Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 84

Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 84
[ TÓNLIST ] UMJFÖLLUN Sign spilar rokktónlist sem var vinsælust á níunda áratugnum þegar hárfagrar hetjur sungu með skrækum rómi lög og væl- andi gítarsóló voru í tísku. Ragnar Zolberg hefur reyndar ekki jafn skrækan róm og margar þessar hetjur en lagasmíðarnar eru engu að síður af svipuðum toga. Marg- ir rokkarar líta til þessa tímabils með hryllingi en ekki Sign. Ragnar er flottur rokkari með góða rödd og kann alla taktana upp á hár. Hljóðfæraleikurinn og hljómurinn er einnig til fyrir- myndar en lögin á þessari þriðju plötu Sign eru aftur á móti æði misjöfn og í raun ekkert sem gríp- ur mann að ráði nema A Little Bit, sem er langbesta lag plötunnar. Hin lögin eru því miður ekkert eftirminnileg nema þá helst fyrsta lagið Lift Me Up, sem er ágætis rokkari, og ballaðan Breathe. Ef Sign ætlar að halda áfram í þessari tónlistarstefnu verður sveitin að semja meira grípandi lög og vera jafnvel aðeins frum- legri því annars annars nær hún aldrei almennilega upp á yfir- borðið. Efniviðurinn er til staðar en hún þarf að gera einhverjar breytingar ef einhver á virkilega að leggja við hlustir í framtíðinni. Freyr Bjarnason Eitt lag best SIGN: THANK GOD FOR SILENCE Niðurstaða: A Little Bit er langbesta lag þessarar þriðju plötu Sign. Hin lögin eru flest hver lítt eftirminnileg og bara alls ekki nógu grípandi. Uppselt er á þrjú svæði af fjórum á tónleika söngkonunnar Katie Melua í Laugardalshöll 31. mars. Innan við 300 miðar eru eftir. Katie Melua, sem er 21 árs, hefur heldur betur slegið í gegn undanfarið. Hún á m.a. fjórðu mest seldu plötu erlends listamanns á Íslandi um þessar mundir, Piece By Piece. Þar er að finna hið vin- sæla lag Nine Million Bycicles. Miðasala fer fram í Skífunni, BT úti á landsbyggðinni og einnig á concert.is. ■ Miðarnir að seljast upp KATIE MELUA Söngkonan vinsæla heldur tónleika í Laugardalshöll 31. mars. Jónsi heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld klukkan 21.00 vegna fyrstu sóló- plötu sinnar sem heitir Jónsi. Á tónleikunum mun hann flytja lög af plötunni ásamt jólalögum og öðrum lögum sem hafa verið honum efst í huga undanfarin ár. Jónsi er mjög spenntur fyrir því að syngja í Fríkirkjunni. „Þetta er mjög persónuleg plata sem ég gaf út og mér finnst Fríkirkjan vera mjög persónulegur staður,“ segir Jónsi, sem býst við þó nokkurri jólastemningu. „Við förum ekki varhluta af því að þetta er um jólatíðina og líklegast munum við verða í góðum jólafíling,“ segir hann. Tónleikarnir í kvöld verða þeir einu hjá Jónsa fram að jólum en hann mun þess í stað halda áfram sínu striki með hljómsveit- inni Í svörtum fötum. Sama fjögurra manna hljóm- sveit og leikur á plötunni kemur fram með honum á tónleikunum, en hana skipa Karl O. Olgeirsson á píanó sem jafnframt er hljóm- sveitarstjóri, Ómar Guðjónsson á gítar, Tómas Tómasson á bassa og Birgir Baldursson á trommur. Plata Jónsa hefur verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum Poppplata ársins og Jónsi er jafnframt tilnefndur sem Söngvari ársins. ■ Persónulegir útgáfutónleikar JÓNSI Útgáfutónleikar Jónsa verða haldnir í Fríkirkjunni í kvöld. Fyrsta sólóplata tenórsins Garð- ars Thórs Cortes hefur selst í vel yfir 5000 eintökum og er því komin í gull. Garðar fékk plötuna afhenta í Íslandi í dag í gær og við sama tækifæri var sýnt frá tveimur tónleikum sem hann hélt í Grafar- vogskirkju. Tónleikarnir verða á dagskrá Stöðvar 2 á jóladag. Garðar var á dögunum tilnefnd- ur til Íslensku tónlistarverðlaun- anna og svo virðist sem hann hafi unnið hug og hjörtu Íslendinga með þessari fyrstu plötu sinni. ■ Gull-Garðar GARÐAR THÓR CORTES Fyrsta sólóplata ten- órsins hefur selst vel yfir 5000 eintökum. FRÉTTIR AF FÓLKI Vilhjálmur prins hefur tilkynnt að hann ætli sér að taka sér frí frá her- þjálfun sinni til þess að horfa á enska landslið- ið í knattspyrnu næsta sumar þegar baráttan um heimsmeistaratit- ilinn hefst í Þýskalandi í júní. Að sögn hefur hann ákveðið þetta þrátt fyrir að hann viti að hann muni missa mikið úr skóla vegna þessa. Tónlistarmaðurinn Boy George og fyrrum nektarfyrirsætan Anna Nicole Smith, hafa bæði samþykkt að taka þátt í næstu seríu af raunveruleikaþátt- unum Celebrity Big Brother í Englandi. George, sem var fyrir nokkrum mánuðum ákærður fyrir að geyma fíkni- efni á heimili sínu, ætlar að vera með í þáttunum umdeildu þrátt fyrir ákærurnar. Kate Beck-insdale hefur viðurkennt að hún dansi nektardans fyrir eiginmann sinn, leikastjórann Len Wisemann, í gegnum vefmyndavél þegar hann er í burtu frá henni löngum stundum vegna vinnu. Þetta sagði hún í samtali við Playboy-tímaritið. ,,Þetta var hugmynd Len‘s og hann setti upp myndavélarnar. Hann segir mér hvernig ég á að vera klædd á hverju kvöldi. Þetta hefur hjálpað mikið í sambandi okkar.“ Scarlett Johansson hefur samþykkt að taka að sér hlutverk í kvikmynd Christophers Nolan sem ber heitið The Prestige. Aðrir sem hafa nú þegar samþykkt að taka þátt í myndinni eru Christian Bale, Michael Caine, Hugh Jackman og David Bowie. Verður þetta næsta verkefni leikkonunnar og munu tökur hefjast í janúar á næsta ári og standa fram í mars. Jenný í Bachelor aftur óþekk Beraði brjóstin í blautbolakeppni DV2x10 14.12.2005 19:55 Page 1 HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.20 B.i. 12 ára ��� -MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.20 ��� - HJ MBL ��� -L.I.B. Topp5.is Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í Lúxus kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.