Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 52

Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 52
[ ]getur auðveldlega valdið veikindum hjá fólki ef það fer ekki varlega. Það er betra að reyna að taka það sæmilega rólega fyrir jólin svo þau verði ekki haldin í rúminu.Jólastressið Nokkrir athafnasamir Íslend- ingar hyggjast reisa heilsuþorp á Spáni. Þar á ekki að djamma og djúsa diskótekunum á held- ur verður heilbrigður lífsstíll í fyrirrúmi. Trausti Valdimarsson læknir ætlar að taka þátt í uppbyggingu heilsu- þorpsins af einskærum áhuga. Hann hefur unnið á heilsuhælinu í Hveragerði og segir meining- una að byggja upp eitthvað svipað á Spáni, kannski þó fyrir aðeins yngra og hressara fólk. „Þetta verður heilsueflandi og uppbyggj- andi starfsemi,“ segir hann og lýsir henni nánar. „Þarna getur fólk bæði verið í fríi í fallegu umhverfi og góðu loftslagi en samtímis verið að gera eitthvað fyrir heilsuna svo sem fara í göngutúra, leikfimi, sund og jóga.“ Trausti segir fyrirhugað að fólk geti farið í þolpróf og almenna skoðun á líkamsástandi þegar það komi og síðan verði reynt að laga það sem hægt er með góðu móti. Einnig verði hugsanlega gefinn kostur á námskeiðum, til dæmis í spænsku og öðrum tungumálum, heimspeki, sálfræði eða hverju sem er. „Annars er þetta allt á hugmyndastigi ennþá,“ bætir hann við. „Ég sé fyrir mér bæði and- lega og líkamlega endurhæfingu, góðan mat og hóflega skammta af víni. Þetta verður ljúft líf og holl- ustan í hávegum höfð.“ Þorpið á að rísa í fjallahéraði á suðausturhluta Spánar, í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Miðjarðarhafinu. Byrjað verð- ur með um 200 íbúðir í heilsuþorp- inu og þar gefst fleirum kostur á að dvelja en Íslendingum að sögn Trausta. Í nágrenni er þorp sem heitir Moratalla og allt um kring eru náttúruverndarsvæði með fjölbreyttum gönguleiðum. „Bæj- arstjórinn í Moratalla er læknir og hann er mjög hrifinn af hugmynd- um okkar um heilsuþorpið,“ segir Trausti. En hvenær þarf að panta? „Þetta verður tilbúið í fyrsta lagi eftir eitt og hálft ár,“ segir hann að endingu og hlakkar greinilega til að takast á við verkefnin þar syðra. gun@frettabladid.is Trausti er magalæknir og ætlar að sjá til þess að maturinn í heilsuþorpinu verði hollur og góður. Heilbrigður lífsstíll í heilsuþorpinu á Spáni Þorpið verður í um 400 metra hæð yfir sjávarmáli. Margir hafa það fyrir sið að setja nokkra dropa af ólífuolíu í baðið til að mýkja hörundið og létta lund enda hefur fólk mikla trú á jákvæð- um áhrifum ólífuolíunnar. Nú eru Olivia snyrtivörurnar frá gríska framleiðandanum Papouts- anis komnar í verslanir Hagkaupa í Smáralind. Olivia snyrtivörurnar eru allar unnar úr hreinni ólífuolíu og eru ætlaðar til næringar, lækninga og ummönnun líkamans. Vörurnar hafa reynst vel fyrir exem og pshor- iasis sjúklinga og henta líka öllum þeim sem hafa ýmis húðvandamál, eru með viðkvæma húð og geta ekki notað hvaða snyrtivörur sem er. Í Olivia línunni má fá fljótandi handsápur, baðolíu, húðkrem og handáburð. Einnig er hægt að fá tvær gerðir af litlum sápum, báðar unnar úr ólífuolíu en önnur er einnig með Aloa Vera. Sápurnar má nota á allan líkamann og í hárið og virka vel gegn flösu. Ólífuolían í snyrtivörunum inniheldur mikilvægar fitusýrur og vítamín sem eru nauðsynleg húðinni og vernda hana enda er ólífuolían fullkomin afurð fyrir umönnun líkama og hárs. Olivia vörurnar eru unnar úr hreinni ólífuolíu og henta vel fyrir þá sem hafa viðkvæma húð. Ólífan til bjargar ÓLÍFUOLÍAN HEFUR VERIÐ NOTUÐ TIL NÆRINGAR OG LÆKNINGAR Í ÞÚSUNDIR ÁRA. NÚ ERU KOMNAR Á MARKAÐ SNYRTIVÖRUR SEM ERU UNNAR ÚR HREINNI ÓLÍFUOLÍU OG GERA KRAFTAVERK FYRIR BÆÐI HÚÐ OG HÁR. 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.