Fréttablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 10
Sjálfskiptur, álfelgur, spoiler, nagladekk
og 3 drifstillingar.
EKKI FESTAST
Í FRAMTÍ‹INNI!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
X-TRAIL
NISSAN
X-Trail
Ver› 2.690.000,-
Sport
X-Trail
Ver› 2.890.000,-
Elegance
SKIPT_um væntingar
HJÁLPARSTARF „Maður kemst ekk-
ert frekar í hann krappan í Pakist-
an heldur en hér,“ segir Þórarinn
Ingi Ingason, þyrluflugmaður frá
Landhelgisgæslunni, óbanginn. Á
morgun mun hann halda til ham-
farasvæðanna í Pakistan en þar
bíður hans það hlutverk að fljúga
með vistir og nauðsynjar upp í
fjallaþorpin í kringum bæinn
Abbottabad. Einnig mun hann
flytja slasaða á sjúkrahús úr fjall-
aþorpunum.
Þó að aðstæður verði honum
ókunnar mun þyrlan vera honum
kunnugleg en hún er af gerðinni
Super Puma rétt eins og Líf, stærri
þyrla Landhelgisgæslunnar. „Ég
er að leysa af og verð þarna í tvær
vikur,“ segir Þórarinn Ingi sem
búa mun við frábrugðið jólahald í
ár ef af líkum lætur.
Það er norska fyrirtækið Air
Lift sem sér um þessa flutninga
í Pakistan en Landhelgisgæslan
hefur haft nokkurt samstarf við
það fyrirtæki á undanförnum
árum.
„Nú er lagt allt kapp á það að
koma fólki í skjól áður en vetur
skellur á af fullum þunga. Ástand-
ið er mjög viðkvæmt, það eru um
þrjár og hálf milljón manna sem
eru heimilislausar og þegar snjó-
ar verða strax einhver dauðsföll,“
segir þyrluflugmaðurinn.
- jse
Samstarf Landhelgisgæslunnar og Air Lift:
Þyrluflugmaður til Pakistans
ÞÓRARINN INGI INGASON ÞYRLUFLUGMAÐUR Þórarinn er hvergi banginn þótt hans bíði
harður heimur á hamfarasvæðunum í Pakistan. Þar verður hann meðan aðrir halda gleði-
leg jól á Fróni.
PAKISTAN Fertug kona fannst á lífi
um helgina í rústum húss sem
hrundi í jarðskjálftanum mikla í
Kasmír í októberbyrjun. Lækn-
ar segja að um kraftaverk sé að
ræða.
Naqasha Bibi var í eldhúsinu í
húsi sínu í Kamsar-flóttamanna-
búðunum, skammt frá höfuð-
staðnum Muzaffarabad, þegar
skjálftinn reið yfir. Næstu 63 daga
hírðist hún í fósturstellingu og gat
sig hvergi hrært. BBC hermir að
talið sé að hún hafi getað teygt sig
í rotnaða ávexti sem geymdir voru
í eldhússkáp og sötrað lækjarvatn
sem virðist hafa streymt þar hjá.
Þegar Bibi fannst svo á laug-
ardaginn var talið að hún væri að
deyja og því var henni stungið inn
í tjald þar sem hún kúldraðist í tvo
daga til viðbótar. Þar fann þýskur
læknir hana og kom henni í skyndi
á sjúkrahús í Muzaffarabad.
Læknar sem hafa meðhöndlað
hana segja algert kraftaverk að
Bibi sé enn á lífi. Hún var aðeins
35 kíló að þyngd og varð í fyrstu
að gefa henni næringu í æð. Enn
hefur ekki tekist að rétta úr stirð-
um fótleggjum hennar. Engu að
síður segja geðlæknar hana við
furðu góða andlega heilsu og þótt
hún hafi enn ekki getað stunið
upp orði brosti hún til læknanna í
fyrradag. - shg
Fórnarlamb skjálftans í Kasmír lifði á rotnuðum ávöxtum og seytlandi vatni:
Fannst á lífi eftir tvo mánuði
NAQASHA BIBI Þegar hún fannst eftir 63
daga hafði formlegri leit verið hætt fyrir
löngu. NORDICPHOTOS/AFP
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR