Fréttablaðið - 15.12.2005, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Pöntunarsími: 511 1130
15 tonn af ÍSLANDSATLAS Eddu
seldust upp á aðeins þrem vikum.
Tryggðu þér eintak af atlasinum úr
næstu prentun á kynningarverðinu
19.990 kr. (fullt verð 24.990 kr.) með
GJAFAKORTI og fáðu bókina Hugmyndir
sem breyttu heiminum að gjöf með.
Önnur prentun af Íslandsatlas Eddu
verður til afhendingar 1. febrúar 2006.
GJAFAKORT að ÍSLANDSATLAS
Eddu ásamt bókinni Hugmyndir
sem breyttu heiminum frítt með
Á AÐEINS 19.990 kr.
verðmæti 29.980 kr.
Kaupauki
- Frítt með!
S Ö N G B Ó K B J Ö R G V I N S H A L L D Ó R S S O N A R
1 9 7 0 - 2 0 0 5
Stórkostleg safnplata
í næstu verslun
3CD
����������
����������
Nú eru jólin á næsta leiti. Ég verð alltaf glaður að sjá
þegar jólaljósin byrja að koma
upp. Sjálfur hef ég reyndar ekki
gaman af að hengja upp jólaseríur.
Mér leiðist að hanga úti í glugga
með teiknibólur og límband og fá
seríuna til að passa í gluggann.
Flestir jólaseríuframleiðendur
virðast líka ganga út frá því að
fólk sé með rafmagnsinnstungur
í gluggakistunum hjá sér. En mér
finnst gaman að horfa á jólaseríur
hjá öðrum.
VIÐ höldum jólin hátíðleg til að
minna okkur á ljósið í svartasta
skammdeginu. Það minnir okkur
á sumarið og að það mun koma
aftur, þótt maður eigi oft erfitt
með að trúa því. Ljósið minnir
okkur á það að eftir hverja nótt
kemur dagur. Það er fyrirheit um
betri tíma. Og grenigreinarnar
minna okkur á græna lit
sumarsins.
ÉG fæ samt stundum kvíða-
hnút þegar ég fletti „jóla-
gjafahandbókunum“ sem ég fæ
sífellt inn um lúguna heima. Er
fólk virkilega að gefa börnunum
sínum 50 og 100.000 kall í
jólagjöf? Bara í morgun fékk
ég enn eina jólahandbókina þar
sem var verið að selja tölvu á
jólatilboði á 240.000 kall. Hver
gefur 240.000 í jólagjöf? Ég kaupi
mér bíla á 240.000! Af hverju er
fólk að gefa svona dýrar gjafir?
Hefur fólkið kannski slæma
samvisku? Getur verið að því
líði illa yfir hvað það hefur talað
lítið saman og eytt litlum tíma
með börnunum sínum? Getur
verið að verð jólagjafarinnar sé
í nokkuð jöfnu hlutfalli við stærð
samviskubitsins? Þegar það
er komið yfir 200.000 þá er nú
eitthvað mikið að!
JÓLIN eru táknræn fæðingar-
hátíð Jesú Krists. Þau eru
tækifæri fyrir okkur til að gefa
af okkur og gleðja aðra sem
kannski búa við myrkur inni í
sér. Við höfum tækifæri til að
koma með ljós inn í líf þeirra. Og
það þarf ekkert mikið. Það þarf
engar flugeldasýningar. Það er
nóg að gefa kertaljós af kærleika.
Kertaloginn er þeim göldrum
gæddur að hann minnkar ekki
þótt maður gefi af honum.
ÞAÐ dýrmætasta sem við höfum
að gefa öðrum, sérstaklega
börnum okkar og fjölskyldu, er
einfaldlega tími okkar og athygli.
Það er ómetanlegt. Sá sem gefur
börnum sínum tíma sinn fær hann
margfalt til baka. Það er mikið
sælla að gefa en þiggja. ■
Jólahugvekja