Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 22
Flókin veröld
„Þeir hjá Vegagerðinni segja
að forsvarsmenn Strætó hafi
ekki viljað setja upp stoppi-
stöð en þeir hjá Strætó segja
að Vegagerðin hafi gleymt
að setja upp stöðina.“
EINAR SÍMONARSON BÝR Í
GRENND VIÐ GRÓÐRARSTÖÐINA
LUND VIÐ VESTURLANDSVEG OG
SAKNAR STRÆTÓS. FRÉTTABLAÐIÐ.
Það er þá á hreinu
„Þegar fullkomnu foreldra-
jafnrétti er náð, þá munu
konur ná launajafnrétti á
vinnumarkaði. Ekki fyrr.“
GÍSLI GÍSLASON, FORMAÐUR
FÉLAGS ÁBYRGRA FEÐRA, Í GREIN Í
MORGUNBLAÐINU.
Endurgerð lagsins Hjálpum þeim,
eftir Axel Einarsson og Jóhann G.
Jóhannsson, í flutningi landsliðs-
ins í poppi árið 2005 kom í verslan-
ir í fyrradag. Viðtökur hafa þegar
verið mjög góðar, að sögn Einars
Ólafs Speight hjá Hagkaupi en
diskurinn fæst í Hagkaupsversl-
unum, 10-11 og Bónus. „Þetta varð
strax söluhæsti diskurinn hjá
okkur,“ segir Einar Ólafur sem
spáir að Hjálpum þeim verði sölu-
hæsta plata ársins. „Hún verður
örugglega í einu af toppsætun-
um,“ segir hann.
Einar Bárðarson sem stóð að
undirbúningi útgáfunnar segist
hafa fengið mjög góð viðbrögð frá
almenningi og sömu sögu hefur
Anna Ólafsdóttir hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar að segja. Allir
sem komu að útgáfunni gáfu vinnu
sína og rennur söluandvirðið til
bágstaddra í Pakistan og víðar. Þá
er laginu ætlað að vekja athygli á
jólasöfnun Hjálparstarfsins fyrir
vatni. ■
Hjálpum þeim kom í verslanir í fyrradag. Salan fer mjög vel af stað:
Líklega metsöluplatan í ár
SUNGIÐ AF EINLÆGNI OG INNLIFUN Tugir söngvara tóku þátt í hljóðritun Hjálpum þeim.
TVEIR Á TOPPNUM Leikarinn Khairatkhan Sherkhakhan frá Kasakstan sést hér með örninn
sinn á rauða dreglinum á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Dúbai. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ég á von
á því að
verða
ákærður
LÖGREGLAN SEGIR JÓNAS GARÐARSSON HAFA VERIÐ
FULLAN VIÐ STÝRIÐ ÞEGAR PAR LÉST Á VIÐEYJARSUNDI
Á YFIR HÖFÐI SÉR ALLT AÐ SEX
ÁRA FANGELSI
DV2x15 14.12.2005 19:37 Page 1
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR22
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Ingunn Huld Sævarsdóttir
hefur sent frá sér ljóða-
bókina Hungr míns hjarta.
Flest eru ljóðin hennar á
trúuðum nótum enda ákvað
hún ung að fylgja Jesú.
„Ég hef ort síðan ég var lítil og
man eftir mér tíu til tólf ára gam-
alli að gera vísur,“ segir Ingunn
Huld sem nú er 22 ára. Hún telur
áhugann á kveðskap vera frá
pabba hennar og afa sem báðir
hafa dundað sér við yrkingar án
þess þó að hafa gefið nokkuð út.
Ljóðin í bókinni voru flest
ort á síðasta ári en þá vann Ing-
unn Huld á gistiheimili austur
í sveitum. „Ég vann í eldhúsinu
og hafði mikinn tíma til að fara
í göngutúra. Ég kom yfirleitt til
baka með ljóð í vasanum,“ segir
hún. Að sumarvinnunni lokinni
fór hún í Biblíuskóla í Skotlandi
og lagði lokahönd á verkið þegar
hún kom aftur heim.
Trúin skipar ríkan sess í lífi og
hjarta Ingunnar Huldar og flest
ljóðin bera þess glögg merki. „Ég
hef alltaf trúað á Guð og ákvað
þegar ég var fimmtán ára að
fylgja Jesú.“
Hún er í Íslensku Kristskirkj-
unni sem er lúthersk fríkirkja
og auk þess að rækta þar trúna
hjálpar hún til í unglingastarf-
inu.
Titill bókarinnar er sóttur í
eitt ljóðanna en það fjallar um
stöðuga leit fólks að lífsfyllingu.
Ingunn Huld veit hvar þá fyll-
ingu er að finna. „Guð er sá eini
sem getur satt hungur hjartans,“
segir hún ákveðin.
Ingunn Huld gefur bókina sína
sjálf út og segir hún einmanalegt
en skemmtilegt að standa í stúss-
inu sem slíku fylgir. Hún reynir
þó að hitta vini sína á milli vinnu-
tarna enda hefur hún sérlega
gaman af að vera með fólki. „Ég
hef ríka þörf fyrir að vera með
fólki,“ segir hún. Engin lognmolla
ríkir á vinnustað hennar því hún
afgreiðir á kaffistofu Háskólans í
Reykjavík þar sem oft er þröng á
þingi á mestu annatímum. Þegar
um hægist gefur hún sér svo tíma
til að setjast niður og pára pæl-
ingar sínar og ljóð á bréfpoka.
Ingunn Huld kemur fram á
svonefndu kakókvöldi á Ömmu-
kaffi í Austurstræti í kvöld og les
þar upp úr bókinni sinni auk þess
að flytja nokkur frumsamin lög
við undirleik góðvina sinna. ■
INGUNN HULD SÆVARSDÓTTIR Ætlar að lesa úr nýútkomnu ljóðabókinni sinni á Ömmu-
kaffi í Austurstræti í kvöld. Þar ætlar hún einnig að flytja nokkur frumsamin lög.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guð er sá eini sem satt
getur hungur hjartans
„Það er allt gott að frétta úr Neskirkju. Það er góð
tíð, mikið um að vera í kirkjunni og góður gangur í öllu
starfi,“ segir séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í
Neskirkju. Hann segir starfsálagið ekki aukast að ráði
í kringum jólin. „Það eru auðvitað einhverjar sveiflur
í þessu eftir mánuðum en dauðinn fer til dæmis ekk-
ert í frí um jólin þannig að við prestar erum að sinna
prestsverkum allt árið um kring.“ En gefur fólk sér tíma
til að sækja kirkju í miðri jólaösinni? „Já, það hefur verið
mikil og góð kirkjusókn í Neskirkju í desember og mikið
fjölmenni í messum auk þess sem tónleikahald skipar
aukin sess í kirkjulífinu í jólamánuðinum. Við erum glöð
og hrærð yfir því hve margir leggja leið sína í kirkjuna.
Ný aðstaða sem við höfum byggt inni í safnaðarheimili
hefur líka aukið starfið og styrkt á margan hátt. Svo hefur
líka fagnaðarerindið - orð Guðs - áhrif. Eins og Guð hefur
lofað þá skilar það árangri og við verðum áþreifanlega
vör við það í Neskirkju.“
Hvernig skyldi svo Guðs maður eins og Örn haga
sínum jólaundirbúningi? „Ég hef nú staðið í flutning-
um núna á aðventunni þannig að það hefur helst
skapað hjá mér auknar annir en við höldum jól á
ákaflega hógværum nótum. Við förum pent í sak-
irnar og njótum jólanna ekki hvað síst hið innra.
Við gefum auðvitað gjafir eins og gengur en við
erum ekki átta vikur að undirbúa jólin. Þetta er
ein helgi með góðum mat þar sem við gleðjumst,“
segir Örn og gefur lítið fyrir neysluæðið sem gríp-
ur menn á hátíðarstundum. „Aðventan á að vera
kyrrðartími og tími rólegheita og íhugunar. Á jól-
unum sjálfum á maður svo að fagna virkilega og
gleðjast af hinu rétta tilefni. Ef maður veit ekki hver
tilgangurinn er eða hlustar á og leggur sig
eftir boðskap jólanna með einhverjum
hætti þá er þessi jólahátíð nú frem-
ur tilgangslítil.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SÉRA ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON
Förum pent í sakirnar
HUNGR MÍNS HJARTA
Hungur míns hjarta
eftir ósvikinni ást
eðal andans meðal
ást sem uppfyllir mig
en skilur ekki eftir sig
endalaust tóm
heldur mér fastri í klóm
og gerir mig háða því sem dugar ei til
að færa mér það sem ég vil
og mig vantar og þrái
Þorsti
hjarta mitt brostið
hungrað og hætt að reyna
að taka til greina
að elta eitthvað sem er óekta
og gerir mig svanga og svekkta.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI