Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 6

Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 6
Dagskrá fundarins er · Nýjar samþykktir sjóðsins · Önnur mál Sjóðfélagafundur Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda Sjóðfélagafundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur haldinn a› Skúlagötu 17, Reykjavík á 2. hæ›, 28. desember 2005 og hefst kl. 16.00 h u n an g Reykjavík 21. nóvember 2005 �� �� �� ��� �� �� �� �� �� � ����������������������� ������������������� ����������� ������������� ������� ������������� ���������������������� ������������������� ������������������� ���������������������� ����� ������������� ��������������������� ������������������� ������������� ������������������������������ ������������������� ������� ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� BAGDAD, AP Talsverð spenna ríkir nú í Írak enda ganga landsmenn í dag að kjörborðinu í þriðja sinn á einu ári. Landamærum landsins hefur verið lokað og í nótt ríkti útgöngubann. Gærdagurinn gekk ekki að öllu leyti friðsamlega fyrir sig því bál- reiðir sjíar efndu til mótmæla og var eldur meðal annars lagður að kosningaskrifstofu flokks Iyad All- awi, fyrrverandi forsætisráðherra. Búist er við að öll þjóðarbrot lands- ins muni skila sér vel á kjörstaðina 33.000 sem settir hafa verið upp. Í kosningunum bjóða sig fram 6.655 manns og fylla þeir framboðslista 307 stjórnmálahreyfinga. - shg Kosið í Írak í dag: Fjölmenn mótmæli 6 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR KJÖRKASSINN Viltu að eftirlitsmyndavélar verði settar upp á Laugaveginum? Já 86% Nei 14% SPURNING DAGSINS Í DAG Skortir samkeppni á matvörumarkaði? Segðu þína skoðun á visir.is WASHINGTON, AP George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi í ræðu í gær að ráðist hefði verið inn í Írak á grundvelli rangra upplýs- inga og á því bæri hann ábyrgð. „Það er staðreynd að stór hluti leyniþjónustuupplýsinga reyndist rangur og sem forseti er ég ábyrgur fyrir innrásinni. En ég ber einnig ábyrgð á að laga það sem miður fór með því að bæta leyniþjónustuna og það erum við einmitt að gera,“ sagði Bush í ræðu sinni í Woodrow Wilson-stofnuninni í Washington en ræðan þar var sú síðasta í fundalotu sem hann hefur staðið fyrir að und- anförnu um stefnu ríkisstjórnarinn- ar í málefnum Íraks. Engu að síður sagði forsetinn að ákvörðunin um innrásina hefði verið rétt. „Saddam var ógnun og bandaríska þjóðin og heimsbyggð- in öll er betur sett þegar hann er ekki lengur við völd.“ Bush sagði enn fremur að þingkosningarnar sem haldnar verða í Írak í dag væru tímamótaviðburður sem myndu hafa jákvæð áhrif á lýðræðisþróun- ina um gervöll Mið-Austurlönd. Ný skoðanakönnun Pew-rann- sóknasetursins sýnir að meirihluti Bandaríkjamanna, eða 56 prósent, telur að lýðræði sé í sjónmáli í Írak. Hins vegar sögðu nánast jafnmarg- ir sem þátt tóku í könnuninni að þeir teldu að Bandaríkjamönnum væri að mistakast að koma í veg fyrir mannfall borgara og að borg- arastyrjöld brytist út. - shg Bush Bandaríkjaforseti hélt fjórðu ræðu sína um hernaðinn í Írak í gær: Viðurkennir að mistök voru gerð FUNDALOTUNNI LOKIÐ Bush kveðst fullviss um að rétt hafi verið að ráðast inn í Írak þótt engin gereyðingarvopn hafi verið þar að finna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Björn Bjarnason dóms- málaráðherra segir enn skoðun sína að ekki beri að afnema pólit- íska ábyrgð á því hver skipaður sé hæstaréttardómari og lokaorðið verði áfram í höndum ráðherra. Ný skýrsla Evrópuráðsins hvet- ur stjórnvöld til að færa sig nær þeirri skipan mála sem viðhöfð er á hinum Norðurlöndunum. „Hvort skýrslan verði tilefni til þess, að menn flytji að nýju tillögur um þetta efni á Alþingi er að sjálfsögðu ekki útilokað,“ segir Björn, en hann fundaði með mannréttindafulltrúanum í sumar. „Viðræður mínar við full- trúann og fylgdarlið hans voru gagnlegar og ánægjulegar,“ segir dómsmálaráðherra og bendir á að hér hafi oft staðið umræður um aðferðir við skipan Hæstaréttar- dómara. „Mannréttindafulltrúinn vekur nú máls á þessu álitaefni og hvetur til þess að málið sé enn rætt með hliðsjón af þróun á Norður- löndunum og ábendingumEvrópu- ráðsins. Í athugasemdum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins kemur fram, að í raun sé aðferð okkar hér í góðu samræmi við það, sem tíðkast annars staðar á Norður- löndunum.“ Dómsmálaráðherra segir hins vegar allar ábendingar af því tagi sem fram komi í nýju skýrslunni „að sjálfsögðu ígrund- aðar af stjórnvöldum og lagt mat á þær,“ segir Björn og telur ekki felast í skýrslunni nokkurn áfell- isdóm yfir stöðu mannréttinda hér. „Enda ætti slík niðurstaða ekki við nein rök að styðjast.“ - óká Dómsmálaráðherra er ósammála ábendingum mannréttindastjóra Evrópuráðsins: Lokaorðið verði hjá ráðherra BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra segir oft og mikið hafa verið rætt um hvernig standa beri að skipan hæstarétt- ardómara. STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin er hvött til að endurskoða reglur um hvern- ig hæstaréttardómarar eru hér skipaðir og lagðar til umbætur í fjölda annarra mannréttindamála í nýrri skýrslu embættis mann- réttindafulltrúa Evrópuráðsins sem birt var í gær. Í skýrslunni leggur Alvaro Gil- Robles mannréttindafulltrúi til að stofnað verði embætti óháð rík- isstjórn og stjórnsýslu sem velji hóp dómara sem til greina komi í embætti og geri það á grundvelli menntunar, starfsreynslu, hæfi- leika og hæfni. Alls kemur mannréttindafull- trúinn með 23 ábendingar og athugasemdir í ellefu mála- flokkum. Ábendingarnar eru um skipan dóms-, fangelsis- og gæsluvarðhaldsmála, skipulag mannréttindamála, meðferð hælis- leitenda, aðbúnað innflytjenda, jafnrétti kynjanna, viðbrögð við kynbundnu ofbeldi, misrétti, man- sali og gagnaöryggi. Til dæmis er nefndur sá möguleiki í skýrslunni að umboðsmaður Alþingis fái auknar fjárveitingar og vald til að vísa málum til dómstóla og hvort efla ætti embætti umboðsmanns barna. Brynhildur G. Flóvenz, stjórn- arformaður Mannréttindaskrif- stofu Íslands, segist fagna því sérstaklega að mannréttindafull- trúinn styðji sjónarmið Mannrétt- indaskrifstofunnar varðandi mál- efni hennar. „Hún leggur áherslu á að stjórnvöld eigi að styrkja starfsemi hennar og ég vona að stjórnvöld taki þessar athuga- semdir til greina,“ segir hún og bætir við að aðrar athugasemdir sem gerðar eru í nýju skýrslunni séu í takt við athugasemdir sem Mannréttindaskrifstofan hafi gert, svo sem varðandi málefni útlendinga, reglur um gæsluvarð- hald og annað slíkt. Brynhildur segir skýrsluna staðfesta að ann- ars staðar þyki sjálfsagt að styðja við bakið á óháðum mannréttinda- stofnunum. „Eins og í skýrslunni segir þá verðskuldar Ísland eins og allar aðrar þjóðir Evrópur að hafa sjálfstæða og hlutlausa mannréttindastofnun sem sinnir bæði fræðsluhlutverki og gegnir eftirlitshlutverki.“ Brynhildur vill þó ekki taka svo djúpt í árinni að skýrslan sé áfell- isdómur yfir mannréttindamál- um hér. „Auðvitað er það þannig að alltaf má finna eitthvað að hjá öllum og alltaf hægt að gera betur í mannréttindamálum. Því kemur ekki á óvart að gerðar séu ein- hverjar athugasemdir, en þær eru kannski fullmiklar engu að síður og nauðsynlegt að fara í gegn um þær, að á þær verði hlustað og eftir þeim farið.“ ■ Sjálfstæði Hæsta- réttar verði aukið Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins vill aukið sjálfstæði Hæstaréttar, veg umboðsmanns Alþingis meiri og betur hlúð að Mannréttindaskrifstofu Íslands. Í nýrri skýrslu bendir hann á fjölda hluta sem betur mættu fara. ALVARO GIL-ROBLES MANNRÉTTINDASTJÓRI EVRÓPURÁÐSINS Í nýrri skýrslu Evrópuráðsins sem birt var í gær er fjallað um stöðu hælisleitenda, málefni fanga og fjölda annarra hluta og lagðar til leiðir til úrbóta. Skýrslan kemur í kjölfar heimsóknar mannréttindastjórans hingað til lands í sumar. FR ÉTTA B LA Ð IÐ / A FP / FR ED ER IC K FLO R IN BRYNHILDUR G. FLÓVENZ Brynhildur, sem er stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands, fagnar ábendingum mannréttinda- fulltrúa Evrópuráðsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.