Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 82
Erfitt er að finna myndir með Richard
Pryor á videóleigum þessa dagana.
Pryor lést síðastliðinn laugardag, og
svo virðist sem margir hafi kosið að
minnast hans með því að skella sér út
á leigu. Þær tvær myndir sem voru
í boði á Laugarásvideó voru frá afar
mismunandi tímabilum.
Live and Smoking er uppistands-
mynd frá 1971, þar sem Pryor er
áberandi taugaveiklaður, og stendur
fyrir framan hvítan áhorfendahóp
sem ekki er á eitt sáttur, enda er fólk
að ganga út í gríð og erg. Pryor er
fyndinn til að byrja með en virðist
svo gefa húmorinn upp á bátinn og
einbeita sér að því að segja sögur
úr fátækrahverfum Bandaríkjanna,
ungur, reiður og afar hæfileikaríkur.
Hin myndin er Brewsters Millions
frá 1983. Hér er Pryor orðinn einhver
hæst launaði gamanleikari Banda-
ríkjanna. En svo virðist sem allur
metnaður sé horfinn, hann reynir
varla að vera fyndinn lengur. Og öll
þjóðfélagsádeila er á bak og burt.
Hér leikur hann mann sem erfir 30
milljónir dollara og þarf að eyða
þeim öllum til þess að fá enn stærri
arf. Að eyða og að græða var jú ein-
mitt 9. áratugurinn í hnotskurn, og
Pryor hefur hér lítið annað til mál-
anna að leggja en að segja að hafna-
bolti sé heiðarlegri en stjórnmál, og
hvetja fólk til að kjósa ekki. Pryor
hafði mikil áhrif á gamanleikara eins
og Eddie Murphy, Chris Rock og Ars-
enio Hall, en einnig Robin Williams
og David Letterman. En samt var
eins og Hollywood vissi aldrei hvað
hún átti að gera við hann.
Frá vændishúsinu á sviðið
Pryor ólst upp í hóruhúsi ömmu sinn-
ar í smábænum Peoria. Meðal kúnna
voru borgarstjórinn, og móðir hans,
sem hann hafði oft þurft að horfa á
stunda viðskipti sín, yfirgaf hann
þegar hann var 10 ára. Pryor skráði
sig í herinn 18 ára gamall og var þar
í tvö ár, en vann eftir það fyrir sér
með uppistandi. Í fyrstu var grín
hans meinlaust og áhorfendavænt í
anda Bills Cosby, en þegar hann stóð
í klúbbi í Vegas fyrir framan fullt
hús árið 1967 spurði hann í hljóð-
nemann: „Hvern fjandann er ég að
gera hér?“ og gekk út.
Upp frá þessu byrjaði hann að
nota blótsyrði óspart, sem hann
blandaði saman við beinskeyttar
þjóðfélagsádeilur um stöðu svartra í
Bandaríkjunum. Einnig átti ömurleg
æska hans eftir að birtast í gríninu,
svo sem þegar hann var misnotað-
ur af kúnnum móður sinnar. Árið
1974 gaf hann út gamanplötuna That
Nigger‘s Crazy, sem sópaði til sín
verðlaunum og seldist vel. Nú voru
Pryor allir vegir færir og Hollywood
beið. Hann hafði leikið píanóleikara
Diane Ross í Lady Sings the Blues, en
nú bættust við Car Wash, Which Way
Is Up og Greased Lightning, sem var
drama er fjallaði um fyrsta svarta
kappakstursmanninn. Einnig lék
hann aftur á móti Diönu Ross í The
Wiz, þar sem hann fór með hlutverk
galdrakarlsins í Oz. Hins vegar var
hætt við þáttaröðina Richard Pryor
Show, þar sem hann þótti of hneyksl-
andi og óútreiknanlegur. Hann hafði
einnig notað kókaín í stórum stíl allan
áratuginn og kvæntist sjö sinnum.
Verksmiðjumenn og ofurmenni
Áhugaverðust af myndum hans frá
8. áratugnum er þó líklega Blue
Collar, sem er leikstýrð af handrits-
höfundi Taxi Driver, Paul Schrader.
Þar leikur Pryor ásamt Harvey Keit-
el starfsmann í bílaverksmiðju sem
blandast inn í átök verkalýðshreyf-
ingar og yfirmanna, og hafa báðir
leikarar sjaldan verið betri. Einnig
lék hann aukahlutverk í Gene Wild-
er-myndinni Silver Streak. Myndin
sjálf væri ekki eftirminnileg ef ekki
væri fyrir sterka innkomu Pryors,
sem lyftir henni á annað plan þegar
hann og Wilder sleppa sér lausum.
Þeir léku seinna saman í myndinni
Stir Crazy, sem naut mikilla vin-
sælda árið 1980.
Sama ár kveikti Pryor í sér í
eiturlyfjavímu, og var í sex vikur
á spítala nær dauða en lífi. Þrem-
ur árum seinna var hann þó orðinn
vinsælli en nokkurn tímann fyrr,
fékk fjórar milljónir dollara fyrir
að leika í Superman III sem þá þótti
óheyrilega há upphæð, og skrifaði
undir 40 milljóna dollara samning
við Columbia-kvikmyndaverið.
Milljónir Pryors
En svo virtist sem Pryor hafði misst
metnaðinn. Myndir hans, eins og
Brewsters Millions, Critical Condit-
ion og Moving, urðu sífellt slakari.
„Hann er latur, tekur peninginn og
er alveg sama,“ sagði ein fyrrver-
andi eiginkvenna hans. Bestu mynd-
ir hans frá tímabilinu eru uppi-
standsmyndin Live At Sunset Strip
(1982), og hin sjálfsævisögulega Jo-
Jo Dancer Your Life Is Calling, sem
báðar fjölluðu um brunann mikla.
Árið 1986 greindist Pryor með sjúk-
dóminn MS. Þremur árum síðar lék
hann á móti aðdáanda sínum, Eddie
Murphy, í Harlem Nights, sem þótti
fremur misheppnuð.
Undir lok ferilsins gerði hann
tvær myndir með Gene Wilder. See
No Evil náði ekki fyrri hæðum en
Another You, sem var síðasta stóra
hlutverk hans, er fremur sorgleg
en fyndin, enda Pryor þá orðinn
áberandi veikur. Hann dró sig að
mestu leyti í hlé eftir þetta, og hans
síðasta hlutverk var í David Lynch-
myndinni Lost Highway frá 1997.
Hann lést í Encino, Kaliforníu, 65
ára að aldri. Eitt af hans síðustu
verkefnum var að framleiða mynd
um sjálfa sig, sem enn er væntan-
leg. Leikstjóri er Walter Hill, sá
sami og gerði Brewsters Millions,
en hinn óþekkti Caleb Kane fer
með aðalhlutverk.
WHICH WAY IS UP Pryor lék þrjú hlutverk í myndinni.
SVARTASTI MAÐURINN
Í HOLLYWOOD
EDDIE MURPHY Varð fyrir miklum áhrifum frá
Pryor og saman léku þeir í Harlem Nights.
um a›JÓL
G ALIÐ!
DVD SPILARI
BÍÓMIÐAR
GEISLAPLÖTUR
HEIMABÍÓ
JÓLAKONFEKT
UPPTÖKUVÉL
MYNDAVÉL
GSM SÍMAR
TÖLVUR
MP3 SPILARAR
BUZZ TÖLVULEIKUR
DVD MYNDIR
TÖLVULEIKIR
PS2 OG PSP TÖLVUR
Vinningar ver›a afhentir hjá BT Smáralind 19-23.desember milli kl 12-22. 99 kr/skeyti›. Me› flátttöku ertu kominn í SMS klúbb.
AÐALAVINNINGUR ER JÓLAPAKKI
HANDA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI!
MEDION 42" PLASMASÓJNVARP + MEDION V8 TÖLVA + 19" TFT TÖLVUSKJÁR + SONY
CYBERSHOT MYNDAVÉL+ PS2 TÖLVA + PANASONIC MINIDV + PANASONIC HEIMABÍÓ
OG 10 x DVD MYNDIR AF EIGIN VALI!
10. hver vinnur eitthva› af flessu hér:
MEDION V8 X2 tölvur • PANASONIC heimabíó • Denver DVD
spilarar • PANASONIC miniDV tökuvélat • Sony Stafrænar
myndavélar • GSM símar • Jólaís Kjörís • PSP tölva • Sony MP3
spilarar • Konfekt frá Nóa Síríus • PlayStation 2 tölvur
• Bíómi›ar fyrir tvo á The Family Stone • Fullt af geislaplötum
• CocaCola kippur • Fullt af DVD • Víking Malt kippur • Fullt af
tölvuleikjum • Frí ADSL áskrift hjá BTnet!
að verðmæ
ti
550.000,-
Sendu SMS skeyti› BT BTV á
númeri› 1900 og flú gætir unni›!
Vi› sendum flér spurningu tengda BT og jólunum sem flú
svarar me› SMS skeyti BT A, B e›a C á númeri› 1900.
vinnur!
JÓLAÍS
KÓK OG MALTÖL
ADSL ÁSKRIFTIR
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR58