Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 18
Da
gat
al S
par
isjóð
sins 2006 er komið!
... og bjóðum upp á ilmandi kaffi og piparkökur.
Verið velkomin í jólastemninguna.
www.spar.is
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
24.900 kr.
MOTOROLA V3 RAZR
SÍMI
ATVINNUMÁL Sex íslensk iðnfélög
hafa sent Alþingi áskorun þess
efnis að hætt verði að innheimta
svokallað iðnaðarmálagjald enda
séu rökin fyrir þessu þrjátíu ára
gamla gjaldi úrelt og gert sé upp á
milli iðnfélaga.
Gjaldið var sett á árið 1975 í
þeim tilgangi að vinna að eflingu
iðnaðar og iðnþróunar í landinu
en gjaldið, alls um 214 milljónir
króna, rennur óskipt til Samtaka
iðnaðarins. Eru gerðar athuga-
semdir við að ríkið innheimti
slíkt gjald fyrir ein hagsmuna-
samtök sem hafa þó ekki öll fyr-
irtæki í iðngeiranum innan sinna
vébanda. Er þannig gert upp á
milli samtaka sem mörg hver
reiða sig eingöngu á félagsgjöld
til rekstursins.
Í tilkynningu sem félögin
sex, Félag pípulagningarmanna,
Meistarafélag húsasmiða, Félag
dúklagninga- og veggfóðrara-
meistara, Bílgreinasambandið og
Félag íslenskra stórkaupmanna,
hafa sent frá sér er þess krafist að
gjaldið verði fellt niður hið fyrsta.
Um óréttlátan nauðungarskatt sé
að ræða auk þess sem bent er á
að hæpið sé að lögin um gjaldið
standist ákvæði stjórnarskrár um
félagafrelsi. Að öðrum kosti verði
leitað til Mannréttindadómstóls
Evrópu. - aöe
Áskorun fjölmargra iðnfélaga til Alþingis:
Iðnaðarmálagjaldið burt
IÐNAÐARMÁLAGJALDIÐ BURT Gjald það
er ríkið innheimtir af iðnfyrirtækjum til að
efla iðnað og iðnþróun í landinu fer að
öllu leyti til Samtaka iðnaðarins á kostnað
annarra samtaka.
SVÍÞJÓÐ Sænskur karlmaður hefur
verið dæmdur í fjórtán ára fang-
elsi fyrir að hafa niðurlægt sam-
býliskonu sína og selt hundruðum
manna. Maðurinn neyddi konuna
til að ganga með talstöð og beitti
hana ítrekuðu ofbeldi, bæði einn
og með mörgum öðrum körlum.
Þannig var hún látin drekka þvag
úr einum mannanna og þvinguð til
að hafa hópsamfarir með allt að
sextán mönnum í einu.
Á vefútgáfu Expressen kom
fram í gær að konan hefði nokkrum
sinnum reynt að fremja sjálfsmorð
en ákveðið að lokum að kæra hór-
mangarann til lögreglunnar. Eftir
að hún þorði að bera vitni höfðu
fleiri konur samband við lögregl-
una og fyrrverandi sambýliskona
ákærði hann. Hann hafði líka
neytt hana til vændis. ■
SVÍÞJÓÐ Miklar líkur eru sagðar á
því að ráðuneytisstjórinn í sænska
forsætisráðuneytinu fái að fjúka
vegna mistakanna sem áttu sér
stað í sænska stjórnkerfinu eftir
flóðbylgjuna á Indlandshafi um
jólin í fyrra.
Ráðuneytisstjórinn er talinn
hafa gefið Göran Persson forsæt-
isráðherra rangar upplýsingar
um atburðarásina en sjálfur hefur
hann mótmælt því.
Svo virðist sem þrýstingurinn
á að Laila Freivalds utanríkisráð-
herra segi af sér hafi minnkað
en um tíma leit út fyrir að dagar
hennar í embætti væru taldir. ■
Sænska stjórnkerfið:
Ráðuneytis-
stjóri á útleið
STJÓRNMÁL Í kjölfar ummæla Skarp-
héðins Þórissonar ríkislögmanns
um að Hjálmar
Árnason, hafi
farið rangt með
tímasetningu á
ráðgjöf embættis-
ins vegna starfs-
loka Valgerðar
H. Bjarnadóttur,
sendi þingflokks-
formaðurinn frá
sér tilkynningu.
Þar segir Hjálmar að hann hafi
talið að ríkislögmaður hafi veitt
umrædda ráðgjöf fyrr en raun
bar vitni. Hjálmar telur aðallatriði
málsins engu að síður vera þau að
embætti ríkislögmanns hafi veitt
ráðgjöf þess að lútandi að á Val-
gerði H. Bjarnadóttur hafi ekki
verið brotið. ■
Hjálmari Árnason:
Vill leiðrétta
misskilning
HJÁLMAR ÁRNASON
Sænskur hórmangari:
Dæmdur í 14
ára fangelsi
18 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
SMÁR EN KNÁR Fullvaxnir andeskondórar
eru þyngstu ránfuglar jarðar, 9-12 kíló, en
Acatematzi litli á nokkuð í land með að ná
slíkri þyngd. Hann fæddist 6. desember í
dýragarðinum í Búenos Aíres og er strax
farinn að leika sér með líkön að sér stærri
fuglum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Lögbannskröfu Jón-
ínu Benediktsdóttur á hendur
Fréttablaðinu og 365 prentmiðlum
var hafnað í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Þá var refsikröfum á
hendur Kára Jónassyni, ritstjóra
Fréttablaðsins, hafnað og bæði
útgáfufélag og ritstjóri sýknað af
miskabótakröfu Jónínu.
Hróbjartur Jónatansson, lög-
maður Jónínu, segir málinu verða
áfrýjað til Hæstaréttar og því
gildi lögbannið áfram. „Áfrýjun
frestar réttaráhrifum dómsins,“
segir hann.
Kári Jónasson, ritstjóri Frétta-
blaðsins, segir blaðið hins vegar
fagna dómnum og kveðst búast
við sömu niðurstöðu í Hæstarétti.
„Auðvitað er fáránlegt að hægt sé
að múlbinda
f j ö l m i ð l a
með þess-
um hætti,“
segir hann
og telur með
málat i lbún-
aðinum vegið
að grundvall-
a r a t r i ð u m
f r j á l s r a r
fjölmiðlunar.
„Enda mjög
alvarlegt að
sýslumaður
geti komið inn
á ritstjórn-
arskrifstofur og tekið vinnugögn
fréttamanna.“ Þá bendir Kári á að
vegna lögbannsins standi fjölmiðl-
ar 365 samsteypunnar nú frammi
fyrir því að geta ekki fjallað um
„Jónínumálið“ í áramótayfirliti.
Lögbannið setti Sýslumaður-
inn í Reykjavík á 30. september,
en það bannar Fréttablaðinu og
öðrum fjölmiðlum útgáfufélags-
ins að fjalla um aðdraganda svo-
kallaðs Baugsmáls, með vísan til
gagna sem um leið voru gerð upp-
tæk, eða að vitna í fyrri skrif um
málið.
Samkomulag varð milli lög-
manna Jónínu og 365 prentmiðla
um að gögnin yrðu ekki lögð fyrir
dóminn sem dómsskjöl, en þau
hafa ekki verið gerð opinber í
heild sinni.
Sigurður H. Stefánsson, dómari
í málinu, skoðaði hins vegar gögn-
in og gerir um þau bókun í dóm-
inn. „Þau reynast hafa að geyma
tjáskipti stefnanda og nokkurra
nafngreindra einstaklinga og
virðast á einhverjum tíma hafa
verið prentuð út af tölvupósthólfi
stefnanda,“ segir hann og kemst
að þeirri niðurstöðu að með skrif-
um sínum hafi Fréttablaðið ekki
farið út fyrir mörk sem tjáningar-
frelsi eru sett, samkvæmt ákvæð-
um stjórnarskrár og laga um
mannréttindasáttmála Evrópu.
Hróbjartur segir rangt lagt
upp með grundvallaratriði í
dómnum og telur hann alrangan.
„En héraðsdómur er náttúrulega
bara undirréttur, yfirleitt bara
skipaður einum dómara og mál
sem varða mikla hagsmuni fara
venjulega til Hæstaréttar. Því er
hvorki ástæða til að ærast af kæti,
né brotna niður við niðurstöðu hér-
aðsdóms,“ segir hann, en áréttar
þó um leið að héraðsdómstigið sé
gott og gilt og þar séu mörg mál
útkljáð að fullu. „Án þess væru
menn líka bara með eitt dómstig
og fengist ekki sú endurskoðun
dóma sem er í samræmi við til-
gang áfrýjunarstigsins.“
olikr@frettabladid.is
JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR OG HRÓBJARTUR JÓNATANSSON Myndin er tekin í dómsal 101 í
Héraðsdómi Reykjavíkur þegar fram fór aðalmeðferð í lögbannsmáli Jónínu vegna birtingar
frétta sem byggðu að hluta á tölvupóstsamskiptum hennar við aðra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Lögbannið stendur
enn þrátt fyrir dóm
Héraðsdómur segir Fréttablaðið ekki hafa farið út fyrir þau mörk sem tjáning-
arfrelsinu eru sett. Blaðið birti upplýsingar úr tölvupósti Jónínu Benediktsdótt-
ur. Hróbjartur Jónatansson, lögmaður hennar, segir lögbannið gilda áfram.
KÁRI JÓNASSON
Ritstjóri Fréttablaðsins
fagnar niðurstöðu Hér-
aðsdóms Reykjavíkur
þar sem lögbannskröfu
Jónínu Benediktsdóttur
var hafnað.