Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 12
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
JÓLIN NÁLGAST!
NÁÐU FORSKOTI Á NÝJUM OPEL.
*Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 10% útb. og eftirstö›var í 84 mánu›i.
Opel Astra Hatchback er fallegur og frábærlega smíðaður. Hann er líka
vel búinn með ABS, skynvirku fjöðrunarkerfi, aksturstölvu og fjölda
annarra skemmtilegra kosta. Hann er aflmikill en líka sparneytinn, lipur
og rúmgóður. Astra fær fimm stjörnur í árekstrarprófi Euro NCAP.
Hverjum Opel fylgir 100.000 kr. gjöf frá Bræðrunum Ormsson handa þeim
sem þér þykir vænt um.
Við hvetjum alla ökumenn til að aka varlega um hátíðarnar.
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.695.000 kr. 10% ÚTBORGUN 169.500 kr.
A‹EINS 22.810 kr. Á MÁNU‹I*
FRÁ TAVISTOCK
SQUARE Alls létust 56
manns í árásunum í
sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRETLAND Breska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að sérstök opinber
rannsókn á hryðjuverkaárásun-
um á samgöngukerfi Lundúna 7.
júlí síðastliðinn muni ekki fara
fram. Í staðinn verður gefin út
skýrsla um árásirnar sem byggð
verður á þeim gögnum sem þegar
eru til.
Ættingjar þeirra sem létust
svo og talsmenn múslima og
þingmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu ákvörðun stjórnar-
innar harkalega í gær. „Ef við
öflum ekki allra upplýsinga um
málið munum við aldrei geta
tekið á hinum raunverulega
vanda,“ sagði Iqbal Sacraine,
forseti Múslimaráðs Bretlands í
samtali við BBC. ■
Breska ríkisstjórnin vegna árásanna í Lundúnum:
Engin rannsókn gerð
BERLÍN, AP Ráðherrar í þýsku rík-
isstjórninni sögðust í umræðum á
þýska sambandsþinginu í gær ekk-
ert rangt hafa aðhafst í máli Khal-
ed al-Masri, þýsks ríkisborgara
sem var saklaus numinn á brott af
bandarísku leyniþjónustunni CIA
og fluttur til yfirheyrslna í Afgan-
istan í árslok 2003.
Frank-Walter Steinmeier, utan-
ríkisráðherra sem á þeim tíma
var hermálaráðgjafi ríkisstjórnar
Gerhards Schröder, ítrekaði að
stjórnin hefði ekki haft hugmynd
um málið fyrr en eftir að al-Masri
hafði verið sleppt. Þá hefðu stjórn-
völd farið fram á ítarlegar skýr-
ingar frá Bandaríkjamönnum. ■
Þýska ríkisstjórnin ver sig:
Stóð rétt að
máli al-Masri
STEINMEIER Utanríkisráðherrann segir
ekkert benda til að upplýsingar þýsku
leyniþjónustunnar hafi orðið til þess að
al-Masri var rænt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP