Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 76
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR52
ÚTSALA ÚTSALA
50 – 70 % AFSLÁTTUR
Meiri verðlækkun
Rúllukragapeysa 6.000.- 2.900.-
Marglit peysa 7.200.- 2.900.-
Jakkapeysa 6.200.- 2.900.-
Flís-jakkapeysa 5.300.- 1.900.-
Blúndutoppur m/rós 4.000.- 1.900.-
Dömuskyrta 4.900.- 1.900.-
Ullarblaser 6.600.- 2.900.-
Gallajakki 5.300.- 2.500.-
Úlpa m/hettu og skinni 5.800.- 2.900.-
Mokkajakki 10.800.- 4.900.-
Pelsjakki 7.900.- 3.900.-
Kjóll m/perlum 7.300.- 2.900.-
Gallapils 4.800.- 1.900.-
Teinóttar buxur 3.600.- 1.800.-
Kvartbuxur 4.700.- 1.900.-
Gallabuxur 5.400.- 2.700.-
Leðurstígvél 15.200.- 4.900.-
Silfur sandalar 5.400.- 1.900.-
Einnig fantaður á kr. 500.- og kr. 990.-
Og margt margt fleira
Síðumúla 13 • 108 Reykjavík • Sími 568-2870
Dæmi um verð. Áður. Núna.
Opið virka daga 10:00 – 18:00
og Laugardaga 10:00 – 16:00
> Ekki missa af...
... Tim Burton‘s Corpse Bride. Stórkost-
leg brúðuskemmtun með magnaðri
tónlist Dannys Elfman. Stórleikararnir
Emily Watson, Helena Bonham-Cart-
er og Johnny Depp fara með helstu
raddhlutverk. Myndin er stútfull af
skemmtilegum aukapersónum en
Corpse Bride er ein þeirra mynda sem
nýtur sín best á hvíta tjaldinu. Ágætt
að hafa þessa í bakhöndinni þegar
uppselt er á King Kong.
Michael: My father is
no different than any
powerful man, any
man with power, like a
president or senator.
Kay Adams: Do you know how naive you
sound, Michael? Presidents and senators
don‘t have men killed.
Michael: Oh. Who‘s being naive, Kay?
Michael Corleone útskýrir fyrir eiginkonu sinni Kay hvernig
kaupin á eyrinni ganga fyrir sig í fyrstu Guðföðurmyndinni.
Þegar Peter Jackson var tólf ára
fékk hann myndbandsupptökuvél
að gjöf frá foreldrum sínum. Hann
fór út í garð og reyndi að endur-
gera King Kong. Tilraunin mis-
tókst en Jackson gleymdi aldrei
þessu loðna skrímsli sem hafði látið
hann gera sín fyrstu mistök á sviði
kvikmynda. Fyrir níu árum hugð-
ist Jackson svo endurnýja vinskap
sinn við King Kong en þá datt inn á
borðið hjá honum Hringadrottins-
saga. Hann gat ekki ýtt því verk-
efni til hliðar enda einstakt tæki-
færi. Líkt og áður gleymdi Jackson
ekki górillunni sinni og þegar allt
æðið í kringum Föruneyti hrings-
ins var yfirstaðið fór Jackson í
megrun og kvikmyndaði loksins
æskudrauminn.
Útkoman er ótrúleg ef marka
má dóma erlendra miðla. Þeir mega
vart vatni halda yfir þessari endur-
gerð en hún var ekki ókeypis. Kvik-
myndin var 32 milljónum dýrari en
upphaflega var gert ráð fyrir. Jack-
son lét það ekki stöðva sig heldur
pungaði sjálfur út því sem upp á
vantaði. Universal-kvikmyndaver-
ið, sem á mestan heiðurinn af því að
myndin fór í framleiðslu, var held-
ur ekkert að kippa sér upp við auk-
inn kostnað enda eru forráðamenn
þess eru skýjunum yfir útkomunni.
Í stað þess að gera sömu mistök og
kvikmyndagerðarmennirnir sem
mynduðu Godzilla brenndu sig á
hélt Jackson sig við New York árið
1933. Væntanlega hefði ekki mikið
verið eftir af borginni ef nokkrar
Harrier-þotur og flugskeyti þeirra
hefðu reynt að tortíma górillunni.
Í stuttu máli er söguþráðurinn
á þá leið að kvikmyndaleikstjór-
inn Carl Denham fer með tökulið
sitt til Hauskúpueyjar ásamt leik-
skáldinu Jack Driscoll og leikkon-
unni Ann Darrow. Þar lenda þau í
klónum á frumbyggjum sem vilja
fórna Darrow. Kvikmyndaleik-
stjórinn telur sig auðvitað vera
lentan í gullnámu og kvikmyndar
allt sem fyrir augum ber. Þegar
loks tekst að bjarga leikkonunni
úr klóm ófreskjunnar er górillan
lokkuð í gildru og flutt í kynning-
arskyni til New York með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum. Það
eru Jack Black, Adrien Brody og
Naomi Watts sem leika aðalhlut-
verkin auk Andy Serkis sem ljáir
górillunni hreyfingar sínar. Þess
má geta að Peter Jackson fékk
nýverið Golden Globe-tilnefningu
fyrir bestu leikstjórn og James
Newton Howard fyrir bestu frum-
sömdu tónlistina.
Sarah Jessica Parker hreppti
óvænt Golden Globe-tilnefningu
fyrir leik sinn sem hin ofursnobb-
aða Meredith Morton í kvikmynd-
inni The Family Stone. Myndin
segir frá því þegar áðurnefnd
Morton kemur með verðandi eig-
inmanni sínum til jólaboðsins hjá
tengdafjölskyldu sinni. Sú fjöl-
skylda er frekar erfið í umgengni
og Morton fær ekkert sérstaklega
hlýjar móttökur. Hún bregður því
á það ráð að fá systur sína, hina
elskulegu Julie, til að koma sér
til aðstoðar. Áður en hún veit af
hefur þó allt farið fjandans til og
jólahaldið það árið er í stórkost-
legri hættu. Auk Parkers fara þau
Diane Keaton, Claire Danes, Craig
T. Nelson, Luke Wilson og Dermot
Mulroney með aðalhlutverkin auk
nýstirnisins Rachel McAdams.
freyrgigja@frettabladid.is
KING KONG OG ANN DARROW Myndarinnar um górilluna og leikkonuna hefur verið beðið
með mikilli óþreyju en Peter Jackson hafði ætlað að gera hana fyrir níu árum.
King Kong og fjölskyldan Stone
Andy Serkis telst varla venjulegur leikari. Þó hann eigi
vissulega myndir á borð við 13 going 30 og 24 hour
Party People þá er hann þekktastur fyrir magnaða
túlkun á Gollum og Smeagal í Hringadrottinssögu. Leik-
arinn fékk frábæra dóma fyrir leik sinn en gengið var
framhjá honum þegar tilnefnt var til óskarsverðlauna
þau þrjú ár sem föruneytið var á ferðinni. Kvikmynda-
akademían taldi óhæft að töluvgerð persóna fengi
tilnefningu. Reyndar er þetta í annað skiptið sem
slíkt gerist því mörgum fannst Robin Williams eiga
skilið tilnefningu fyrir „leik“ sinn sem andinn í Disney
teiknimyndinni Aladdin árið 1993. Það verður þó að
setja spurningamerki við dómgreind akademíunnar
í tilviki Serkis því Peter Jackson taldi nauðsynlegt að
Gollum væri leikin af manneskju. „Það er ekki hægt að
hafa tölvuteiknaða persónu með tölvurödd af því að
þá nærðu engum persónulegum tengslum við hana,“
sagði leikstjórinn. Hlutverkið útheimti mikla vinnu fyrir
Serkis en hann þurfti allan tímann að vera í búningi
með punktum sem tölvur gátu notað til að nema
hreyfingar hans. Röddin er ekki síður eftirminnileg en
Serkis sagðist hafa notað
köttinn sinn þegar hann
hóstar upp hárbolta sem
fyrirmynd hennar. Serkis
var meðal þeirra fyrstu
sem komu til liðs við Jack-
son og var sá allra síðasti
sem yfirgaf tökustaðinn.
Það þarf síðan varla
að hafa fleiri orð um
velgengni Hringadrott-
inssögu. Peter Jackson
var ekki í vafa um hver
ætti að verða „skærasta“
stjarnan þetta árið enda ætlaði að hann að beita sömu
tækni við gerð King Kong. Serkis var búinn að ná full-
komnum tökum á henni og því í raun bara formsatriði
að fá hann í liðið. Hvort leikarinn festist sem tölvugerð
persóna verður að koma í ljós en meðal verkefna sem
eru á dagskrá hjá honum er mynd með Mickey Rourke
og Ewan McGregor.
Óþekkt stórstjarna
Þrátt fyrir að Brokeback Mount-
ain hafi hlotið sjö tilnefningar er
árangur leikarans George Cloon-
ey ekki síður merkilegur. Tvær
kvikmyndir sem hann kemur
nálægt eru tilnefndar til sex verð-
launa en þetta eru myndirnar Syr-
iana, sem Clooney bæði leikur í
og framleiðir og svo Good Night
and Good Luck en þar er leikarinn
allt í öllu; leikstýrir, skrifar, fram-
leiðir og leikur eitt aðalhlutverk-
anna. „Ef einhver hefði sagt við
mig í janúar, þegar ég var að ljúka
vinnu við Syriana og byrja á Good
Night, að þessar myndir ættu eftir
að njóta slíkrar velgengni hefði ég
hlegið,“ sagði Clooney við blaða-
menn þegar tilnefningarnar höfðu
verið tilkynnntar á þriðjudaginn.
Lengi leit ekki út fyrir að
Clooney tækist að slá í gegn en
eftir að hafa landað hlutverki
Dougs Ross á bráðavakt Michaels
Crichton hefur leið hans nánast
eingöngu legið upp á við. Eftir
þátttökuna í Batman & Robin,
sem flestir gagnrýnendur hömuð-
ust við að tæta í sig og áhorfendur
sniðgengu, ákvað Clooney að nú
væri komið nóg af froðusnakki.
Hann kynntist Steven Soderbergh
og þeir félagar tóku upp náið
samstarf sem hefur skilað sér í
myndum á borð við Out of Sight,
Ocean‘s myndunum tveimur auk
þess sem þeir hafa verið duglegir
við að aðstoða unga leikstjóra.
Í stað þess að krefjast milljóna
dollara í laun hefur Clooney farið
þveröfuga leið. Hann hikar ekki
við að setja peninga sína í óhefð-
bundnar og pólitískar myndir.
Syriana fjallar til að mynda um
viðskiptin í olíuheiminum og Good
Night er um heim fréttamennsk-
unnar í kringum sjötta áratuginn.
Hún stendur Clooney mjög nærri
því faðir hans, Nick, var þulur á
þessum tíma og var sá fyrsti sem
sá myndina. „Hann sagði að við
hefðum náð umhverfi fréttastof-
unnar mjög vel,“ sagði Clooney
er hann var spurður um hvernig
pabbanum hefði þótt myndin.
George Clooney er nú kominn
aftur til starfa með Soderbergh
en saman ætla þeir að gera The
Good German sem gerist í seinni
heimstyrjöldinni.
-fgg
Clooney sigurvegari
GEORGE CLOONEY Hefur ríka ástæðu til að
brosa þessa dagana enda eru tvær kvik-
myndir sem hann kemur nálægt tilnefndar
til sex Golden Globe-verðlauna.
FRUMSÝNDAR Í VIKUNNI
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM)
The Family Stone
Internet Movie Database 5,8 / 10
Metacritic.com 8,5 / 10
Rottentomatoes.com 75% / fersk
King Kong
Internet Movie Database 8,0 / 10
Metacritic.com 8,7 / 10
Rottentomatoes.com 86% / fersk
Það er komið að stóru stundinni. King Kong er loksins
kominn til landsins eftir langa bið og mikla spennu kvik-
myndaáhugamanna.
ANDY SERKIS Mætir hér til
frumsýningar King Kong í
New York. Hann verður að
teljast einhver skærasta
stjarna kvikmyndanna
þótt fáir viti deili á honum.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
bio@frettabladid.is