Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 41
THURSDAY 15. december 2005
A NEW FRAGRANCE FOR MEN©
B
U
R
B
E
R
R
Y
L
IM
IT
E
D
2
0
0
4
W
W
W
.B
U
R
B
E
R
R
Y
.C
O
M
A4_britmen_homme_Euro.qxd 13/07/04 12:27 Page 1
Gisele Bündchen verður hið nýja
andlit Louis Vuitton samkvæmt til-
kynningu frá Marc Jacobs. Banda-
ríski hönnuðurinn hefur einnig
unnið með Scarlett Johansson,
Jennifer Lopez, Chloe Sevigny,
Christinu Ricci og nú síðast Umu
Thurman en í þetta skiptið vildi
hann fá ofurfyrirsætu. ,,Okkur
langaði í tískuímynd fremur en
stjörnu,“ sagði hann blaðamönn-
um við opnun á nýrri búð í Hong
Kong á fimmtudag. ,,Okkur finnst
Gisele sannarlega góð ímynd og
hún er þekkt um allan heim sem
hún sjálf. Enn fremur voru fötin
kynþokkafull og litrík og við
töldum að hún myndi undirstrika
þennan styrk og hita í fatalínunni.“
Þó Gisele hafi verið valin í þetta
skiptið þýðir það ekki endalok
fyrir stjörnurnar. ,,Ég vil vinna
með öllum tegundum fólks,“ segir
Marc, sem hefur nú þegar bókað
Meg White úr hljómsveitinni The
White Stripes fyrir myndatöku á
nýrri línu. ■
Nýtt andlit
Gisele Bündchen hefur tekið
við af Umu Thurman sem and-
lit Louis Vuitton-línunnar.
Gisele við opnun Louis Vuitton verslunar.
Frægasti gallabuxnafram-
leiðandi heims, Levi‘s, hefur
fengið leyfi frá Andy Warhol-
stofnuninni fyrir framleiðslu
á fötum tengdri listsköpun
Warhols.
Línan mun bera heitið Warhol
Factory X Levi‘s og mun hún
koma á markað næsta vor. Warhol
var þekktur á sínum tíma fyrir
klæðast nær eingöngu buxum frá
Levi‘s. Gallabuxurnar í nýju lín-
unni munu meðal annars skarta
nokkrum af frægustu myndum
Warhols og aðrar munu tengjast
hinu fræga listverkstæði Warhols,
The Silver Factory. Í línunni verð-
ur einnig hægt að finna toppa, boli
og jakka tengda verkum Warhols.
Vörur í Warhol Factory X Levi‘s
línunni verða flest allar vel yfir
meðalverði Levi‘s í Bandaríkjun-
um en gallabuxurnar munu kosta
frá 190 til 300 dollara sem er í
íslenskum krónum um 12 til 19
þúsund.
Warhol Factory X Levi‘s línan
kemur á markað eins og áður segir
um vorið 2006 og verður hún til
sölu í nokkrum vel völdum Levi‘s
verslunum í Bandaríkjunum og
jafnvel víðar.
Andy
Warhol föt
frá Levi‘s
Látni ofurtöffarinn, Andy Warhol, lætur að
sér kveða í tískuheiminum.