Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 32
MÓTMÆLI Lögreglumenn og suður-
kóreskir mótmælendur tókust á
annan daginn í röð í Hong Kong
í gær þar sem fundur Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar WTO
fer fram. Átökin í tengslum við
fundinn eru þó langtum minni
en orðið hafa á síðustu fundum
stofnunarinnar.
Rétt eins og í fyrradag hófst
gærdagurinn á friðsamlegri
kröfugöngu gegn áformum WTO
um að draga úr viðskiptahindr-
unum á þjónustu á milli landa en
skömmu síðar létu Suður-Kór-
eumennirnir til skarar skríða.
Margir höfðu vafið plastfilmu
utan um höfuð sér til að verj-
ast úða lögreglumanna en aðrir
skýldu andliti sínu með klútum.
Rauðklæddir mótmælendurnir
virtust hafa skipulagt aðgerðir
sínar vel því þeir æddu að lög-
reglunni í bylgjum og hörfuðu
svo undir dynjandi trumbuslætti.
„WTO er hinn illi öxull. Við erum
harðákveðin í að berjast þar til
WTO hefur verið knésett,“ sagði
To Sung-hoon, kennari frá Seúl í
samtali við AP-fréttastofuna.
Lögregla virtist sömuleið-
is vera vel undir átökin búin.
Óeirðalögreglumenn, gráir fyrir
járnum, slógu skjaldborg utan
um mótmælendur og sprautuðu
ertandi úða í andlit þeirra sem
gerðust of aðgangsharðir. Alfred
Ma, formælandi lögreglunnar í
Hong Kong, þvertók, í viðtali við
blaðamann breska blaðsins Inde-
pendent, fyrir að um piparúða
væri að ræða, eins og í fyrstu
var talið, heldur sagði hann
efnið einungis valda vægri ert-
ingu. Engu að síður blinduðust
nokkrir mótmælendur um tíma.
Ma sagði ennfremur að ákveðið
hefði verið að handtaka engan til
að koma í veg fyrir að ólgan yxi
enn frekar.
Suður-Kóreumenn óttast mjög
að eftir afnám viðskiptahindrana,
svo sem tolla og niðurgreiðslna,
muni þarlendir hrísgrjónabænd-
ur ekki geta keppt við innflutta
framleiðslu. „Ef WTO heimilar
innflutning á hrísgrjónum og
öðrum matvælum munu allir
hinna 3,5 milljóna bænda í land-
inu deyja,“ hefur AP-fréttastofan
eftir einum þeirra. Suður-kór-
esku bændurnir hafa raunar látið
til sín taka áður á WTO-fundum.
Einn þeirra framdi sjálfsmorð á
fundi stofnunarinnar í Cancun
árið 2003 til að leggja áherslu á
málstað sinn.
Á WTO-fundinum var ætlunin
að reka endahnútinn á svonefnda
Doha-samningalotu en markmið
hennar er að jafna samkeppn-
isgrundvöll milliríkjaviðskipta
sem mest með því að afnema
tolla og niðurgreiðslur eins og
frekast er kostur. Lítill árangur
virðist hins vegar ætla að verða á
fundinum þar sem ríkustu þjóð-
ir heims eru tregar til að draga
úr stuðningi við landbúnað og
iðnað.
Þeir sem gagnrýna WTO segja
að öll stefna stofnunarinnar mót-
ist af hagsmunum stórfyrirtækja
og ríku landanna í heiminum.
Formælendur hennar benda á
móti á að þriðja heiminum sé
mestur hagur í sem frjálsustum
viðskiptum því þá geti ódýrar
vörur framleiddar þar keppt
við óhagkvæmari framleiðslu
Vesturlanda.
sveinng@frettablaðið.is
Handalögmál
á WTO-fundi
Í gær kom enn til átaka á milli lögreglu og mótmæl-
enda á fundi WTO í Hong Kong. Ertandi úða var
sprautað á fólkið en enginn var þó handtekinn.
HARÐVÍTUG ÁTÖK Í HONG KONG Rauðklæddir mótmælendur tókust á við svartklædda lögreglumenn í gær. Ertandi úði streymdi í stríðum straumum og urðu margir frá að hverfa til að láta þurrka óþverrann úr augum sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR32