Fréttablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 85
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Svala Björgvinsdóttir fór fyrir
nokkrum árum til Bandaríkj-
anna þar sem átti að gera hana að
stjörnu, en því miður fyrir hana
fuku þær áætlanir út í veður og
vind.
Hún kom út úr því ævintýri
með dýrmæta reynslu sem hún
ákvað að nýta sér við gerð þess-
arar plötu. Í þetta skiptið fékk
hún að ráða öllu sem hún vildi án
þess að þurfa að hlíta fyrirmælum
erlendra hljómplötumógúla. Hún
fékk pabba sinn Björgvin til að
stjórna upptökum, auk þess sem
hann syngur bakraddir í nokkrum
lögum. Krummi, bróðir Svölu,
kemur einnig við sögu í laginu
We´re All Grown Up. Sem sagt,
mikil fjölskyldustemning þarna í
gangi.
Eins og nafnið gefur til kynna
er Svala frjáls sem fuglinn á þess-
ari plötu og virðist njóta sín vel
fyrir framan míkrafóninn. Hið
einlæga We´re All Grown Up er
eitt besta lag plötunnar þar sem
Krummi kemur sterkur inn og
hljómar um leið ótrúlega líkt og
faðir sinn. Fleiri lög sem stóðu
upp úr sem grípandi popplög voru
fyrstu þrjú lögin: Midnight Sun,
Sweet Things og Watch Out, sem
hafði þó aðallega að geyma öflugt
viðlag. Auk þess stóðu Dreams
Come True og Coming Around
Again vel fyrir sínu. Hin lögin
skildu frekar lítið eftir sig.
Það er bjart yfir þessari nýj-
ustu plötu Svölu og margt mjög
vel gert. Um helmingur plötunn-
ar er hlaðinn ágætis poppi og þar
sannast að Svala er hæfileikaríkur
tónlistarmaður sem á framtíðina
fyrir sér. Freyr Bjarnason
Bjart yfir Svölu
SVALA: BIRD OF FREEDOM
NIÐURSTAÐA:
Það er bjart yfir þessari nýjustu plötu Svölu.
Um helmingur plötunnar er í fínu lagi og þar
sannast að Svala er hæfileikaríkur tónlistar-
maður.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Orðrómur er uppi um að írski leikarinn
Colin Farrell hafi
farið í meðferð
vegna þess að
hann tók inn of
stóran skammt
af eiturlyfjum. Var
hann fluttur í bráða-
móttöku í Uruguay
á föstudag eftir
að hafa tekið
skammtinn.
Útvarpsstöð í
Uruguay sagði
að leifar af
marijúana, kókaíni og öðru efni hefðu
fundist í blóði hans. Talsmaður Farrells
hefur harðlega neitað þessu og segir að
hann sé einungis háður verkjalyfjum og
sé örmgagna eins og áður hefur komið
fram.
Poppprinsess-an Britney
Spears segir að
eiginmaður sinn
Kevin Federline
hafi ekki talað
illa um hjóna-
band þeirra,
sem margir
telja að standi
á brauðfótum.
Í viðtali við In Touch Weekly er haft
eftir Federline að hann geti ekki búið
með henni því hún sé alltaf að ráðskast
með hann. Talskona Spears
segir að fréttin sé hrein
lygi. Spears og Kevin séu
eins og hvert annað par
sem rífist en nái síðan
sáttum.
Fyrirsætan Rachel Hunter, fyrrver-
andi eiginkona
rokkarans Rod
sStewart, var flutt
á bráðadeildina á
sjúkrahúsi í London
á dögunum með
mikla magaverki. Eftir að hafa gengist
undir læknisrannsóknir var hún útskrif-
uð. Bíður hún nú niðurstaðanna og
heldur sér á meðan gangandi með
því að nota sterkar verkjatöflur.
Stúlknasveitin The Sugababes mun hita upp fyrir stráka-
bandið Take That á þrennum
risatónleikum á Þúsaldarvellinum
í Cardiff, Manchester Stadium
og á Wembley í júní á næsta ári.
Meðlimir Take That vonast til að
Robbie Williams stígi á svið með
sínum gömlu félögum á síðustu
tónleikunum.
Í tilefni af útkomu plötunnar Att-
empted Flight By Winged Men
mun hafnfirska rokksveitin Úlpa
halda ferna tónleika fyrir jól.
Sveitin spilar á Prikinu í kvöld
en annað kvöld heldur hún tvenna
tónleika. Þeir fyrri verða í plötu-
búð Smekkleysu klukkan 17.00 og
þeir síðari á Grand Rokki ásamt
Worm is Green. Miðaverð á þá
tónleika er 500 krónur. Á laug-
ardag spilar Úlpa síðan á Dillum
með plötusnúðnum 9 sec. ■
Fernir tónleikar
ÚLPA
Rokksveitin Úlpa gaf nýverið út plötuna
Attempted Flight By Winged Men.