Fréttablaðið - 30.12.2005, Qupperneq 56
Jack Black segir að hann muni
hugsa sig tvisvar um áður en hann
taki aftur að sér hlutverk í mynd
með Sean Penn. Þeir félagar léku
saman í Dead Man Walking og
sagðist Black hafa verið dauð-
hræddur við hann meðan tökunum
á stóð. Penn var að sögn Blacks
alltaf eitthvað að ráfa um og virt-
ist hægt og bítandi smám saman
færast nær barmi þess að verða
geðveikur. „Hann var alltaf eitt-
hvað að ógna mér, ég varð pínu-
lítið hræddur við hann. Hann átti
það til að breytast í geðsjúkling og
fara með einhver ljóð. Þá þögnuðu
allir og úr varð svona óþægileg
þögn,“ útskýrði Black þegar hann
var beðinn um að lýsa samveru-
stundum sínum við leikarann.
King Kong-stjarnan sagði þó að
það hefði verið frábært að fylgjast
með Penn fyrir framan mynda-
vélarnar. „Þá var eins og hann
væri staddur á annarri plánetu,
þeirri sem geymir ótrúlega góðu
leikarana.“ ■
Black hræðist Penn
SEAN PENN Leikarinn hefur löngum þótt
heldur óstýrilátur og erfiður í umgengni
þótt enginn efist um hæfileika hans fyrir
framan myndavélarnar.
JACK BLACK Var lafhræddur við mótleikara
sinn Sean Penn þegar þeir léku í myndinni
Dead Man Walking.
Kvikmyndaleikstjórinn
Quentin Tarantino kom til
landsins í gær eftir að-
eins sjö vikna fjarveru en
sem kunnugt er tók hann
ástfóstri við land og þjóð
síðast þegar hann var hér.
Þórarinn Þórarinsson fór á
blaðamannafund hjá leik-
stjóranum málglaða.
Tarantino er að þessu sinni með
þrjár kvikmyndir úr einkasafni
sínu en þær ætlar hann að sýna í
einum rykk í Háskólabíói á föstu-
daginn á sérstakri eins dags kvik-
myndahátið. „Þetta eru að mínu
mati þrjár bestu kung fu myndir
sem hafa verið gerðar en þær
komu út í lok áttunda áratugar-
ins og byrjun þess níunda og eru
rjóminn frá þessu tímabili,“ segir
Tarantino.
„Ég þurfti að velja saman þrjár
myndir sem ég held upp á,“ svarar
leikstjórinn þegar hann er inntur
eftir því hvað hafi ráðið vali hans.
„Þrjár myndir sem myndu ganga
vel saman og þrjár myndir sem
myndu hrífa áhorfendur með sér
og fá þá til að hrópa og láta öllum
illum látum. Ég mun kynna hverja
mynd fyrir sig áður en hún er
sýnd, segja aðeins frá henni og
koma áhorfendum í stuð. Eftir
hverja mynd munum við svo ræða
hana aðeins en ég sé enga ástæðu
til þess að vera með spurningar
og svör. Þá er ég heldur ekki að
koma fram sem einhver stjarna
og mun ekki gefa eiginhandarárit-
anir eða stilla mér upp með fólki
fyrir myndatökur. Þetta á fyrst og
fremst að vera bíóupplifun.“
Elskar Reservoir Dogs
Tarantino sagði að kung fu myndir
væru engir sérstakir áhrifavald-
ar í hans eigin verkum, það væri
meira og minna öll kvikmynda-
sagan sem hefði haft áhrif á hann
þó vissulega fari kung fu áhrifin
ekkert á milli mála í Kill Bill.
„Ég er hins vegar mjög hrif-
inn af þessari kvikmyndagrein
og fannst því upplagt að sýna
ykkur myndir af þessari tegund
á þessum eina degi. Ég ólst upp
á þessum myndum þegar hug-
myndafátæktin var að gera út af
við Hollywood og þegar enginn
tók áhættu var allt klikkað í Hong
Kong, sköpunargleðin í botni og
ofbeldið magnað.“
Tarantino horfði á allar mynd-
irnar sínar í röð í sjónvarpi um
jólin. „Ég hef aldrei horft svona
á þær allar í einum rykk og það
var mjög gaman.“ Þegar gengið er
á leikstjórann og hann beðinn að
nefna uppáhaldsmyndina sína úr
eigin höfundarverki segist hann
ekki komast hjá því að nefna Res-
ervoir Dogs. Hún sé myndin sem
breytti lífi hans og honum muni
alltaf þykja sérstaklega vænt
um hana. „Ég er svo aftur á móti
hrifnastur af kvikmyndagerðinni
í Kill Bill.“
Ágætis afsökun fyrir endurkomu
Ástæðan fyrir því að Tarantino
slær upp þessari áramótaveislu
í Reykjavík nú er einföld. „Ég
skemmti mér svo vel hérna síðast
og þegar ég komst að því að þið
gerið ekkert svona hér fannst mér
tilvalið að slá til. Mér finnst þetta
skemmtilegt og það er gaman
að vera kominn aftur. Þegar ég
kem á staði sem mér líkar við þá
er svona hátíð ágætis afsökun til
þess að geta komið aftur.“ Tarant-
ino hefur haldið hátíðir af þessu
tagi um nokkurt skeið. „Ég hef
haldið sex svona hátíðir í Austin
í Texas á átta eða níu ára tíma-
bili. Ég geri þetta ekki árlega en
þegar ég get. Það eru svona tíu ár
síðan ég fann fyrir því að það var
ekki nóg að horfa á þessar myndir
heima með vinum mínum og hafði
því samband við vin minn í Austin
og stakk upp á að við slægjum upp
bíóveislu. Þetta sló í gegn og þró-
aðist út í þetta.“
Tarantino útilokar alls ekki að
hann muni endurtaka leikinn á
Íslandi og þá jafnvel teygja hátíð-
ina yfir fleiri daga.Tarantino seg-
ist einnig vel geta hugsað sér að
gera mynd á Íslandi. „Algjörlega.
Ef ég hefði réttu söguna. Landið
er mjög spennandi tökustaður.“
Tarantino flýgur heim strax
eftir áramót og mun sinna kynn-
ingu á Hostel, meðal annars með
því að mæta í spjallþátt Conans
O‘Brien. Næsta verkefni hans
er svo samstarfsverkefni með
Robert Rodriguez en þeir ætla að
gera sinn hvora hryllingsmyndina
og sýna þær saman. Þá hefur Tar-
antino verið með stríðsmyndina
Inglorious Bastards í kollinum í
þrjú ár og telur sig bráðum tilbú-
inn til þess að koma henni á filmu.
„Ég er búinn að vera að skrifa
hana í þrjú ár og ætli ég þurfi ekki
svona eitt ár til viðbótar. Þetta
verður meira í ætt við The Dirty
Dozen en Schindler´s List,“ segir
hann og skellihlær.
thorarinn@frettabladid.is
LÉK Á ALS ODDI Tarantino er yfir sig hrifinn af víkingum og stefnir að því að lesa Íslend-
ingasögurnar. Hann segist hafa horft á Hrafninn flýgur um leið og hann kom heim og hafi
orðið mjög hrifinnn af þessari víkingasögu í spaghettívestrabúningi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Undir áhrifum kvik-
myndasögunnar allrar
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna
���1/2
- MMJ
Kvikmyndir.com
���
- Topp5.is
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
����
- ÓÖH DV
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Lúxus kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
20% afsláttur af
miðaverði fyrir
viðskiptavini KB banka
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
„Persónurnar eru trúverðugar og
leikurinn í flestum tilvikum fyrsta
flokks“...„Baltasar finnur smjörþefinn
af Hollywood“
���� - Dóri DNA - DV
����
- Toronto Sun
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara
Terry Gilliams byggð á hinum frábæru
Grimms ævintýrum með Matt Damon og
Heath Ledger í aðalhlutverkum
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 3 og 6 Íslenskur texti
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 B.i. 14 ára
20% afsláttur af
miðaverði fyrir
viðskiptavini KB banka
„...líklega besta kvikmyndatónlist
Íslendings til þessa“
VG - Fréttablaðið
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
���
1/2 - MMJ
Kvikmyndir.com
���
- Topp5.is
Sýnd kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10
...áhugaverð og fáguð
kvikmynd sem veitir
ferskum straumum
inn í íslenska
kvikmyndagerð
����
- HJ MBL
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara
Terry Gilliams byggð á hinum frábæru
Grimms ævintýrum með Matt Damon og
Heath Ledger í aðalhlutverkum