Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 64
 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR40 Baugur og Oddaflug sneiða hjá yfirtöku með því að selja tíu prósent til Landsbankans. Málinu lokið af hálfu yfirtöku- nefndar með sölu bréf- anna. Tveir stærstu eigendurnir í FL Group, Oddaflug og Baugur Group, hafa selt samanlagt um tíu prósent hlutafjár í félaginu eftir að Yfirtökunefnd komst að þeirri niðurstöðu að Baugi Group væri skylt að gera yfirtökutilboð til annarra hluthafa í FL Group. Litið var svo á að Oddaflug og Baug hefðu gert með sér hluthafasam- komulag um stjórnun FL Group sem leiddi til yfirtökuskyldu. Yfirtökunefnd lítur svo á að með sölu bréfanna sé yfirtöku- skylda ekki lengur fyrir hendi. Í kjölfar breytinga sem urðu á eignarhaldi og stjórn félagsins eftir hlutafjárútboð, sem fram fór um miðjan nóvember, fór samanlagður eignarhlutur Odda- flugs, eignarhaldsfélags í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, og Baugs upp í 49,68 prósent. Yfirtökunefnd komst að þeirri niðurstöðu að samstarf þessara aðila, ásamt öðrum stór- um hluthöfum, við hlutafjár- aukninguna hefði verið náið þar sem þeir skiptu með sér 28 millj- örðum króna af um 44 milljörð- um sem í boði voru. Í stjórn FL Group á þessum tíma hafi verið tveir fulltrúar frá Baugi ásamt Hannesi, sem þá var stjórnarfor- maður félagsins. Því hafi átt að líta á hlut félaganna sem einn. Þá taldi nefndin að eignarhlut- ur Oddaflugs og Baugs að loknu útboði hefði verið það mikill að félögin hefðu getað tilnefnt eða sett af meirihluta stjórnar. Þar sem Baugur jók hlut sinn í fyrrgreindu útboði hvíli til- boðsskylda á honum, jafnvel þótt Oddaflug hafi átt stærri hlut í FL Group eða 25 prósent. Baugur og Oddaflug hafa brugðist við þessari niðurstöðu Yfirtökunefndar með því að selja hvort um sig fimm prósenta eign- arhlut í FL Group til Landsbank- ans þannig að samanlagður hlut- ur stærstu eigenda fer undir 40 prósent. Þetta er í annað skiptið á árinu sem Yfirtökunefnd kannar hvort yfirtökuskylda hafi myndast í FL Group. Fyrr á árinu komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Oddaflugi væri ekki skylt að gera yfirtökutil- boð eftir að miklar eignabreyting- ar áttu sér stað í FL Group um mitt ár. eggert@frettabladid.is Baugur var yfirtöku- skyldur í FL Group TÍU STÆRSTU HLUTHAFARNIR Í FL GROUP * Oddaflug ehf 19,8% Baugur Group 19,2% Landsbankinn 11,7% Íslandsbanki 9,3% Arion safnreikningur 8,2% Materia Invest ehf 7,0% Kaupþing banki hf 2,8% Straumur - Burðarás 2,5% Gildi -lífeyrissjóður 1,1% Saxbygg ehf 1,1% * Án framvirkra samninga „Niðurstaðan kom okkur á óvart,“ segir Skarphéðinn Berg Steinars- son, stjórnarformaður FL Group og fulltrúi Baugs í stjórninni, vegna álits Yfirtökunefndar að Baugi hafi verið skylt að leggja fram yfirtökutilboð í FL Group. Hann segir að Baugur hafi fengið álitið í hendur í fyrradag og brugðist við því með að selja hluta af eignarhlut sínum í FL Group. Hann lítur svo á að málið sé algjörlega úr sögunni og hefur ekki ástæðu til að ætla að aðrar eftirlitsstofnanir á fjármálamark- aði takið málið til sín. - eþa Niðurstaðan kom Baugi á óvart SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON Lítur á að málið sé úr sögunni með sölu á hlut í FL Group til Landsbankans. HÖFÐU MEÐ SÉR SAMSTARF Yfirtökunefnd telur að samstarf Baugs og Oddaflugs hafi verið með þeim hætti að eignarhlutur félganna fór yfir yfirtökumarkið. Félögin hafa brugð- ist við álitinu með því að selja tíu prósent í FL Group. Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrver- andi forstjóri FL Group, hefur verið ráðin forstjóri Promens. Tekur hún við því starfi af föður sínum, Geir A. Gunn- laugssyni, sem verður starf- andi stjórnar- formaður. Ragnhildur hætti skyndi- lega hjá FL Group í októ- ber og við starfi hennar tók Hannes Smárason. Promens er í eigu Atorku og framleiðir vörur úr plasti. Félagið veltir um tíu milljörðum króna. Til Promens RAGNHILDUR GEIRS- DÓTTIR, FORSTJÓRI FL GROUP Bæði Baugur Group og Odda- flug hafa gert afleiðusamninga við Landsbankann vegna þeirra hluta sem voru seldir til bankans til að bregðast við áliti Yfirtöku- nefndar. Hvort félag seldi fimm prósent. Samkvæmt afleiðusamn- ingunum bera Baugur Group og Oddaflug fjárhagslega áhættu og njóta fjárhagslegs ávinnings af gengi umræddra hlutabréfa í FL Group en hafa ekki atkvæðis- rétt af umræddum bréfum. „Við tökum áhættu og ávinning af þessum hlut en atkvæðisréttinn förum við ekki með,“ segir Skarp- héðinn Berg Steinarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Baugi. Það eru því seljendur bréfanna sem njóta góðs af hækkun þeirra en taka á sig skellinn ef gengið lækkar. Er þetta málamyndagern- ingur? „Nei, alls ekki. Þetta er fyrirkomulag sem tekur á þessu ástandi sem Yfirtökunefndin hafði talið að væri til staðar og breytir því ástandi sem lýst er í álitinu,“ segir hann ennfremur. - eþa Eiga ekki bréfin en taka alla áhættuna Hvað gerir rafvirkinn? Milljón dollara spurningin þessa dagana hljóðar víst svona: Hvað gerir rafvirkinn? Rafvirkinn er viðurnefn- ið á Þórði Má Jóhannessyni og dregið af því að hann er forstjóri Straums. Baugur og Karl Wernersson eru komnir í eina sæng í hluthafahópi Íslandsbanka og nú er spurningin hvað Straumur gerir við sinn hlut. Nafn Ólafs Ólafssonar, stærsta eiganda Kers, SÍF og Samskipa, heyrist oftast nefnt þessa dagana. Þá er gert ráð fyrir að Straumur fái í staðinn bréfin sem Ólafur ræður yfir í KB banka. Straumur myndi þó ekki með því ná undir- tökum í þeim banka þar sem fyrir er Exista með yfir fimmtungshlut. Hins vegar gæti Straumur átt í framtíðinni auðvelt með að selja þann hlut ef vel tekst til að kynna KB banka fyrir erlendum fjárfestum. Samkeppnisaðili verðlaunar Jón Ásgeir Jóhannesson var kjörinn viðskiptamað- ur ársins af Scanorama, sem er tímarit SAS flug- félagsins og má lesa um borð í vélum félagsins. Þar er greint frá því að félag Jóns Ásgeirs, Baugur, selji matvöru, fatnað og leikföng í Bretlandi og félagið hafi nýverið haldið innreið sína í Danmörku. Lauslega er sagt frá kærumáli á hendur honum og sagt að málinu hafi verið vísað frá. Ekki er minnst á málið að öðru leyti. Hvergi er heldur minnst á það að Baugur er orðinn stór eigandi að helsta samkeppnisaðila SAS á Norður- löndunum, Sterling, í gegnum eignarhlut Baugs í FL Group. Peningaskápurinn... Jón Ásgeir Jóhannesson og Karl Wernersson hafa lagt hlutafé sem þeir ráða yfir í Íslandsbanka inn í sérstakt félag. „Við höfum áhuga á að styrkja aðkomu okkar að Íslandsbanka og í þeim tilgangi fengum við Baug til liðs við okkur í það verkefni,“ segir Karl Wernersson, stór hluthafi og stjórnarmaður í Íslandsbanka. Milestone, sem Karl og systkini hans eiga, leggur allt hlutafé sitt í Íslandsbanka inn í sérstakt félag sem heitir Þáttur ehf. Jafnframt leggja systkinin hluti sína í trygg- ingafélaginu Sjóvá, samtals 66 pró- sent, inn í sama félag. Baugur legg- ur sitt hlutafé í bankanum einnig inn í Þátt, eða rúm 1,5 prósent, ásamt því að leggja fram reiðufé. Eftir þessi viðskipti ræður Þátt- ur ehf. yfir tæplega tuttugu pró- sentum atkvæða í Íslandsbanka. Milestone-fjölskyldan ræður yfir 80 prósentum í Þætti en Baugur 20 prósentum. Munu því Karl Wern- ersson, stjórnarformaður Þáttar, og Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, vinna sameiginlega að hagsmunum félagsins. Aðspurð- ur segir Karl þetta gert með þessum hætti því Milestone sinni öðrum verkefnum en að eiga hluti í Sjóvá og Íslandsbanka. Baugur hafi ekki ætlað að eiga samstarf við þau um þá hluti. Því varð til samstarf í kringum Þátt. FL Group ræður yfir um 6,7 prósentum hlutafjár í Íslands- banka. Þekkt er samstarf Hannes- ar Smárasonar, forstjóra FL Group, og Jóns Ásgeirs. Einar Sveins- son, stjórnarformaður bankans, hefur haft sömu áherslur í rekstri Íslandsbanka og Karl Wernersson. Séu hlutir FL Group og félags Ein- ars taldir með hlutum Þáttar ræður þessi hópur yfir um 30 prósentum atkvæða í Íslandsbanka. Í hluthafaskrá er Straumur fjárfestingabanki skráður fyrir 27,5 prósent hlutafjár. Ekki náðist í Þór Má Jóhannesson, forstjóra Straums, í gær til að spyrja hann út í samstarf stóru hluthafanna. Styrkja stjórn sína með samstarfi Tölur miðast við 14. des. kl. 14:55 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.349 +0,81% Fjöldi viðskipta: 270 Velta:18.303 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 49,90 -0,80% ... Bakkavör 52,00 +0,60% ... FL Group 17,60 +0,60% ... Flaga 4,99 +0,80% ... HB Grandi 9,50 +0,00% ... Íslandsbanki 17,30 +0,00% ... Jarð- boranir 24,20 -1,20% ... KB banki 695,00 +1,90% ... Kögun 60,60 +1,70% ... Landsbankinn 24,50 +0,00% ... Marel 64,90 +1,10% ... SÍF 4,17 -0,20% ... Straumur-Burðarás 15,70 +0,60% ... Össur 117,50 +0,40% MESTA HÆKKUN KB banki +1,91% Kögun +1,68% Marel +1,09% MESTA LÆKKUN Jarðboranir -1,23% Actavis -0,80% SÍF -0,24%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.