Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 4
4 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18
Opið virka daga: 10-18
laugardaga: 11-15
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
JARÐSKJÁLFTAR Jarðskjálfti, upp
á þrjá á Richter, mældist aðfara-
nótt miðvikudags um 12 kílómetra
norður af Grímsey. Frá því á
þriðjudag hafa um 20 litlir skjálft-
ar mælst á þessu svæði.
Veðurstofan hafði í dag spurn-
ir af því að skjálftans hafi orðið
vart á Blönduósi, í um 150 km
fjarlægð frá upptökunum. Að
sögn Gunnars B. Gunnarssonar,
jarðeðlisfræðings hjá Veðurstof-
unni, getur þetta staðist. „Tíma-
setningar passa og ef það er nægi-
lega stillt geta skjálftar af þessari
stærð fundist ótrúlega langt frá
upptökunum.“
Gunnar segir jarðskjálftahrin-
ur algengar á þessu svæði og enga
ástæðu til að óttast skjálfta af
verulegri stærð, hvað þá eldgos.
-sh
Jarðskjálftahrina við Grímsey:
Skjálftans vart
á Blönduósi
BRETLAND Bilstjóri olíuflutningabíls
hefur viðurkennt að hafa að líkindum
orðið þess valdandi að eldur kvikn-
aði í Buncefield-olíubirgðastöðinni
nærri Lundúnum á sunnudag.
Í viðtali við dagblaðið Daily Mirror
í gær kvaðst maðurinn hafa skilið
bíl sinn eftir í gangi á svæðinu og
skyndilega hafi hann greint elds-
neytisgufur sem síðan myndaðist
sprenging í. Hann náði að komast
undan án teljandi meiðsla. Lands-
samband slökkviliðsmanna í Bret-
landi gagnrýndi slökkviliðið í Hert-
ford-skíri fyrir að hafa verið illa
búið undir slíkan eld. Slökkviliðs-
stjórinn vísar þeirri gagnrýni hins
vegar á bug. ■
Buncefield-bruninn:
Vörubílstjóri
olli brunanum
ENN RÝKUR Smáeldar hafa annað slagið
komið upp í Buncefield síðustu daga en
allt er þó undir stjórn slökkviliðs.AP
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 14.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,88 63,18
Sterlingspund 111,16 111,7
Evra 74,94 75,36
Dönsk króna 10,057 10,115
Norsk króna 9,401 9,457
Sænsk króna 7,936 7,982
Japanskt jen 90,08 90,62
SDR 88,46 89,06
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,4811
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnabrotum
fer stöðugt fjölgandi samkvæmt
upplýsingum frá embætti Ríkis-
lögreglustjóra. Þann 13. desember
síðastliðinn voru þau orðin rúm-
lega 130 fleiri heldur en allt árið
2004. Mestu munar þar um brot
vegna vörslu og meðferðar fíkni-
efna. Þeim fjölgar um 166 frá ári
til árs, miðað við fyrirliggjandi
tölur.
„Þróunin undanfarin ár hefur
verið sú, að málum vegna vörslu
og neyslu fíkniefna hefur farið
fjölgandi,“ segir Rannveig Þóris-
dóttir, félagsfræðingur hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra. „Þessa
breytingu má einkum greina frá
og með árinu 2002 þegar ríkis-
lögreglustjóri hvatti til að lögð
yrði áhersla á þennan málaflokk,
meðal annars með auknu götu-
eftirliti. Þessi fjölgun mála virð-
ist vera hjá öllum sýslumanns-
embættum á landinu þannig að
þau virðast sinna málaflokknum
nokkuð vel.“
Brotum vegna innflutnings á
fíkniefnum virðist fækka á þessu
ári miðað við árið á undan og segir
Rannveig að þetta sé nokkuð mis-
munandi eftir árum.
„Mér sýnist að í heildina verði
minna tekið af efnum á þessu ári,
heldur en í fyrra,“ segir hún. „Þá
var lagt hald á meira magn amfet-
amíns en nokkru sinni fyrr. Alls
voru gerð upptæk rúmlega sextán
kíló af því efni. Yfirstandandi ár
stefnir einnig í að verða metár á
þessu sviði, með svipað magn.
Aftur á móti virðist hafa verið
tekið minna af kannabisefnum í
ár heldur en á síðasta ári. Þess ber
þó að geta að magntölurnar fyrir
árið í ár eru frá því í september,
þannig að þær gefa ekki nema vís-
bendingar um heildarmyndina.“
jss@frettabladid.is
Um 30 kg af amfetam-
íni á tveimur árum
Fíkniefnabrotum fjölgar stöðugt frá ári til árs. Í fyrra gerði lögregla meira
magns amfetamíns upptækt en dæmi eru um eða 16 kíló. Útlit er fyrir að ann-
að eins af amfetamíni verði gert upptækt á þessu ári.
AMFETAMÍN Magn amfetamíns sem lögreglan hefur lagt hald á hefur farið vaxandi á
tveimur síðustu árum. Myndin er tekin af amfetamíni sem var í vörslu lögreglu.
FJÖLDI FÍKNIEFNAMÁLA Á LANDINU ÖLLU
Sala og Varsla og Ýmis
Ár Innflutningur Framleiðsla dreifing Meðferð fíkniefnabrot
2001 117 14 63 593 124
2002 121 26 70 632 145
2003 149 31 117 947 141
2004 164 30 112 1.143 172
2005* 87 19 43 1.309 296
*Bráðabirgðatölur sem ná yfir styttra tímabil, það er frá 1. Janúar til 13. desember 2005.
Önnur ártöl ná yfir allt árið.
TÍÐNI FÍKNIEFNABROTA
2001 2002 2003 2004 2005
991
994
1.385
1.621
1.754
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem hand-
tekinn var þriðjudaginn var eftir að
mikið magn af marijúana og fjöldi
kannabisplantna fannst á heimili
hans hefur kært gæsluvarðhaldsúr-
skurð lögreglu og er von á ákvörð-
un í dag.
Var hann úrskurðaður í viku
gæsluvarðhald en alls fundust 165
stórar kannabisplöntur við húsleit
hjá manninum auk fimm kílóa af
marijúana. Fundust að auki tæp
200 grömm af handþurrkuðu mar-
ijúana við aðra leit lögreglu í gær.
Er þetta langstærsta fíkniefna-
mál sem upp hefur komið á Selfossi
í þyngd talið að sögn lögreglu. Voru
allar plönturnar stórar og miklar
og greinilegt að ekki er um neinn
byrjanda að ræða. Maðurinn hefur
áður komið við sögu lögreglunnar
en aldrei þó vegna fíkniefnabrota.
Líklegt er talið að kröfu hans um að
gæsluvarðhaldsúrskurðurinn verði
felldur niður verði hafnað. -aöe
Stærsti fíkniefnafundur lögreglunnar á Selfossi:
Fundu meira við aðra leit
HLUTI PLANTNANNA SEM HALD VAR LAGT
Á Lögreglan á Selfossi hefur ekki áður lagt
hald á svo mikið magn fíkniefna í kílóum
talið. Heimili mannsins er það stórt að
lögregla gerði aðra húsleit í gær og fann
nokkur hundruð grömm til viðbótar því
efni sem fannst á þriðjudaginn var.
MYND/SUNNLENSKA
DÓMSMÁL Mæðgur, 28 og 60 ára,
voru dæmdar í mánaðarfangelsi
fyrir skjalafals í Héraðsdómi
Reyk ja víkur á þriðjudaginn.
Refsing beggja var skilorðsbund-
in í tvö ár, en hvorug hefur áður
hlotið dóm.
Önnur dóttir konunnar kærði
móður sína og systur fyrir að
hafa í tví gang falsað nafn henn-
ar á skulda bréf. Í fyrra skiptið
var nafn hennar sem ábyrgðar-
manns rit að á 550 þúsund króna
skulda bréf útgefið í mars 1999
og seinna skipt ið sem ábyrgð-
ar manns á skulda bréfi í apríl
2002.
Systirin og móðirin báru fyrir
dómi að nafnritunin hafi verið
gerð í samráði við systurina sem
kærði. Dómkvaddur rit hand-
ar sér fræðing ur sagði ólíklegt
að systir in sem kærði hefði ritað
nafn sitt á bréfin. - óká
Fölsuðu undirskrift á bréf:
Mæðgur fengu
fangelsisdóm
KÍNA Nýjustu stöðutákn ríkra Kín-
verja eru hvorki glæsivillur né lúx-
usbílar, heldur mikill barnafjöldi.
Kínverjar mega ekki eign-
ast fleiri en eitt barn samkvæmt
ákvörðun stjórnvalda vegna fólks-
fjölgunarvandans og vegna þess
hversu mikill kostnaður því fylgir
fyrir þjóðfélagið. Þeir sem af ein-
hverjum ástæðum gera það samt
þurfa að greiða allt að 1,2 milljónir
króna í sekt.
Nýjustu fregnir herma að hinir
efnameiri í Kína geri sér það nú
að leik að hlaða niður börnum, ein-
göngu til að stæra sig af því að þeir
hafi efni á því. ■
Sókn í stöðutákn:
Ríkidæmi sýnt
með börnum
HLUTABRÉF Úrvalsvísitalan, sem er
aðalmælikvarðinn á þróun hluta-
bréfa á Íslandi, hefur hækkað um
59,3 prósent á árinu. Metárið 1996
var hækkunin 59 prósent þannig að
haldist vísitalan óbreytt til áramóta
verður nýtt ársmet slegið.
Hækkunin í ár er orðin meiri en
árin 2003 og 2004 sem þóttu mjög
góð. Sá sem í ársbyrjun 2003 lagði
eina milljón króna í hlutabréf, sem
hreyfast í takt við úrvalsvísitöluna,
á nú rúmlega 2,5 milljónir.
Greiningardeild Íslandsbanka
spáði því snemma árs að úrvalsvísi-
talan myndi hækka um 15 prósent
en 35-42 prósent í síðustu afkomu-
spá sinni í október. - eþa
Úrvalsvísitalan hækkar:
Meiri hækkun
en síðustu ár