Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 79
FIMMTUDAGUR 15. desember 2005 55
VEITINGASTAÐURINN
EINAR BEN
Hlýlegur og
jólalegur
Stemningin: Það fer
ekki framhjá neinum
sem heimsækir veit-
ingastaðinn Einar Ben
að hin rómaða klassíska stemn-
ing er í hávegum höfð. Hinir fjöl-
mörgu salir veitingahússins gefa
möguleika á því að upplifa staðinn
aftur og aftur þar sem þeir eru svo
gjörólíkir. Blái salurinn minnir á
íslensku ræturnar með málverkum
af athafnamanninum Einari sem
prýða veggina auk annarra skreyt-
inga í salnum, svo sem uppstopp-
uðu hreindýri. Rauði salurinn gefur
þeim bláa lítið eftir þar sem bland-
að er saman fegurð og fágun sem
gerir það að verkum að maður vill
helst ekki mæta á svæðið nema í
sínu fínasta pússi. Aðrir salir stað-
arins eru minni en ekki síður glæsi-
legir og má sérstaklega nefna bar-
inn á efri hæðinni sem rúmar um
100 manns. Hann nýtur mikilla
vinsælda því það er gott að geta
tyllt sér eftir vel heppnaða máltíð
og fengið sér kaffi og koníak.
Matseðillinn: Matseðillinn er
nokkuð breytilegur eftir árstíðum .
Á haustin er villibráðin í algleymingi
og svo tekur jólamatseðillinn við
með tilheyrandi forréttum, aðal-
réttum og eftirréttum. Yfir sumar-
tímann fær léttleikinn að njóta sín
Einnig eru sérréttamatseðlar og
hópmatseðlar í boði. Meðal rétta
á sérréttamatseðlinum má nefna
kjúklingabringu með parmaskinku
og rósmarín-hvítvínssmjörsósu og
hreindýrasteik með rösti-kartöflu
og morel-sveppasósu.
Vinsælast: Fiskmetið er vinsæl-
ast, sérstaklega hjá útlendingunum
sem koma hingað til lands til þess
að fá góðan fisk. Villibráðin kemur
líka sterk inn, þá sérstaklega hrein-
dýrið sem er alltaf jafn vinsælt.
Réttur dagsins: Einar Ben býður
ekki upp á sérstaka rétti dagsins
en eins og áður segir eru þeir með
sérstakan sérréttamatseðil sem er
í gangi allan ársins hring. Vert er að
minnast á vínlista staðarins sem er
einkar glæsilegur. Þar er hægt að
fá margar frábærar víntegundir svo
sem Chateau-neuf du Pape 2000
og hið frábæra Chateau Lynch-
Bages Grand Cru 1999.
Sala á viskíinu skoska, Scottish
Leader, hefur aukist mest miðað
við önnur viskí undanfarin 3 ár í
vínbúðum hérlendis. Nemur aukn-
ingin 58% og er Scottish Leader
orðið næstmest selda skoska
viskíð hér á landi.
Scottish Leader viskí var fyrst
blandað af Ross Bros, fyrirtæki
sem seldi vistir og vín í hinum
fræga viskíbæ Dumbarton í Skot-
landi. Fyrirtækið var stofnað árið
1817 en byrjaði ekki að blanda
viskí fyrr en um 1860 og þótti
Scottish Leader bera höfuð og
herðar yfir annað blandað vískí
og náði strax miklum vinsældum.
Scottish Leader er framleitt hjá
Deanston Distillery, sem staðsett
er á bökkum Teith, hinnar krist-
altæru ár í Skotlandi.
Scottish Leader er til í nokkrum
aldursflokkum, allt að 25 ára. Hið
mjúka en ríka bragð hefur gert
Scottish Leader að einu þekktasta
og mest selda skoska viskíi í dag
og er það flutt út til yfir 40 þjóð-
landa, bæði mikilla viskílanda
á borð við Frakkland, Bretland
og Bandaríkin sem og fjarlægra
landa.
Scottish Leader hefur unnið til
margra alþjóðlegra verðlauna í
sínum flokki, ekki síst hefur það
verði áberandi í verðlaunaveiting-
um fyrir hagstæð kaup. Léttur
eikarkeimur einkennir það
og í bragði má greina ríkt
og sætt hunangsbragð með
mjúkri fyllingu og góðu
jafnvægi. Eftirbragðið er
langt og þurrt með góðu
eikarbragði.
Scottish Leader fæst í
fjölmörgum umbúðum í
vínbúðum, allt frá 350
ml hálfflöskum upp í
4,5 lítra risaflösku.
SCOTTISH LEADER:
Mikil aukning í vinsældum