Fréttablaðið - 15.12.2005, Page 8
8 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvar er ráðherrafundur Alþjóðavið-skiptastofnunarinnar haldinn?
2 Hvað heitir maðurinn sem var tek-inn af lífi í Kaliforníu í fyrradag?
3 Hvaða 16 ára leikmann í Sout-hampton vilja mörg stórlið kaupa?
Á eigin vegum um jólin
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
05
89
12
/2
00
5
Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki
bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því
fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að
komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðileg jól.
50 50 600 • www.hertz.is
Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir
Jólatilboð
Toyota Corolla
frá 3.571 kr. á dag
Toyota Rav4
frá 4.471 kr. á dag
Toyota Land Cruiser
frá 5.071 kr. á dag
Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging).
Verð miðast við 7 daga leigu.
Tilboð gildir til 15.01.2006
Sjá nánar á hertz.is
North Face í jólapakkann
TEHERAN, AP Mahoumd Ahmadinej-
ad, forseti Írans, er enn við sama
heygarðshornið í árásum sínum
á Ísraela og Vesturlönd en í gær
afneitaði hann helförinni í fyrsta
sinn opinberlega. Utanríkisráð-
herra Þýskalands segir ummælin
tvímælalaust hafa áhrif á viðræð-
ur um kjarnorkuáætlun Írana sem
fram fara síðar í þessum mánuði.
„Þeir hafa samið þjóðsögu í
nafni helfararinnar og álíta hana
hafna yfir Guð, trúarbrögð og
spámennina,“ sagði Ahmadinejad
á fjöldafundi í borginni Zahedan í
suðaustanverðu Íran í gær. Hann
sagði ennfremur að fyrst Evrópu-
búar héldu því statt og stöðugt
fram að helförin hefði átt sér stað
þá væru þeir ábyrgir fyrir henni,
ekki Palestínumenn. „Þetta er
okkar tilboð: Ef þið drýgðuð
þennan glæp, þá skuluð þið gefa
hluta af ykkar landi í Evrópu,
Bandaríkjunum og Kanada til
gyðinga svo þeir geti stofnað ríki
sitt þar.“
Ummælunum svipar til þeirra
sem Ahmadinejad lét falla á leið-
togafundi íslamskra ríkja í Sádi-
Arabíu í síðustu viku en þá gekk
hann ekki svo langt að afneita
helförinni berum orðum. Í okt-
óber sagði hann þess skammt að
bíða að Ísrael „yrði þurrkað út af
kortinu“.
Mark Regev, formælandi ísra-
elska utanríkisráðuneytisins,
sagði ummæli forsetans bera öfga-
sinnuðu hugarfari íranskra ráða-
manna skýrt vitni. „Þessa blöndu
af öfgakenndri hugmyndafræði,
veruleikafirringu og kjarnorku-
vopnum getur alþjóðasamfélagið
ekki samþykkt.“
Frank-Walter Steinmeier, utan-
ríkisráðherra Þýskalands, sagði
að ríkisstjórn sín myndi kalla
sendiherra Írans á sinn fund og
gera honum óánægju sína ræki-
lega ljósa. „Mér er engin launung
á því að þetta mun hafa áhrif á
samskipti ríkjanna og viðræður
um kjarnorkumál,“ bætti Stein-
meier við, þungur á brún. Tals-
maður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins tók í svipað-
an streng.
Framganga hins herskáa
Ahmadinejad er mjög á skjön við
stefnu forvera hans, Mohammeds
Khatami, sem hvatti til vingjarn-
legra samskipta við Vesturlönd.
Fjölmargir íranskir stjórnmála-
menn eru forsetanum gramir
fyrir ummælin en Ali Khameini,
erkiklerkur og valdamesti maður
landsins, er sagður láta þau sér
vel líka.
sveinng@frettabladid.is
Segir helför-
ina þjóðsögu
Íransforseti bar í gær brigður á að helförin gegn
gyðingum hefði átt sér stað og sagði hana þjóðsögu.
Málið er talið skaða Írana umtalsvert.
TEKUR STÓRT UPP Í SIG Mahmoud Ahmadinejad hefur aldrei áður gengið svo langt að
afneita helförinni eins og hann gerði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BEIRÚT, AP Tugþúsundir Líbana fóru
út á götur borga landsins með þjóð-
fánann í hönd til að minnast þing-
mannsins og ritstjórans Gibrans
Tueni í gær en hann var ráðinn af
dögum í vikubyrjun. Skýrsla rann-
sóknarnefndar Sameinuðu þjóð-
anna um morðið á Rafik Hariri,
fyrrum forsætisráðherra Líbanons,
var kynnt í öryggisráðinu í gær.
Höfuðborg Líbanons lagðist í
dvala þegar jarðarför Tuenis fór
fram og var bönkum, skólum og
stofnunum meðal annars lokað.
Bifreið Tuenis var sprengd í loft
upp í Beirút á mánudaginn með
hann og tvo aðra innanborðs. Tueni
er fjórði andstæðingur Sýrlands-
stjórnar sem myrtur hefur verið í
röð tilræða síðan Hariri var ráðinn
af dögum í febrúar.
Rannsóknarnefnd SÞ kynnti
öryggisráðinu skýrslu sína um
morðið á Hariri í fyrrakvöld og
þar var því haldið fram að sterkar
vísbendingar væru um aðild sýr-
lenskra stjórnvalda að tilræðinu.
Detlev Mehlis, formaður nefndar-
innar, átaldi þau mjög fyrir skort á
samvinnu en tókst þó ekki að sann-
færa ráðið um að refsa Sýrlandi
fyrir vikið. Í staðinn var rætt um
að framlengja umboð nefndarinnar
og láta hana rannsaka fleiri skyld
tilræði. Einnig kom til tals að setja
á fót sérstakan dómstól í málinu.
Sýrlendingar svöruðu Mehlis að
bragði og sögðust þvert á móti hafa
sýnt fulla samvinnu við rannsókn
málsins. - shg
Beirút lagðist í dvala þegar Gibran Tueni, andstæðingur Sýrlandsstjórnar, var borinn til grafar:
Sýrlendingar segjast hafa sýnt samvinnu
FAÐIRINN SYRGÐUR Nayla Tueni, dóttir Gibrans Tueni, var með böggum hildar þegar faðir
hennar var borinn til grafar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP