Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 30
 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR30 hagur heimilanna Matvöruverslanir bjóða margar ágætt úrval af bókum fyrir jólin og þeir eru ófáir sem kjósa að gefa góða skruddu í jólagjöf. Matvöru- verslanirnar Bónus, Hagkaup, Krónan og Nettó selja allar bækur og í þessum verslunum er einnig hefð fyrir því að hægt sé að skila bókum eftir jólin. Bónus býður viðskiptavinum að skila bókum, Til þeirra er hægt að skila jólabókunum til 10. jan- úar að því gefnu að bókin sé plöst- uð og merkt versluninni með þar til gerðum límmiða. Skilafresturinn í Hagkaupum er einnig til 10. janúar. Hagkaup tekur við öllum bókum sem eru í sölu fyrir jólin og þær þurfa ekki að vera merktar sérstaklega. Í Nettó er hægt að skila bók- unum á milli jóla og nýárs. Bæk- urnar sem þar eru í sölu eru ekki merktar sérstaklega og því tekur Nettó við öllum þeim bókum sem búðin hefur til sölu. Krónan selur einungis bækur utan höfuðborgarsvæðisins en skilareglur verslunarinnar lágu ekki fyrir í gær. - æþe ■ Úlfar Eysteinsson, eigandi veitinga- staðarins Þriggja frakka, lumar á allnokkrum húsráðum þegar kemur að matargerð. „Mér dettur í hug af því margir eru með hangikjöt og uppstúf um jólin að gott ráð er að setja mjólk í pott og þegar hún hættir að hreyfast að strá þá sykri yfir. Hann fellur þá á botninn og einangrar mjólkina og kemur í veg fyrir að hún brenni. Annað sem mér dettur í hug varðar hvalkjötið okkar. Áður var vinsælt að geyma kjötið í mjólk til verndar tímabundið. Það virkar en gallinn er sá að mjólkin dreifist þá um kjötið og hefur áhrif á bragðið. Betra er að sleppa því og skera í staðinn af ysta lagið af kjötinu. Þannig haldast bragðgæðin og kjötið verður ekki gegnsýrt af mjólk. GÓÐ HÚSRÁÐ: SYKUR Á BOTNINN MEÐ HANGIKJÖTINU „Bestu og ánægjulegustu kaupin sem ég man eftir eru kaup á ljóðabók,“ segir Marín Guðrún Hrafnsdóttir menningarfulltrúi. „Það var frábær tilfinning að finna loks, í fornbókaverslun á Laugaveginum, frumútgáfu af ljóðabók Snorra Hjartarsonar Hauströkkrið yfir mér frá 1979. Eintakið var reyndar ekki til sölu og fornbóka- salinn sagði mér að hann vildi halda bókinni fyrir sig. Ánægjan var því enn meiri þegar hann ákvað að selja mér bókina, en ég held að hann hafi skynjað hversu mikilvægt þetta var fyrir mig. Ég fékk bókina fyrir 1000 krónur og þetta er og verður uppáhaldsbókin mín. Ég tengi bókina minningu afa míns, Þóris Sigurðssonar, sem kenndi mér að meta snilligáfu Snorra og fleiri ljóðskálda. Besta fjárfestingin er líklega fyrsta íbúð okkar hjóna sem við búum enn í. Við keyptum hana fyrir sex árum, rétt fyrir sprenginguna á fasteignamarkaðinum. Þessi kaup tengj- ast líka verstu kaupunum sem ég man eftir. Þá var ég í flísahugleiðingum og ætlaði að gera góð kaup á útsölum. Ég keypti fallegar baðflísar og taldi mig vera að gera hin bestu kaup. Þegar við fórum í að flísaleggja baðherbergið kom í ljós að í einum kassanum voru sams konar flísar og í hinum kössunum en þó nokkru stærri. Það var ekki hægt að að skipta þeim og eftir nokkuð svekkelsi og pirring út í verslunina var ákveðið að skera hverja einustu flís sem átti eftir að fara upp á vegg í sömu stærð og þær sem komnar voru upp. Þessi flísakaup mín reyndust mjög kostnaðarsöm og breytingarnar á baðherberginu tóku allt of langan tíma.“ NEYTANDINN: MARÍN GUÐRÚN HRAFNSDÓTTIR MENNINGAR- OG FERÐAMÁLAFULLTRÚI Ljóðabókin og fyrsta íbúðin SKJÓTIÐ SAMAN Í GJÖF Fyrir ungu stúlkuna Fyrir mömmuna Fyrir ömmuna Fyrir langömmuna Pelskápur Pelsúlpur Dúnúlpur Leðurjakkar Kasmír ullarkápur Hattar, húfur og kanínuskinn Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 16.900 kr. MOTOROLA V360v SÍMI KOMDU Í SPENNANDI HEIM AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA > Kílóverð á úrbeinuðum svínahamborgarhrygg í maí miðað við verðlag á öllu landinu Útgjöldin Eflaust hyggur margur á fasteignakaup nú í desembermánuði. Einn óhjákvæmilegur fylgifiskur slíkrar fjárfestingar er þinglýsing sýslumanns. Kostnaðurinn sem því fylgir er í tvennu lagi. Í fyrsta lagi greiðir kaupandi fast þinglýsingargjald, sem er óháð verði eignarinnar, upp á 1.350 krónur. Í öðru lagi þarf svo kaupandi að greiða 0,4% af fasteignamatsverði eignarinnar. Svo dæmi sé tekið, ef fest hefur verið kaup á eign að verðmæti fimmtán milljóna króna, þarf kaupandi að reiða fram 60.000 krónur sem hlutfall af fasteigna- matsverði og 1.350 krónur fyrir fasta þinglýsinga- gjaldið. Þessi kaupandi þarf því að reiða fram samtals 61.350 krónur við þinglýsingu eignarinnar. ■ Hvað kostar... þinglýsing eignar Tvískiptur kostnaður Verðkönnun ASÍ á þeim bókum sem eru til sölu í 14 verslunum á höfuðborgar- svæðinu og Akureyri fyrir komandi jól leiðir í ljós að mikill verðmunur er á bókunum eftir verslunum. Í könnuninni var Bónus oftast með lægsta verðið en Griffill það hæsta. Verðkönnunin fór fram 13. desem- ber. Af þeim bókum sem verð- könnunin náði til var mesti verð- munurinn á bók Einars Kárasonar, Jónsbók, um athafnamanninn Jón Ólafsson. Bókin kostaði 5.990 krónur í Pennanum-Eymundssyni en Nettó og Bónus voru með bók- ina til sölu fyrir 2.995 krónur. Í könnuninni var bókin Hinir sterku eftir Kristján Þórð Hrafns- son sú bók sem minnstur verð- munur var á hjá verslununum, eða rúm 22 prósent. Af þeim 36 bókum sem verð var kannað á, kom í ljós að 20 þeirra voru dýrastar í versluninni Griffli. Margrét Grétarsdóttir, versl- unarstjóri í Griffli, segir að verð- könnunin segi ekki alla söguna. „Í könnuninni er ekki tekið tillit til tilboðsins sem við bjóðum upp á, sem er að viðskiptavinurinn verslar þrjár bækur en greiðir bara fyrir tvær, ódýrasta bókin er þá ókeypis,“ segir Margrét. Hún segir að með því að gera við- skiptavinum þetta tilboð sé ekki verið að stjórna því með verð- lagningu hvaða bækur fólk kaupi. „Tilboðið gildir fyrir allar bækur en ekki bara þessar vinsælu, fólk getur því ráðið því sjálft hvort það kaupir metsölubækur eða ein- hverjar aðrar þegar það nýtir sér tilboðið. Við erum frekar að stíla inn á að fólk nýti sér tilboðið og kaupi fleiri en eina bók.“ Bónus bauð oftast lægsta verðið í verðkönnuninni. Óðinn Geirsson, verslunarstjóri Bónus í Kringlunni, segir að verslun- in hafi það að leiðarljósi að vera ávallt með lægsta verðið á bókum. „Um leið og við komumst að því að aðrir hafa lækkað verðið á bókum niður fyrir það sem við bjóðum, þá breytum við verðinu. Hver ein- asta bók á að vera ódýrari hér en annar staðar,“ segir hann. Bónus er ekki með svipað tilboð og Griffill býður upp á en Óðinn segir að það eigi ekki að koma að sök. „Ef einhverjar verslanir eru með tilboð þá förum við niður fyrir það. Þetta er náttúrlega bara leikur að tölum hjá verslun- unum og viðskiptavinurinn metur það hvað hann telur hagstæðast,“ segir Óðinn. steinar@frettabladid.is Oftast ódýrast í Bónus en dýrast í Griffli VERÐ Á VINSÆLUSTU BÓKUNUM Dýrast Ódýrast Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason Griffill 4.590 kr Bónus 3.040 kr Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur Griffill 4.590 kr Bónus 3.040 kr Rokland eftir Hallgrím Helgason Griffill 4.590 kr Bónus 2.812 kr Sólskinshestur eftir Steinunni Sigurðardóttur Griffill 4.190 kr Bónus 2.780 kr Ég elska þig stormur eftir Guðjón Friðriksson Penninn Eymundsson 5.990 kr Bónus 3.893 kr Harry Potter og blendingsprinsinn eftir J.K. Rowling Griffill 3.880 kr Bónus 2.582 kr Fíasól í Hósiól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur Bókabúð Jónasar 2.490 kr Bónus 1.615 kr Kapteinn Ofurbrók og líftæknilega... Eftir David Pilky Griffill 2.680 kr Bónus 1.789 kr Jólasveinasaga eftir Bergljótu Arnalds Mál og menning 2.480 kr Bónus 1.487 kr Minn tími er nóttin eftir Mary Higgings Clark Mál og menning, 3.980 kr Bónus 2.529 kr Penninn Eymundsson, Pennin-Bókval á Akureyri Bækur sem eru á metsölulista Pennans-Eymundsson og einnig í verðkönnun ASÍ Matvöruverslanir selja nýútkomnar bækur fyrir jólin: Skilareglur mismunandi 1. 89 8 1. 61 8 1. 25 8 1. 79 8 1. 43 8 2001 2003 20042002 2005 Heimild: Hagstofa Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.