Fréttablaðið - 15.12.2005, Page 41

Fréttablaðið - 15.12.2005, Page 41
THURSDAY 15. december 2005 A NEW FRAGRANCE FOR MEN© B U R B E R R Y L IM IT E D 2 0 0 4 W W W .B U R B E R R Y .C O M A4_britmen_homme_Euro.qxd 13/07/04 12:27 Page 1 Gisele Bündchen verður hið nýja andlit Louis Vuitton samkvæmt til- kynningu frá Marc Jacobs. Banda- ríski hönnuðurinn hefur einnig unnið með Scarlett Johansson, Jennifer Lopez, Chloe Sevigny, Christinu Ricci og nú síðast Umu Thurman en í þetta skiptið vildi hann fá ofurfyrirsætu. ,,Okkur langaði í tískuímynd fremur en stjörnu,“ sagði hann blaðamönn- um við opnun á nýrri búð í Hong Kong á fimmtudag. ,,Okkur finnst Gisele sannarlega góð ímynd og hún er þekkt um allan heim sem hún sjálf. Enn fremur voru fötin kynþokkafull og litrík og við töldum að hún myndi undirstrika þennan styrk og hita í fatalínunni.“ Þó Gisele hafi verið valin í þetta skiptið þýðir það ekki endalok fyrir stjörnurnar. ,,Ég vil vinna með öllum tegundum fólks,“ segir Marc, sem hefur nú þegar bókað Meg White úr hljómsveitinni The White Stripes fyrir myndatöku á nýrri línu. ■ Nýtt andlit Gisele Bündchen hefur tekið við af Umu Thurman sem and- lit Louis Vuitton-línunnar. Gisele við opnun Louis Vuitton verslunar. Frægasti gallabuxnafram- leiðandi heims, Levi‘s, hefur fengið leyfi frá Andy Warhol- stofnuninni fyrir framleiðslu á fötum tengdri listsköpun Warhols. Línan mun bera heitið Warhol Factory X Levi‘s og mun hún koma á markað næsta vor. Warhol var þekktur á sínum tíma fyrir klæðast nær eingöngu buxum frá Levi‘s. Gallabuxurnar í nýju lín- unni munu meðal annars skarta nokkrum af frægustu myndum Warhols og aðrar munu tengjast hinu fræga listverkstæði Warhols, The Silver Factory. Í línunni verð- ur einnig hægt að finna toppa, boli og jakka tengda verkum Warhols. Vörur í Warhol Factory X Levi‘s línunni verða flest allar vel yfir meðalverði Levi‘s í Bandaríkjun- um en gallabuxurnar munu kosta frá 190 til 300 dollara sem er í íslenskum krónum um 12 til 19 þúsund. Warhol Factory X Levi‘s línan kemur á markað eins og áður segir um vorið 2006 og verður hún til sölu í nokkrum vel völdum Levi‘s verslunum í Bandaríkjunum og jafnvel víðar. Andy Warhol föt frá Levi‘s Látni ofurtöffarinn, Andy Warhol, lætur að sér kveða í tískuheiminum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.