Fréttablaðið - 30.12.2005, Side 2
2 30. december 2005 FRIDAY
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Sigurður, er nútíminn trunta?
„Er nútíminn ekki bara hestur? Það er
töff að eiga hest í dag.“
Sigurður Matthíasson, landsliðsmaður í
hestaíþróttum, sagði í blaðinu í gær að lífið
væri hestur og að ekki liði dagur án þess að
hann færi í Víðidalinn til að vitja hesta sinna.
ÁRAMÓTAVEÐRIÐ Nýjustu spár
Veðurstofunnar gera ráð fyrir
sæmilegu veðri á gamlárskvöld
og nýársnótt um mestallt land.
Hæg breytileg austanátt verður
á landinu og reiknað er með smá
snjókomu suðvestan- og vestan-
lands, og við austurströndina.
Annars staðar er gert ráð
fyrir þurru veðri og íbúar á
Norðurlandi mega jafnvel búast
við bjartviðri.
Víðast hvar á landinu verð-
ur hitastigið á bilinu núll til sex
gráður undir frostmarki, en rétt
yfir frostmarki með ströndinni
sunnantil. - sk
Veðrið um áramótin:
Sæmilegt veð-
ur um allt land
Sprengdu rúður á Akureyri Tvær
rúður brotnuðu í Íþróttahúsinu á Akur-
eyri í fyrrakvöld. Ungmenni voru þar að
verki með heimatilbúna sprengju. Að
þessu skemmdarverki frátöldu var nóttin
tíðindalítil hjá lögreglunni sem nú er í
viðbragðsstöðu þar sem flugeldavertíðin
er gengin í garð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HEILBRIGÐISMÁL Allir sjálfstætt
starfandi hjartalæknar á höfuð-
borgarsvæðinu, 22 talsins, sem
eru á samningi við Trygginga-
stofnun ríkisins sögðu honum upp
í gær, að sögn Axels Sigurðssonar
hjartasérfræðings. Hann á sæti í
stjórn Félags sjálfstætt starfandi
hjartalækna. Uppsagnirnar taka
gildi frá og með 1. apríl 2006.
Ástæða upsagnanna er að ekki
náðist samkomulag um breytingar
á núgildandi samningi Læknafé-
lags Reykjavíkur og samninga-
nefndar heilbrigðis- og trygginga-
mála ráðuneytisins, þrátt fyrir
margra mánaða samningaþóf, en
slitnað hefur upp úr viðræðum.
„Þótt þessar uppsagnir taki
gildi á næsta ári, þá munu allir
þessir hjartalæknar halda áfram
að sinna sínum sjúklingum eins og
áður. En það verður þá væntanlega
gert án greiðsluþátttöku Trygg-
ingastofnunar,“ segir Axel. „Komi
sjúklingur til mín í dag er gerður
reikningur samkvæmt ákveðnum
reglum og sjúklingurinn greiðir
sinn hlut, sem er mishár og fer
eftir því hvort viðkomandi er með
afsláttarkort, er öryrki, ellilífeyr-
isþegi og svo framvegis.“
Axel segir að það muni reyna á
hvort hjartasjúklingar geti rukk-
að Tryggingastofnun um hennar
hlut ef uppsögn þeirra á samningi
tekur gildi á næsta ári. Læknarnir
telji að almannatryggingakerfi sé
við lýði og sjúklingar eigi rétt á því
að fá að minnsta kosti hluta reikn-
ingsins greiddan. Spurningin sé
hvernig Tryggingastofnun bregð-
ist við ef til komi.
„Samninganefnd heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins hefur sagt
við okkur að framboð okkar á þjón-
ustu sé alltof mikið. Við verðum að
draga úr því. Við höfum sagst vera
að svara Eftirspurn. Ef við drög-
um úr framboði verður þjónustan
lélegri. Fólk þarf að bíða lengur og
biðlistar myndast.“
Spurður um hvort allir sérfræð-
ingar megi segja upp á sama tíma
segir Axel að hver og einn hafi sent
uppsagnarbréf fyrir sig. Um sé að
ræða verktakasamninga.
Axel segir enn fremur að kvóti
hjartasjúklinga, sem samning-
ur þeirra við Tryggingastofnun
kveði á um, hafi verið uppurinn í
október.
„Við höfum ekki innheimt hluta
TR fyrir þessa tvo mánuði heldur
einungis tekið við þessu venjulega
sjúklingagjaldi, enda gerir samn-
ingurinn ráð fyrir að við þurfum
að gefa TR 50 til 100 prósent afslátt
af öllu því sem er umfram kvóta.
Hjartalæknar hafa því orðið fyrir
verulegri kjaraskerðingu á þessum
tveimur mánuðum, ekki síst í ljósi
þess að sjúklingagjöldin eru alltaf
lægst í lok árs, þar sem fjölmargir
eru þá komnir með afsláttarkort.
Það dugar ekki fyrir mánaðarleg-
um rekstrarkostnaði.“
jss@frettabladid.is
UPPSAGNIR Á SAMNINGI ALLIR hjartalæknar hafa sagt sig af samningi við Tryggingastofnun
ríkisins.
Allir hjartalæknar
sögðu upp samningi
Sjálfstætt starfandi hjartalæknar sem voru á samningi hjá Tryggingastofnun
sögðu honum upp í gær. Það þýðir að sjúklingar þurfa að greiða fullt gjald eftir
að uppsagnarfresturinn, sem er þrír mánuðir, rennur út.
DÆMI UM GREIÐSLUR TIL
HJARTALÆKNA
Koma til hjartalæknis og í hjartalínurit
Einstaklingur án afsláttarkorts
Hlutur sjúklings 3.888 kr.
Hlutur Tryggingastofnunar 1.783 kr.
Samtals 5.671
Einstaklingur með afsláttarkort,
öryrkjar og ellilífeyrisþegar
Hlutur sjúklings 1.536
Hlutur TR 4.135
Samtals 5.671
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar með
afsláttarkort
Hlutur sjúklings 450
Hlutur TR 5.221
Samtals 5.671
LÖGREGLUMÁL Rannsókn í frysti-
kistumálinu svokallað hefur leitt
í ljós að annar maður er nú grun-
aður um að hafa drepið friðuðu
fuglana sem fundust í frystikistu
við húsleit á Húsavík í haust.
Eftir að lögreglan hafði yfir-
heyrt meindýraeyðinn sem frysti-
kistan fannst upprunalega hjá
beindust böndin að öðrum manni.
Sá játaði að eiga frystikistuna og
að hafa drepið suma fuglana. Lög-
reglan á Húsavík telur sig hafa
vitneskju um hverjir drápu hina
friðuðu fuglana og verða þeir yfir-
heyrðir á næstunni.
Lögregla segir að maðurinn
sem játaði verði ákærður. - æþe
Fugladráp á Húsavík:
Annar játar
við yfirheyrslu
FÁLKI Annar maður er nú grunaður um
að hafa drepið friðaða fugla á Húsavík og
troðið þeim í frystikistu.
INDÓNESÍA, AP Meginhluti indónes-
ískra herliðisins hélt brott frá Aceh-
héraði á Súmötru í gær, nokkrum
dögum eftir að aðskilnaðarsinnar á
svæðinu luku afvopnun sinni. Stór
skref hafa því verið stigin í átt til
friðar í héraðinu en stríðsátök hafa
staðið þar yfir í 29 ár.
Um 156.000 manns létust í Aceh
í flóðbylgjunni. Ríkisstjórn Indón-
esíu og uppreisnarmenn ákváðu
í sameiningu að auka ekki frekar
á þjáningar fólksins. Uppreisnar-
menn létu af kröfu um sjálfstæði
en fengu þess í stað takmarkaða
heimastjórn og aukin yfirráð yfir
auðlindum héraðsins. ■
Friður á næsta leiti í Aceh:
Stjórnarherinn
heldur á brott
HERMENN DANSA Indónesískir hermenn
dönsuðu og sungu fyrir brottflutning sinn
frá hinu stríðshrjáða Aceh- héraði.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Enn á sjúkrahúsi Annar drengjanna
sem slösuðust illa þegar þeir voru að
fikta með eldfiman vökva ásamt félaga
sínum í Grafarvogi í síðasta mánuði
er enn á sjúkrahúsi. Hann hefur þó
verið fluttur af gjörgæslu og dvelur nú
á Barnaspítala Hringsins. Félagi hans
sem brenndist á höndum og andliti var
einnig á Barnaspítalanum en fór heim
fyrir jól.
BRUNASÁR
LEIKSKÓLAMÁL Allir leikskólakenn-
arar á öðrum leikskóla Seltjarn-
arness, Sólbrekku, hafa sagt upp
störfum.
Bæjarstjóri Seltjarnarness, Jón-
mundur Guðmarsson, segir upp-
sagnirnar vera tilkomnar vegna
nýgerðra kjarasamninga Reykja-
víkurborgar og vera í takt við
atburði að undanförnu. Hann segir
uppsagnir leikskólakennaranna taka
gildi eftir þrjá mánuði og þangað til
verði reynt að leysa vandann.
Formaður leikskólakennara,
Björg Bjarnadóttir, segir uppsögn
starfsfólksins á Sólbrekku vera
táknræn mótmæli vegna stöðun-
ar sem upp sé komin. Hún segir
stéttarfélag leikskólakennara hafa
áhyggjur af þessari þróun og að
það komi á engan hátt að þessum
uppsögnum.
Jónmundur segir sveitarfélag-
ið ekki geta vikið frá nýgerðum
kjarasamningum við leikskóla-
kennara. Það muni hins vegar
taka þátt í umræðunni og leggja
sitt af mörkum þegar Samband
íslenskra sveitafélaga komi saman
í janúar, til að koma í veg fyrir að
ófremdarástand myndist bæði
í leikskólum Seltjarnarness og í
borginni. Hann segist bjartsýnn á
lausn málsins.
Spurður hvort honum hugnist að
Seltjarnarnes taki upp sjálfstæða
launastefnu líkt og starfsmanna-
félag Kópavogs skorar á bæjarfé-
lag sitt að gera segist hann ekki
vera á móti þeirri hugmynd. Hann
telur þó að það geti aðeins gengið
ef bæjarfélag geti samið beint við
sína starfsmenn án aðkomu stétta-
félags í heild sinni. - æþe
JÓNMUNDUR GUÐMARSSON Bæjarstjórinn
segir uppsagnirnar stafa af samningum við
ófaglærða leikskólastarfsmenn í Reykjavík.
Nýgerðir kjarasamningar Reykjavíkurborgar hafa áhrif á Seltjarnarnesi:
Allir leikskólakennarar Sól-
brekku segja upp störfum
AKUREYRI Oktavía Jóhannesdóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
á Akureyri, hefur sagt sig form-
lega úr flokknum og gengið til
liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hún
segir Samfylkinguna ekki vera og
munu seint verða sá framsækni og
frjálslyndi jafnaðarmannaflokkur
sem reiknað var með í upphafi og
því telji hún ekki eiga samleið með
flokknum. Hún hefur jafnframt
ákveðið að víkja ekki úr sæti sínu
í bæjarstjórn og sitja sem fastast
fram á vor. Þá útilokar hún ekki
að bjóða sig fram í prófkjör sjálf-
stæðismanna á Akureyri.
Stjórn Samfylkingarinnar á
Akureyri sendi frá sér fréttatil-
kynningu í gærkvöldi þar sem
hún harmar að Oktavía hafi
hlaupist undan skyldum sínum og
um leið brotið trúnað við kjósend-
ur flokksins. Þar segir að stjórn-
inni sé ekki kunnugt um ástæður
brotthvarfsins. Stjórnin krefst
þess að Oktavía víki úr öllum
trúnaðarstörfum fyrir flokkinn
þar sem að hún hafi sjálf kosið að
segja skilið við flokkinn.
- æþe
Samfylkingarmenn á Akureyri ósáttir við brotthvarf bæjarfulltrúa í Sjálfstæðisflokkinn:
Krefjast þess að Oktavía víki
OKTAVÍA JÓHANNESDÓTTIR Bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar á Akureyri ætlar að sitja
áfram.