlausum beinum og hlaðið
niður efni í gríð og erg inn á eigin
tölvur. Efnið fer í gegnum tölvur
fórnarlambanna og heimsóknirnar
eru raktar til þeirra. Tölvuþrjót-
arnir geta þannig athafnað sig með
ýmsum hætti í gegnum tölvur með
þráðlausri nettengingu, líkt og með
færslum sem tengjast fjársvika-
málum eins og heimabankamálinu.
Þegar farið er að rekja færslurnar
fellur grunur á saklausa einstakl-
inga, af því að þrjótarnir hafa mis-
notað tölvurnar þeirra.
Lögreglan telur ástæðu til að
vekja athygli tölvueigenda sem nota
þráðlausar gáttir á því að þeir gangi
úr skugga um að þær séu læstar.
Þar með er útilokað að óviðkomandi
geti misnotað þær með ofangreind-
um hætti. - jss
Heimabankaþjófar nýttu
sér þráðlaus netsambönd
Lögreglan í Reykjavík hefur rakið nokkrar færslur í heimabankaráninu til tölva í eigu einstaklinga sem
talið er að séu saklausir. Rennir þetta stoðum undir grun um að tölvuþrjótar hafi brotist inn í viðkomandi
tölvur, sem voru með þráðlausar nettengingar, og notað þær með þessum hætti.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur hafnaði í gær lögbanni sem Sýslu-
maðurinn í Reykjavík setti í haust
á birtingu og umfjöllun um tiltekin
mál í Fréttablaðinu. Bannið var sett
á að beiðni Jónínu Benediktsdóttur.
Dómurinn telur Fréttablaðið
hafa haldið sig innan þess ramma
sem tjáningarfrelsinu er settur með
lögum.
Lögbannið heldur þó gildi sínu
áfram þar sem eftir uppkvaðningu
tekur við þriggja vikna áfrýjunar-
frestur. Áfrýjun til Hæstaréttar
frestar svo réttaráhrifum dómsins
fram yfir dóm æðra dómstigsins.
Lögmaður Jónínu hefur þegar
lýst því yfir að málinu verði áfrýjað
og gildir því lögbannið fram á vor.
Sjá síðu 18 / -óká
Málarekstur á hendur 365:
Banni hafnað
í héraðsdómi