Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 50
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR14
Laugaveg 53, s. 552 3737 • Opið til 22 alla daga til jóla.
Jólaföt
Jólagjafir
Afmælisgjafir
Sængurgjafir
Pöntunarsími: 554-6999
w
w
w
.ju
m
b
o
.is
Ótrúlegar 20 manna brauðtertur. Við bjóðum upp
á þrjár ljúffengar tegundir, roastbeef, rækjur og skinku.
Diza
Ingólfsstræti 6 • www.diza.is
opið 11-18 virka daga • 12-16 laugardaga
Ekki bara efni,
garn og náttföt........
....líka bækur!
Jólatrésala Flugbjörgunar-
sveitar Reykjavíkur hófst í
vikunni. Salan fór vel af stað
og greinilegt að fólk ætlar sér
að vera snemma á ferðinni í
trjáakaupum í ár.
Jónas Guðmundsson hjá Flug-
björgunarsveitinni segir að salan
þessa fyrstu daga hafi verið
nokkuð meiri en þeir áttu von á.
„Fyrstu dagarnir eru yfirleitt
rólegir en við seldum nokkra tugi
trjáa strax fyrsta daginn,“ segir
Jónas. Flugbjörgunarsveitin er
með til sölu íslensku jólatrén,
bæði rauðgreni og furu og svo
danskan normannsþin og segir
Jónas trén vera sérstaklega falleg
í ár.
Ágóðinn af jólatrésölunni fer í
að styrkja starfsemi sveitarinnar
svo að hún geti sinnt sínu hlut-
verki, en Flugbjörgunarsveitin
lifir allt árið á bæði jóla- og flug-
eldasölunni sinni. „Við tökum ekki
þátt í verðslagnum, við leggjum
meira upp úr því að fólk styrki
starfsemina okkar,“ segir Jónas
sem er bæði vænn og grænn og
hlakkar til að finna jólatrjánum
sínum heimili um jólin.
Græn og fögur
Flugbjörgunarsveit
Jónas Guðmundsson hjá Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur í grænum faðmi fagurra trjáa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kertasníkir Leppalúðason, nýskipaður
ritstjóri Jólasveinatíðinda, bíður spenntur
eftir því að fá að skrifa góðu börnunum
bréf.
Þá eru jólasveinarnir búnir
að læra á tölvur og opnuðu
meira að segja heima-
síðu. Svona eru þeir klárir,
karlarnir. Jólasveinarnir
eru byrjaðir að blogga og
bjóðast til að senda þægu
börnunum bréf.
Jólasveinarnir ákváðu á sínum
árlega undirbúningsfundi að
opna heimasíðu sem þeir gáfu
nafnið www.sveinki.is. Undir
dálknum jólasveinatíðindum
má lesa um hvernig jólaundir-
búningurinn gengur og hvað er
að gerast hjá sveinunum fram
til jóla. Ákveðið var að Kerta-
sníkir yrði gerður að ritstjóra
þar sem hann fer síðastur til
byggða. Kertasníkir sér einnig
um að halda utan um bréfin
sem jólasveinarnir fá og einnig
er hægt að panta bréf frá uppá-
haldsjólasveini barnanna sem
Kertasníkir sér um að koma til
skila. Valið er á milli fjögurra
bréfsefna, skrifuð inn falleg
lýsingarorð um barnið sem á að
fá bréfið og svo sér Kertasníkir
um afganginn. Falleg gjöf sem
gleður bæði smáa og stóra.
Bréf frá jóla-
sveininum