Fréttablaðið - 15.12.2005, Page 80
HANNES SMÁRASON:
YOGA NÁMSKEIÐ OG SLÖKUNADISKUR
Viðskiptamaðurinn knái hefur farið ham-
förum í viðskiptalífi landsins á þessu ári.
Verið eins og stormsveipur eða fellibylur
eftir því hvernig litið er á málið. Vinir og
vandamenn vilja hins vegar að hann fái
smá ró og næði á hátíð ljóss og friðar.
Þess vegna hafa þeir fjárfest í sérstök-
um jóga-tíma hjá Guðjóni Bergman sem
aðstoðar Hannes
við að komast í
nána snertingu við
alheimskraftinn
og sjálfið í sér. Í
kaupbæti fylgir
Töfrandi andrúms-
loft eftir Friðrik
Karlsson en sá
diskur á víst að
hjálpa til við slökun
og „stuðlar að jafn-
vægi og hugarró í
hraða nútímans,“
svo vitnað sé til
leiðbeininganna.
VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR:
FÆR ÁHORFENDUR FRÁ INNLITI/
ÚTLITI
Vala Matt færði sig yfir á
Sirkus eftir að hafa gert
Innlit/útlit að einum vin-
sælasta þætti landsins á
Skjá einum. Veggfóður
hefur hins vegar ekki
gengið sem skyldi ef
marka má áhorfstölur en
hann lenti langt á eftir
samkeppnisaðilanum
á Skjá einum í síðustu
könnun. Það er þó ekki
laust við að fyrrver-
andi samherjar Völu
finni til með henni og
þeir hafa því stað-
ið fyrir söfnun og
náð að nurla saman
til að gefa henni
áhorfendur enda
veitir víst ekki af...
UNNUR BIRNA VILHJÁLMSDÓTTIR:
ÁRITUÐ ÆVISAGA LINDU PÉ
Unnur Birna verður á ferð og flugi allt
næsta ár. Þvælst verður með hana til
hundrað borga þar sem margvíslegum
góðgerðarstörfum verður sinnt. Þá er
ekki úr vegi að vera vel græjuð. Litla
gjöfin í skóinn verður Blackberry-sími
sem getur tekið á móti tölvupósti og
gerir vinsælasta bloggara landsins kleift að
halda þeim titli við. Mikilvægust verður þó
árituð ævisaga Lindu Pé. Það er bók sem verð-
ur ávallt með í för á hinum fjölmörgu hótel-
um sem fegurðardrottningin okkar þarf nú
að gista. Unnur Birna getur lært mikið af
þessari bók enda er margt sem ber að var-
ast úti í hinum stóra og hættulega heimi en
freistingarnar eru margar fyrir jafn unga
og saklausa stúlku og Unnur Birna er.
Fræga, fína og valdamikla fólkið fær líka pakka undir tréð hjá sér á jól-unum. Það getur þó verið þrautin
þyngri að finna réttu gjöfina handa fólki
sem á kannski allt. Þá reynir fyrst á hug-
myndaflugið en eins og ávallt er það
hugurinn sem skiptir mestu máli.
Dýrar jólagjafir eru því ekki allt-
af lausnin heldur fleytir ímynd-
unaraflið okkur oft hálfa leið.
Sælla er að gefa...
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR: PÁFAGAUKUR, LEPPUR OG SJÓRÆNINGJAFÁNI
Björk okkar Guðmundsdóttir er einstök. Hún er einhver ríkasti listamað-
ur okkar tíma og því er eflaust erfitt að finna jólagjöf handa henni... og
þó. Björk tók nýlega pungapróf enda ætlar hún að sigla um höfin blá. Í
pakkanum hennar þetta árið verður því páfagaukur sem hún getur haft á
öxlinni, leppur fyrir augað og sjóræningjafáni sem blaktir við hún á úthöf-
unum. Sérstakur kennsludiskur frá Johnny Depp fylgir gjöfinni en þar
kennir hann áhorfendum hvernig þeir geta orðið sjóræningjar að hætti
Jacks Sparrow í Pirates of the Carribean.
DORRIT MOUSSAIEFF:
FÆR AÐGANG AÐ SAUMAKLÚBB
Forsetafrúin okkar er ein sú
glæsilegasta í heimi. Meira
hefur hins vegar borið á glingri
að undanförnu og er skemmst
að minnast lokaðra hátíðartón-
leika Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar þar sem barónessa mætti til
að heiðra „aðalinn“ með nær-
veru sinni. Dorrit þráir hins
vegar ekkert heitar en að kom-
ast á ný í kynni við almúgann
sem er henni svo hjartfólg-
inn og því fær hún í jólagjöf
boðskort í saumaklúbb úti á
Nesi. Þar fær hún eldskírn
í prjónaskap en hann ætti
ekki að vefjast fyrir Dorrit
þar sem hún las Njálu nán-
ast á fyrsta degi sínum hér á landi. Þar að auki verður henni gefin
uppskrift að ekta íslenskri jólaköku og kleinum. Það verður ilmur
úr eldhúsinu á Bessastöðum um jólin og húsfreyjan Dorrit mun
ráða þar ríkjum eftir þessa gjöf.
DAVÍÐ ODDSSON: FJÖGURRA MYNDDISKA-
SAFN MEÐ RÆÐUM STEINGRÍMS J. SIGFÚS-
SONAR
Davíð Oddsson hefur látið af störfum sem
stjórnmálamaður og sest að í Seðlabankan-
um. Þar er töluvert rólegra en á Alþingi og
stjórnarandstaðan er nánast ekkert að atast
í honum. Þó að í fljótu bragði virðist þetta
vera það besta í stöðunni gæti Davíð fljót-
lega farið að leiðast þófið og viljað komast í
hasar á ný. Nýir menn standa hins vegar við
stjórnvölinn og því verður Davíð bara að
láta sér nægja að horfa á úr fjarlægð. Auð-
vitað hafa velgjörðarmenn Davíðs áhyggj-
ur af því að hann fái enga útrás og hafa því
tekið saman allar bestu ræður Steingríms
J. Sigfússonar, ræðukóngs Alþingis. Um er
að ræða fjögurra diska safn með öllu því
besta sem þingmaðurinn hefur látið út úr
sér á ferli sínum. Stórgóð skemmtun fyrir
landsföðurinn fyrrverandi
sem nú getur látið sér
hlaupa kapp í kinn
hvenær sem er.
Aukasýning með fjölleikahópnum
The Shneedles verður haldin í Aust-
urbæjarbíói 28. janúar, daginn eftir
fyrri sýninguna.
Á sýningunni er blandað saman
fimleikum, látbragðsleik, trúðslát-
um og töfrabrögðum og þykir
útkoman engu lík. Sýningin bygg-
ir ekki á töluðu máli og því höfðar
hún til allra aldurshópa.
Nánast er uppselt á fyrri sýn-
inguna og því var ákveðið að efna
til annarrar sýningar. Miðasala á
aukasýninguna hefst í dag klukk-
an 10.00. Fer hún fram í verslunum
Skífunnar, BT á Akureyri og Sel-
fossi og á event.is.
Aukasýning með
The Shneedles
THE SHNEEDLES
Aukasýningin verður
haldin þann 28.
janúar.
Það er fátt auðveldara
en að láta jólaösina og
stressið sem fylgir henni
koma niður á líkamanum.
Hver kannast ekki við að
skrópa í ræktinni og hafa
engan tíma til að dúlla við
sig. Á álagstímum er þó
afar mikilvægt að gleyma
ekki búknum. Ef enginn
tími er í líkamsrækt eða
nuddtíma er um að gera að
gefa sér hálftíma á dag í að
slaka á heima hjá sér. Eitt
af því sem er alltaf jafn
gott er að bera á sig ilmandi
góð body-lotion fyrir svefn-
inn. Farðu í bað, reyndu
að tæma hugann og njóta
stundarinnar. Þegar upp úr
baðinu er komið skaltu taka
þér góðan tíma í að maka á
þig kremum og nudda þeim
vel inn í húðina. Þegar þú
ert búin að því er gott að
láta makann eða börnin bera
krem á bakið á þér.
Elizabeth Arden og Versace
eru með krem í stíl við ilm-
inn, Crystal Noir og Prov-
ocative Woman, sem skilja
eftir ljúffengan angan.
DÁSAMLEGUR ILMUR Ilmurinn Cryst-
al Noir frá Versace er einn söluhæsti
ilmurinn á Íslandi. Bodylotionið og
sturtusápan eru heldur ekki síðri
og hressa svo sannarlega upp á
dimman desember.
Mjúkur desemberbúkur
LÁTTU MAKANN NUDDA ÞIG upp
úr ilmandi og róandi kremum og
upplifðu sanna slökun.
FRÍSKLEGT Provocative woman bodyl-
otion frá Elizabeth Arden er sjúklega
frískandi og gott.
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR56
er komið út
Áskri f t : 515 5500 / www.frodi . is
NýttLíf
JÓL OG ÁRAMÓT
1
2
.
tb
l.
2
8
.
á
rg
.
2
0
0
5
V
e
rð
8
9
9
k
r.
m
/v
sk
SVAVA
á tímamótum
– glitrandi glamúr,
– sniðugar gjafir og
skreytingar
– girnilegur hátíðamatur
KONA
ÁRSINS
HÁTÍÐ Í BÆ
10 FYRRUM
KONUR ÁRSINS
Eins og þú hefur
aldrei séð þær!
2005
292síður
Aldrei stærra!
SVAVAá tímamótum
– glitrandi glamúr,
– sniðugar gjafir og
skreytingar
– girnilegur hátíðamatur
KONA
ÁRSINS
HÁTÍÐ Í BÆ
10 FYRRUM
KONUR ÁRSINS
Eins og þú hefur
aldrei séð þær!
2005
292síður
Aldrei stærra!
Nýtt Líf. augl.1-2 1.12.2005 15:28 Page 2